Fréttablaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 14
7. maí 2006 SUNNUDAGUR14
timamot@frettabladid.is
Mikil vinna er framundan hjá Ólafi
Rafnssyni, nýkjörnum forseta Íþrótta-
og ólympíusambands Íslands, en hann
tók við embættinu þann 29. apríl síð-
astliðinn á ársþingi ÍSÍ. „Embættinu
fylgja margar skyldur en fyrir mér er
það eiginlega bara hrein skemmtun,“
segir Ólafur.
Starf forseta ÍSÍ felur í sér mikil
samskipti við annað fólk. „Mikið er um
fundi hérlendis og erlendis og starfinu
fylgja greinaskrif og ræðuskrif og
annað slíkt. Fyrst og fremst snýst
starfið þó um að koma fram fyrir hönd
hreyfingarinnar og stýra stefnumótun
og öðru slíku sem er náttúrulega ekk-
ert nema forréttindi fyrir þann sem
hefur áhuga á þessum málum. Ég er
með margar hugmyndir sem mig lang-
ar að setja í gang þó að það gerist ekki
allt á fyrstu vikunum.“
Næstu vikur verður dagskráin þétt-
skipuð hjá Ólafi. „Nú er tími þinga
sambandsaðila og ég hef verið að mæta
mikið á þing og fundi. Síðan eru kynn-
ingarfundir framundan þar sem ég
funda með viðkomandi ráðherrum,
forseta, fulltrúum ólympíuhreyfingar-
innar hérlendis og erlendis og fjölda
hagsmunaaðila sem tengjast íþrótta-
hreyfingunni.“
Ólafur segir að hann hafi alveg
vitað hvað hann var að fara út í þegar
hann bauð sig fram til forseta ÍSÍ. „Það
er ekkert að koma mér á óvart því ég
hef starfað mjög lengi og mikið á þess-
um vettvangi,“ segir hann.
Almennt er kjörtímabil stjórnar ÍSÍ
tvö ár en Ólafur mun þó sitja í að
minnsta kosti þrjú ár. „Að þessu sinni
var gerð breyting á tímasetningu
íþróttaþinga samkvæmt tilmælum
Alþjóðaólympíunefndarinnar og næsta
þing verður því ekki fyrr en 2009 svo
þetta kjörtímabil verður þrjú ár. Hefð
hefur verið fyrir því að menn sitji
nokkur kjörtímabil í þessu embætti og
ég hef fullan hug á því að standa mig
það vel að ég njóti þess trausts sem
þarf til endurkjörs,“ segir Ólafur.
Þrátt fyrir mikið annríki ætlar Ólaf-
ur þó að reyna að gefa sér tíma til þess
að fara í frí með fjölskyldunni í sumar.
„Við munum væntanlega fara eitt-
hvert innanlands því það er fátt sem
okkur finnst skemmtilegra. Ég hef
mikinn hug á því að fara á ýmis íþrótta-
mót í sumar og svo er stefnan að fara á
landsmótið á Laugum í Reykjadal um
verslunarmannahelgina.“
Þennan dag fyrir sextíu árum
síðan skrifaði nasistastjórn
Þjóðverja undir skilyrðislausa
uppgjöf fyrir hönd landsins.
Lauk þar með hörmulegu stríði
í Evrópu sem staðið hafði yfir í
hátt í sex ár. Fregnirnar bárust
fyrst frá Frakklandi en voru
seinna um kvöldið hinn sama
dag staðfestar af upplýsinga-
ráðuneyti Bretlands. Undirskrift uppgjafarinnar fór
fram í borginni í Reims í norð-austurhluta Frakk-
lands snemma morguns. Fyrir hönd nasista skrifaði
hershöfðinginn Gustav Jodl undir uppgjöfina en
fulltrúar Rússa, Frakka og Bandamanna rituðu einnig
undir staðfestinguna á uppgjöfinni.
Daginn eftir var haldið upp á daginn víða um
heim en Winston Churchill, forsætisráðherra Breta,
Jósef Stalín, leiðtogi Sovétríkj-
anna, og Harry S. Truman, forseti
Bandaríkjanna, tilkynntu allir
þrír samtímis opinberlega um
uppgjöf Þjóðverja í höfuðborgum
landanna þriggja.
Uppgjöf Þjóðverja hafði legið
í loftinu nokkru áður en hún
varð að veruleika. Höfðu meðal
annars herir nasista í suðri verið
sigraðir auk þess sem herir þeirra í Hollandi, Dan-
mörku og Noregi höfðu gefist upp. Viku áður hafði
Adolf Hitler, leiðtogi nasista, svipt sig lífi og hafði
Karl Dönitz tekið við af honum. Hafði Dönitz þó
tilkynnt að Þjóðverjar myndu ekki gefast upp meðan
enn væri barist í Rússlandi. Skilyrðislaus uppgjöf
Þjóðverja kom því ekki mörgum í opna skjöldu en
henni var fagnað vel og lengi.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Gíslason
Faxabraut 13, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 10. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill.
