Fréttablaðið - 07.05.2006, Blaðsíða 88
32 7. maí 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
4 5 6 7 8 9 10
Sunnudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 FH og Valur mætast í
Meistarakeppni KSÍ í knattspyrnu í
Kaplakrika.
■ ■ SJÓNVARP
11.30 Formúla 1 á Rúv. Bein
útsending frá Þýskalandi.
12.50 Ítalski boltinn á Sýn.
15.50 NBA-úrslitakeppnin á Sýn.
17.50 Spænski boltinn á Sýn.
22.00 NBA-úrslitakeppnin á Sýn.
Öllum er ljós sú staðreynd að
almenn hreyfing er okkur nauð-
synleg og að hreyfing þarf að vera
daglegur þáttur í lífi fólks. Í ljósi
aukinnar offitu, sérstaklega meðal
barna og unglinga, er hreyfingin
enn mikilvægari en fyrr. Regluleg
hreyfing er lykill að bættri heilsu
og gríðarleg forvörn. Hún stuðlar
að lækkun heilbrigðiskostnaðar,
eykur framleiðni, ýtir undir betra
skólastarf, dregur úr fráveru í
starfi, stuðlar að minnkun ofbeld-
is, hvetur til samvinnu og sam-
stöðu og er sem forvörn, ein hag-
kvæmasta og áhrifaríkasta leiðin
að bættri heilsu landsmanna.
Skólaíþróttir í grunnskólum
landsins eru einn af þeim þáttum
sem vega þungt í hreyfingu barna
og unglinga. Markmiðið með skóla-
íþróttum grunnskólanna er að
stuðla að alhliða þroska hvers
nemenda, efla heilsufar hans og
afkastagetu. Göfugt markmið, en
árangurinn því miður ekki sem
skyldi. Ástæðan er ósköp einföld,
fjöldi hreyfistunda nemenda
grunnskólanna í hverri viku er
engan veginn nægur auk þess sem
gæði kennslunnar eru oft á tíðum
ekki nægjanleg.
Kennslan ekkert breyst
Leikfimikennsla í dag er nánast
sú sama og hún var fyrir um 30
árum síðan hvað fjölda kennslu-
stunda varðar. Samkvæmt gild-
andi viðmiðunarstundaskrá í dag
er skylt að veita hverjum nem-
enda að lágmarki þrjár kennslu-
stundir í íþróttum (sund er þar
meðtalið) í hverri viku skóla-
ársins.
Það er síðan val stjórnenda
skóla hvort þeir nýta sér þann
möguleika að bæta við kennslu-
stundum í íþróttum.
Reynslan er því miður sú, að
almennt nýta stjórnendur skóla
sér ekki þennan rétt sinn og í
mörgum grunnskólum landsins er
skilyrðum um lágmarkskennslu
ekki einu sinni uppfyllt! Nemend-
ur grunnskóla fara því að meðal-
tali tvisvar til þrisvar sinnum í
skólaíþróttir í viku hverri, 40 mín.
í senn.
Fyrir um 30 árum var þessi
hreyfing talin nægjanleg til að
uppfylla markmið skólaíþróttanna,
en í dag í ljósi breyttrar þjóðfé-
lagsmyndar og aukins hreyfingar-
leysis krakka og unglinga er þetta
langt frá því að vera nóg. Í raun
má segja að hreyfing krakka og
unglinga í grunnskólum landsins
sé helmingi of lítil því skólaíþrótt-
ir ætti að stunda á hverjum ein-
asta degi skólans a.m.k. klukku-
tíma í senn. En þess í stað er
staðan sú, svo dæmi sé tekið, að
einungis um 20 prósent nemenda í
9. og 10. bekk reyna á sig svo til
daglega þannig að þau mæðist eða
svitni.
Tími á endurskoðun
Það er því orðið löngu tíma-
bært að leikfimikennslan í heild
sinni í grunnskólum landsins verði
tekin til gagngerrar endurskoðun-
ar. Ekki eingöngu hvað fjölda
skipta varðar heldur einnig hvað
innihald varðar.
Ég tel að gamla góða leikfimin,
sem var rauður þráður kennslunn-
ar, hafi þurft að víkja allt of mikið
fyrir boltaíþróttunum. Markmið
skólaíþrótta í grunnskólum lands-
ins á að vera það að hreyfing verði
hluti af lífsstíl nemendanna til
framtíðar.
Íþróttakennarafélag Íslands
(ÍKFÍ) hefur sofnað á verðinum
hvað þetta varðar og ekki fylgt
eftir markmiði sínu sem er m.a. að
vinna að framförum í íþrótta-
kennslu í skólum landsins. Í febrú-
ar sl. gerðu menntamálaráðuneyt-
ið og Kennarasamband Íslands
með sér samkomulag, „Skólastarf
og skólaumbætur – 10 skref til
sóknar“ þar sem m.a. á að endur-
skoða almenn lög grunnskólanna.
