Fréttablaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 80
7. maí 2006 SUNNUDAGUR
��������� ������������������
����������� ���������
�������������������������
��������������������
���������������
�������
����������������� ���
����������������
�����
��������������
��������������
���������������
����������
������������ �����������������
����������������
������������������
������������ ��������������
����������������������
» Mánudaginn 8. maí kl. 20.00
á kosningaskrifstofunni Lágmúla 9.
» Þriðjudaginn 9. maí kl. 20.00
á kosningaskrifstofunni Hverafold 5.
» Föstudaginn 12. maí kl. 20.00
á Kosningaskrifstofu ungs fólks, Aðalstræti 6.
» Mánudaginn 15. maí kl. 20.00
í Fylkishöllinni í Árbæ, Fylkisvegi 6.
» Þriðjudaginn 16. maí kl. 20.00
á kosningaskrifstofunni í Landssímahúsinu
við Austurvöll.
» Miðvikudaginn 17. maí kl. 20.00
á kosningaskrifstofunni í Mjóddinni,
Álfabakka 14a.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson kynnir stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar.
Allir velkomnir!
STEFNUMÓT
VIÐ BORGARBÚA
Helgin mín fer í
að flísaleggja.
Fjölskyldan
var nefnilega
að splæsa í
eitt stykki
bústað og nú
skal flísalagt.
Flísalögn er í
rauninni mun
meira heillandi
fyrirbrigði en
mig hefði áður grunað.
Málið snýst ekki bara um flísar
heldur koma þarna við sögu
atriði eins og fúgur, tuskuþrif,
gúmmíhanskar, fötur með vatni,
bogið bak, sviti, almennur subbu-
skapur, þriggja daga harðsperr-
ur og fleira áhugavert.
Nei ég er að djóka, mér finnst
þetta ekkert gaman. Það besta
við svona vinnu eru pásurnar
sem maður tekur og maturinn
sem maður borðar í pásunum.
Það er ótrúlegt hvað allur matur
verður miklu betri ef maður
borðar hann þreyttur og svang-
ur. Þá líður mér svolítið eins og í
gamla daga þegar ég var alltaf á
skíðum. Þegar maður fór dauð-
þreyttur upp í skála, borðaði
samlokur og saup á kakói, bætti
smá snjó út í til að kæla. Ahhh,
þetta voru dagarnir.
Ég verð að viðurkenna að
þegar foreldrarnir tjáðu mér að
ég skyldi hjálpa við sumarbú-
staðabaksturinn þá sá ég mig
ekki fyrir mér bograndi við að
klína fúgu á milli flísa, þurrk-
andi hana í burtu og fara svo
sautján sinnum yfir með blautri
tusku. Frekar sá ég mig í léttum
sumarfötum, jafnvel með der-
húfu að mála í glampasólskini,
teygandi svaladrykki og kælandi
mig í læknum þegar hitinn væri
sem óbærilegastur. Reyndar hef
ég heyrt að flísalögn sé það leið-
inlegasta við sumarbústaða-
baksturinn og því liggur leiðin
bara upp á við eftir þessa helgi.
Trompið verður svo þegar við
getum skroppið upp í bústaða-
paradísina eftir erfiða vinnu-
viku, drukkið rauðvín í pottinum
og siglt á kanó niður lækinn. Þá
verður allt flísaógeðið þess
virði.
STUÐ MILLI STRÍÐA Flísalögn dauðans
BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR HLAKKAR TIL AÐ SJÁ ÁRANGUR ERFIÐISINS