Fréttablaðið - 28.04.2006, Page 30

Fréttablaðið - 28.04.2006, Page 30
[ ] Hið nýja kallast á við það gamla á Kaffi París sem var opnað á ný eftir endurbætur á sumardaginn fyrsta. Birgir Rafn Ásgeirsson, kokkur á Kaffi París, hannaði nýjan mat- seðil fyrir hið nýuppgerða kaffi- hús. „Við höldum í þetta gamla góða eins og stóran kökulista, pönnukökur og vöfflur. Hins vegar leggjum við mun meiri áherslu á matreiðslu,“ segir Birg- ir Rafn og nefnir sem dæmi að boðið verði upp á mikið af léttum réttum eins og rísotto, núðlurétti, lasagna og speltbökur. Birgir segir ætlun hinna nýju eigenda að halda í gömlu stemn- inguna þrátt fyrir að útlit staðar- ins sé orðið mjög nýtískulegt með flottri lýsingu. „Hins vegar höfum við skreytt salinn með gömlum myndum frá aldamótum og upp úr. Þetta eru myndir af umhverfi Kaffi Parísar og hvernig það hefur þróast,“ segir Birgir sem kom nýr inn í eldhús Kaffi París- ar eftir breytingarnar. Hann hefur áður starfað á hinum ýmsu veitingastöðum og setti meðal annars af stað Kaffi Blu í Kringl- unni. „Við viljum halda því sem var gott með góðum kökum og brauð- um en fá inn matartraffíkina undir kvöldið og það hefur gengið eins og í sögu,“ segir Birgir sem heldur hvað mest upp á túnfisk- salatið af þeim réttum sem prýða matseðilinn. „Það er ferskur grillaður tún- fiskur sem liggur í oriental mar- íneringu. Það kemur létt reykjar- bragð í gegnum maríneringuna. Með þessu er sítrussalat með lime, kóríander og kapers,“ segir Birgir og áréttir að ávallt sé not- ast við ferskasta hráefnið hverju sinni. „Annars er svo gríðarlega mikið að gera hjá okkur að vör- urnar gerast ekki mikið ferskari enda rjúka þær út,“ segir hann glaðlega. Opnunartími Kaffi Parísar hefur verið rýmkaður nokkuð eftir breytingarnar. Á virkum dögum opnar klukkan átta um morguninn, eldúsið lokar klukkan tíu að kvöldi en staðurinn er opinn til klukkan eitt. Um helgar er opnað klukkan níu um morguninn og er opið til þrjú um nóttina. „Eftir að eldhúsið lokar ætlum við að reyna að mynda kokteil- barsstemningu,“ segir Birgir en nokkuð úrval af kokteilum stend- ur til boða á hinum nýja og endur- bætta stað. Nýtt í bland við hið gamla Grillaður túnfiskur með sítrussalati er eitt af því sem boðið er upp á á nýjum matseðli Kaffi Parísar. Birgir Rafn Ásgeirsson, kokkur á Kaffi París, hannaði nýja matseðilinn þar sem hann bæði heldur í gamla klassíska kökulistann og bætir við nýjum, léttum og ferskum réttum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 Vanilluískúla 1 góður espresso Vanilluískúlan er sett í skál og espressóinn er borinn fram í bolla til hliðar við ísskálina. Espressóinum er svo hellt yfir ísinn en í því liggur stemningin sem fylgir þessum rétti. Einnig má setja eina rönd af Galli- ano, Cointreau eða af öðrum líkjör yfir ísinn. Jón Gestur mælir með Lavazza Club kaffiblöndu í espressó-bollann með ísnum. Blandan er hrein arabica blanda en arabica-baunirnar eru sérvaldar og blandan flauelsmjúk. Eigi fólk ekki espresso vél má gera bragðmikla og góða uppáhellingu í filter eða pressukönnu. uppskrift Jóns Gests } Africado ísrétturNÚ Á SUNNUDAGINN, 30. APRÍL, FER FRAM ÍSLANDSMÓT BAR- ÞJÓNA. Barþjónakeppnin verður haldin á Nordica Hóteli. Að þessu sinni verður keppt í Long-Drinks sem eru drykkjarblöndur fylltar upp með gosdrykkjum og ávaxtasöf- um. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þrjú efstu sætin en þeir einir hafa keppnisrétt sem eru með sveinspróf í framreiðslu, eru meðlimir í Barþjónaklúbbi Íslands og hafa skilað inn uppskriftum til yfirdómnefndar keppninnar. Sá sem hreppir fyrsta sætið verð- ur krýndur til Íslandsmeistara og mun keppa fyrir Íslands hönd í heimsmeistarakeppni í Grikklandi haust. Hrist af list Kokteilar með ávaxtasöfum eru oft litríkir. Olía er ekki það eina sem hægt er að steikja upp úr. Ýmsar sósur eru ágætar til þeirra nota því þá fer bragðið inn í matinn. Fá›u fimm stjörnur hjá kökugagnrýnendum! Sérfræðingar í saltfiski Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl. Fyrir verslanir: Til suðu: saltfiskbitar blandaðir gellur gollaraþunnildi Til steikingar: saltfiskbitar blandaðir saltfiskkurl saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) gellur Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti: saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos) saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar saltfiskkurl Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem: ýsuhnakka rækjur þorskhnakka steinbítskinnar og bita Sími: 466 1016 ektafiskur@emax.is Ver› fyrir einrétta Ver› fyrir flrírétta Okkar róma›a humarsúpa 990 Steiktur skötuselur 3.390 4.390 me› hvítvínssósu Kjúklingabringa 2.950 3.890 ,,a la Italiana“ Lambafillet 3.390 4.390 me› sherrybættri sveppasósu Nautalundir me› Chateubriandsósu 3.700 4.690 Súkkula›ifrau› 790 Einnig úrval annarra rétta á ,,a la Cartse›li“ ~ ~ ~ ~ ~ Þriggja rétta matseðill Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27-29 Borðapantanir í síma 562 1988 • Madonna síðan 1987 • www.madonna.is Skeifunni 11d - 108 Reykjavík Reykjavíkurvegur 64 220 Hafnarfir›i www.aman.is VERSLUN VÍNGERÐARMANNSINS ÓDÝR KOSTUR EF HALDA Á VEISLUR HÁGÆÐA VÍNGERÐAREFNI EINFALT, ÓDÝRT ÁHUGAMÁL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.