Hvergi er þar fjallað sérstak-
lega um almenna heilsurækt í
grunnskólum landsins og ég tel
klárlega að hana vanti þarna inn í
og eigi í raun að vera eitt af þess-
um „skrefum“ í mótun mennta-
stefnu landsins.
Mikilvægt er að ÍKFÍ láti þessa
endurskoðun ekki fram hjá sér
fara og þrýsti á Kennarasamband-
ið jafnt sem menntamálaráðuneyt-
ið um að skólaíþróttum verði gert
jafn hátt undir höfði og öðrum
skyldugreinum, s.s. stærðfræði og
íslensku, því um gríðarlega stóra
hagsmuni er að ræða, eins og líf
og heilsu fólks.
SUNNUDAGSPENNINN GEIR SVEINSSON
Skólaíþróttir grunnskóla
Allir á völlinn
Knattspyrnutímabilið hefst formlega í
kvöld með leik FH og Vals í Meistara-
keppni KSÍ en leikið er á Kaplakrikavelli.
Við mælum með að fólk drífi sig á
völlinn í blíðviðrinu og komi sér í gírinn
fyrir sumarið.
FÓTBOLTI Íslensku eigendurnir eru
að klára sitt sjöunda tímabil sem
meirihluta eigendur þessa forn-
fræga félags og mikið vatn hefur
runnið til sjávar á þessum sjö
árum. Liðið endar einni deild ofar
en þegar lagt var af stað í þetta
mikla ævintýri, öll umgjörð félags-
ins hefur batnað til mikilla muna
en pyngja eigendanna hefur ekki
þyngst að sama skapi heldur hefur
létt verulega á henni.
„Ég get ekki staðfest á þessari
stundu hvað við erum að tapa
miklu á þessu ævintýri. Við höfum
óljósa hugmynd um það og sú tala
er í hundruðum milljóna. Við
munun kynna þetta allt fyrir hlut-
höfunum í félaginu á næstu
dögum,“ sagði Gunnar Þór Gísla-
son, stjórnarformaður Stoke City,
við Fréttablaðið í gær en tilkynnt
var um að Stoke Holding hefði
tekið tilboði Coates seint á föstu-
dag.
Íslendingarnir höfðu hafnað til-
boðum Coates áður þar sem það
hefði ekki skilað þeim neinum
hagnaði en nú virðast þeir hafa
sætt sig við þá staðreynd að ekki
verður um neinn hagnað að ræða
nema þeir séu tilbúnir að dæla enn
meiri peningum í félagið.
„Það er búið að samþykkja
rammann af kaupsamningi og það
þarf að fylla núna út í þennan
ramma og við munum gefa okkur
um tvær vikur í það. Þegar það er
búið kemur í ljós hvort samningar
takast í sjálfu sér. Þrátt fyrir það
er ljóst að við munum selja nema
eitthvað óvænt komi upp á. Það er
ekki mikill munur á þessu tilboði
og því sem kom síðast hjá Coates.
Við ákváðum að selja þar sem við
teljum ekki vera ástæðu til að
halda áfram nema geta gert það af
myndarskap. Það er ekki áhugi að
hálfu hluthafanna að setja þann
pening í dæmið sem þarf til að
gera þetta að þeim myndarskap
sem nauðsynlegur er. Þá er í sjálfu
sér sjálfhætt.“
Gunnar Þór sagði að það væru
blendnar tilfinningar að þessu
mikla ævintýri væri senn lokið.
„Við erum nokkuð ánægðir með
hvað við höfum gert fyrir félagið
þótt það hafi ekki skilað sér í verð-
mætum til eigendanna. Félagið er
allt annað en það var fyrir sjö
árum. Það skiptust á skin og skúr-
ir í þessari rússíbanareið. Það var
gaman þegar vel gekk en ekki eins
gaman þegar illa áraði. Það sem
helst skyggði á eru þessir menn
sem leggja það fyrir sig að verða
knattspyrnustjórar en þeir virðast
ekki vera eins og fólk er flest og
það var ekki alltaf gaman að eiga
samskipti við þá,“ sagði Gunnar
Þór sem tók margar rimmur við
Guðjón Þórðarson og aðra stjóra
Stoke í eigendatíð Íslendinganna.
henry@frettabladid.is
Hundruð milljóna króna
tap hjá Íslendingunum
Íslendingarnir sem eiga Stoke City eru búnir að leggja niður vopnin og hafa
samþykkt að selja Peter Coates hlut sinn í félaginu. Stjórnarformaðurinn segir
tap Íslendinganna á ævintýrinu nema hundruðum milljóna króna.
