Fréttablaðið - 08.05.2006, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 8. maí 2006 13
Sveitarfélagið Ísafjarðarbær varð til árið
1996 við sameiningu sex sveitarfélaga á
norðanverðum Vestfjörðum. Þetta voru
Ísafjarðarkaupstaður, Suðureyrarhrepp-
ur, Þingeyrarhreppur, Flateyrarhreppur,
Mosvallahreppur og Mýrahreppur.
Íbúafjöldi 1. des. 2005: 4.109
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002:
Fjöldi íbúa á kjörskrá:
2.801
Fjöldi greiddra atkvæða:
2.354 (84%)
Listi Nýs afls (A)
104 atkvæði - 0 fulltrúa
Listi Framsóknarflokksins (B)
401 atkvæði - 2 fulltrúa
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
810 atkvæði - 4 fulltrúa
Listi Frjálslyndra og óháðra (F)
307 atkvæði - 1 fulltrúa
Listi Samfylkingarinnar (S)
526 atkvæði - 2 fulltrúa
Listi Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs (U)
149 atkvæði - 0 fulltrúa
Meirihlutasamstarf kjörtímabilið
2002-2006 er með Framsóknarflokki
(B) og Sjálfstæðisflokki (D).
Fulltrúar B-lista í bæjarstjórn:
Guðni Geir Jóhannesson
Svanlaug Guðnadóttir
Fulltrúar D-lista í bæjarstjórn:
Halldór Halldórsson
Birna Lárusdóttir
Ragnheiður Hákonardóttir
Ingi Þór Ágústsson
Fulltúi F-lista í bæjarstjórn:
Magnús Reynir Guðmundsson
Fulltrúar S-lista í bæjarstjórn:
Lárus G. Valdimarsson
Bryndís Friðgeirsdóttir
KOSNINGAR 2006
Efstu menn B-lista,
Framsóknarflokks:
1. Guðni Geir Jóhannesson,
bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
2. Svanlaug Guðnadóttir,
bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur
3. Albertína Elíasdóttir, forstöðu-
maður
4. Björgmundur Örn Guðmundsson,
forstjóri
5. Gísli Jón Kristjánsson, skipstjóri
Efstu menn D-lista,
Sjálfstæðisflokks:
1. Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri, Ísafirði
2. Birna Lárusdóttir,
fjölmiðlafræðingur, Ísafirði
3. Gísli H Halldórsson,
fjármálastjóri, Ísafirði
4. Ingi Þór Ágústsson,
hjúkrunarfræðingur, Ísafirði
5. Níels R. Björnsson,
rekstrarstjóri, Ísafirði
Efstu menn Í-lista, sameiginlegs
framboðs Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs, Samfylkingarinnar
og Frjálslyndra og óháðra:
1. Sigurður Pétursson,
sagnfræðingur og kennari
2. Magnús Reynir Guðmundsson,
bæjarfulltrúi
3. Arna Lára Jónsdóttir,
stjórnmálafræðingur og verkefnis-
stjóri
ÍSAFJARÐARBÆR
Lóritín 10 mg töflur. Hver tafla inniheldur 10 mg Loratadin. Notkunarsvið: Lóritín inniheldur virka efnið lóratadín sem hefur kröftuga og langvarandi verkun við algengustu tegundum ofnæmis.
Lyfið er ætlað við frjókorna- og dýraofnæmi, sem og ofnæmi af völdum rykmaura. Varúðarreglur: Gæta þarf sérstakrar varúðar hjá börnum með alvarlega nýrna- og lifrarsjúkdóma. Sjúklingar með
skerta lifrarstarfsemi þurfa minni skammta. Aukaverkanir: Lóritín þolist yfirleitt vel en algengustu aukaverkanirnar eru munnþurrkur og höfuðverkur. Svimi getur einnig komið fyrir. Skömmtun: Ein tafla
af Lóritíni er tekin daglega. Börnum 2–14 ára sem eru undir 30 kg að þyngd nægir hálf tafla á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2ja ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.04
Histasín 10 mg töflur. Hver tafla inniheldur 10 mg Cetirizín. Notkunarsvið: Histasín er ofnæmislyf. Histasín virkar gegn öllum algengustu tegundum ofnæmis, svo sem frjóofnæmi og rykofnæmi.