Hallmann S. Sigurðarson Aðalheiður H. Júlíusdóttir
Margrét R. Sigurðardóttir Þorsteinn V. Konráðsson
Ráðhildur Á. Sigurðardóttir Einar Magnús Sigurbjörnsson
Gísli Sigurðsson Árný Dalrós Njálsdóttir
Sigurlaug Sigurðardóttir Snæbjörn Kristjánsson
Sigurður Sigurðarson Halldóra K. Guðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðbjörg Huld Magnúsdóttir
frá Dölum, Fáskrúðsfirði, síðar Bakka í
Kelduhverfi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
10. maí kl. 15.00.
Björg Gunnlaugsdóttir Sverrir Ólafsson
Erla Óskarsdóttir
Magnús Gunnlaugsson Ríkey Einarsdóttir
Aðalbjörg Gunnlaugsdóttir Stefán Óskarsson
Hulda Gunnlaugsdóttir Gunnar Einarsson
Hildur Gunnlaugsdóttir Páll Steinþórsson
Valdís Gunnlaugsdóttir Vignir Sveinsson
og fjölskyldur.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Okkar ástkæra
Hrefna Magnúsdóttir
Fannborg 8, áður Melgerði 16, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn
8. maí klukkan 13.00.
Rögnvaldur Ólafsson Sigríður Júlíusdóttir
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir
Fríður Ólafsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir Halldór Jónsson
Sigríður Ólafsdóttir Þórður Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir,
systir, mágkona, tengdamóðir, tengdadóttir
og amma,
Margrét Vallý Jóhannsdóttir
Bragagötu 36, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum hinn 1. maí, verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 9. maí
kl. 13.00. Jarðsett verður frá Dalvíkurkirkjugarði
miðvikudaginn 10. maí kl. 15.00.
Páll Magnússon
Hlynur Sigursveinsson
Elísabet Sigursveinsdóttir Elías Þór Höskuldsson
Bjarki Sigursveinsson Betina Carstens
Friðrikka E. Óskarsdóttir
Þuríður Jóhannsdóttir Þórólfur H. Hafstað
Valgerður María Jóhannsdóttir Guðmundur Freyr Hansson
Anna Sigríður Gunnarsdóttir Magnús Pálsson
og barnabörn.
Árni Gautur Arason
markvörður er 31 árs.
Hildigunnur Þráins-
dóttir leikkona er
36 ára.
AFMÆLI
MERKISATBURÐIR
558 Hvelfing Sófíukirkjunnar
í Konstantínópel hrynur.
Jústiníanus fyrsti fyrirskipar
að hún verði endurbyggð
án tafar.
1824 Níunda sinfónía Beet-
hovens er frumflutt í Vín.
1832 Grikkland verður sjálfstætt
ríki.
1912 Columbia-háskóli kemur
Pulitzer-verðlaununum á
laggirnar.
1915 Þýskur kafbátur grandar
farþegaskipinu Lusitaniu.
Tólf hundruð fórust.
1940 Winston Churchill verður
forsætisráðherra Bretlands.
1951 Bandaríska varnarliðið kom
til landsins en varnarsamn-
ingurinn var undirritaður
tveimur dögum áður.
1978 Jarðgöngin í Oddsskarði eru
vígð.
ÞETTA GERÐIST > 7. MAÍ 1945
Þjóðverjar skrifa undir uppgjöfMARÍA EVA DUARTE DE PERÓN
(1919-1952) FÆDDIST ÞENNAN
DAG.
„Ég veit, eins og hver
einasta kona, að ég
hef meiri styrk en ég lít út
fyrir að hafa.“
Evíta Perón var önnur eiginkona
Peróns, forseta Argentínu, og er hún
sögð hafa haft mikil pólitísk völd.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
Dagur Hannesson
járnsmiður,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánudaginn
8. maí kl. 15.00.
Sigurður Dagsson Ragnheiður Lárusdóttir
Bjarki Sigurðsson
Dagur Sigurðsson Ingibjörg Pálmadóttir
Lárus Sigurðsson Heba Brandsdóttir
og barnabarnabörn.
ÓLAFUR RAFNSSON FORSETI ÍSÍ Þótt miklar skyldur fylgi því að vera formaður þessa stóra félags þykir
Ólafi skyldurnar eiginlega vera hrein skemmtun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLAFUR RAFNSSON: NÝKJÖRINN FORSETI ÍSÍ
Ætlar á íþróttamót í sumar
ANDLÁT
Ingimundur Þorkelsson, vélvirki,
áður til heimilis að Sporðagrunni
4, Reykjavík, lést á Hrafnistu í
Reykjavík 5. maí.
Ólafur Þórðar Friðriksson Hjart-
ar lést í Skógarbæ 4. maí.
Jóhannes Víðir Sveinsson,
Austurbergi 18, Reykjavík, varð
bráðkvaddur 3. maí.
Fríða Pálmars Þorvaldsdóttir,
Ásbrún 2, Fellabæ, andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað 19. apríl. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.