STÆRSTA STUNDIN Guðjón Þórðarson átti upprunalegu hugmyndina að Stoke-ævintýrinu
og hann náði líka bestum árangri stjóra Stoke í stjórnartíð Íslendinganna þegar hann kom
liðinu upp í 1. deildina. Hann fagnar hér þeim áfanga.
Handbolti
er...
skemmti-
legasta
íþróttin.
Fylkir eða
Grótta/KR? Fylkir.
OC eða One Tree Hill? 24.
Metallica eða Madness? Led Zeppelin.
Eru markmenn bilaðir? Þeir eru
kolbilaðir.
Áttu að vera í landsliðinu? Já.
Skrítnastur í Fylki? Ingólfur Axelsson og
Arnar Þór Sæþórsson.
Kann Siggi að skipuleggja vörn eða er
þetta grís? Siggi er snillingur.
Erfiðasti mótherji? Heimir Örn Árna-
son.
Auðveldasti mótherji? Daníel Berg.
Fyrirmyndir? Mats Olsson, Einar Þor-
varðarson og Kristján Sigmundsson.
Strípur eða náttúrulegt? Þetta eru
100% strípur.
MEÐ HLYNI
MORTHENS
60
SEKÚNDUR
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson og
lærisveinar hans hjá Notts County
rétt sluppu við fall þegar lokaum-
ferð ensku 2. deildarinnar fór
fram í gær. Notts hafnaði í 21. sæti
af 24 liðum og var aðeins þrem
stigum frá fallsæti.
Liðið náði dramatísku jafntefli,
2-2, gegn Bury í gær og kom jöfn-
unarmark Notts á lokamínútu
leiksins en liðið lenti 2-0 undir í
leiknum. - hbg
Enska 2. deildin:
Notts County
slapp við fall
EINBEITTUR Mikið hefur gengið á hjá Guð-
jóni Þórðarsyni og félögum í Notts County í
vetur en liðið slapp við fall að lokum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Watford er í góðri stöðu
eftir fyrri leik liðsins við Crystal
Palace í umspili enska „champ-
ionship-deildarinnar“ sem er
næstefsta deildin þar í landi.
Liðið lagði Palace, 3-0, í gær og
fer því að öllum líkindum í úrslita-
leikinn um sæti í úrvalsdeildinni.
- hbg
Umspil ensku 1. deildarinnar:
Watford í góðri
stöðu
HANDBOLTI Fram kemur á heima-
síðu FH, fh.is, að viðræður séu
hafnar við þá Arnar Geirsson og
Einar Andra Einarsson um að taka
við meistaraflokki karla hjá félag-
inu en sem kunnugt er þá er Atli
Hilmarsson hættur að þjálfa liðið.
FH-ingar eru á leið í uppbygg-
ingarstarf og líklegt að tvímenn-
ingarnir taki við liðinu. Arnar var
aðstoðarþjálfari Atla í vetur og
stýrði því síðan í nokkrum leikjum
með góðum árangri. - hbg
Handknattleikslið FH:
Arnar og Einar
að taka við?
FÓTBOLTI Spænsk blöð greindu frá
því í gær að Manchester United
gerði allt sem það gæti þessa dag-
ana til þess að ganga sem fyrst frá
kaupum á Mahamadou Diarra,
leikmanni Lyon, áður en Real
Madrid stykki í slaginn.
Það er talið líklegt að United sé
til í að greiða franska félaginu 18
milljónir punda fyrir miðjumann-
inn sem þeir sjá sem arftaka Roy
Keane.
Ítalska liðið Inter er einnig
talið hafa áhuga en Diarra ku ekki
vera spenntur fyrir Ítalíu og hall-
ast flestir spekingar að því að
hann sé á leið til Englands.
- hbg
Manchester United:
Berst um þjón-
ustu Diarra
> Valur hjálpar Öllu
Valsmenn hafa hrint af stað söfnun fyrir
leikmann sinn, Öllu Georgijsdóttir, svo
að hún komist til Georgíu ásamt syni
sínum en þar liggur
faðir Öllu fyrir
dauðanum. Alla
hefur ekki séð
föður sinn í
fimm ár og er
ljóst að vel-
unnarar Vals
og aðrir verða að
hafa hraðar hendur
til að koma henni
út þar sem gamli
maðurinn ku ekki
eiga langt eftir. Þeir
sem vilja leggja Val
og Öllu lið er bent
á að kíkja á valur.is
þar sem hægt er að
nálgast allar frekari
upplýsingar.