Histasín er líka notað við ofnæmisbólgum í nefi og ofnæmiseinkennum eins og útbrotum og kláða. Varúðarreglur: Lyfið getur dregið úr viðbragðsflýti og skal það haft í huga við akstur og nákvæmnis-
vinnu. Aukaverkanir: Einstaka sinnum veldur lyfið munnþurrki og syfju. Skömmtun: 1 tafla á dag fyrir fullorðna og börn frá 12 ára aldri. Börnum 6–12 ára sem eru undir 30 kg að þyngd nægir hálf tafla
á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 13.07.04
Það er engin ástæða til að láta sér líða illa
á besta tíma ársins.
Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur. Við hlustum!
Getur verið að þú
sért með ofnæmi?
Lóritín og Histasín
fást án lyfseðils
Byrjar þú að hnerra um leið og allt fer að lifna við á vorin?
Þannig er um marga án þess að þeir átti sig á því að um ofnæmi geti verið að ræða.
SPÁNN Lögregla á Spáni hefur
handtekið fjórtán manns sem hafa
stundað skipulagt smygl á fleiri
tonnum af kókaíni frá Dóminíska
lýðveldinu til Spánar.
Hefur rannsókn málsins staðið
lengi yfir en talið er að samtökin
sem hinir handteknu tilheyra hafi
smyglað megninu af því kókaíni
sem borist hefur til Spánar undan-
farin ár. Komið hefur í ljós að
kókaíni hafði verið flutt með flugi
í sérútbúnum tvöföldum ferða-
töskum.
Hefur þeim tekist að beina
fíkniefnahundum frá með því að
geyma einnig í þeim tiltekna teg-
und hollenskra osta. - aöe
Fjórtán handteknir á Spáni:
Umfangsmikið
kókaínsmygl
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Runólf-
ur Birgisson, bæjarstjóri á Siglu-
firði, skipar fimmta sæti H-list-
ans, lista félagshyggjufólks og
óháðra, í sameinuðu sveitarfélagi
á Siglufirði og í Ólafsfirði. Hann
er jafnframt bæjarstjóraefni list-
ans, þrátt fyrir að hann sé flokks-
bundinn sjálfstæðismaður og hafi
setið í bæjarstjórn Siglufjarðar,
og á Alþingi, fyrir sjálfstæðis-
flokkinn.
„Það vita það allir Siglfirðingar
að ég er sjálfstæðismaður og þó
ég sé nú á lista félagshyggjufólks
og óháðra þá hef ég ekki hugsað
mér að skrá mig úr sjálfstæðis-
flokknum,“ segir Runólfur.
Í sveitarstjórnarkosningunum
fyrir fjórum árum fékk Siglu-
fjarðarlistinn fimm bæjarfulltrúa,
hreinan meirihluta, og kom þar
með meirihluta sjálfstæðis- og
framsóknarflokks frá völdum.
Siglufjarðarlistinn var skipaður
vinstrimönnum og á miðju yfir-
standandi kjörtímabili buðu þeir
Runólfi bæjarstjórastólinn.
„Að þessu sinni var mér boðið
að vera bæjarstjóraefni H-listans
og nú ákvað ég að ganga alla leið og
taka fimmta sætið á listanum, bar-
áttusætið,“ segir Runólfur. - kk
Runólfur Birgisson, bæjarstóri á Siglufirði, er á lista vinstrimanna:
Áfram í Sjálfstæðisflokknum
RUNÓLFUR BIRGISSON Vinstrimenn buðu
Runólfi bæjarstjórastólinn á Siglufirði fyrir
tveimur árum.
AUSTURRÍKI, AP Walter Sucher,
félagi yst á hægri væng austur-
ríska Frelsisflokksins, kvaddi
með Hitlerskveðju á flokksþingi
í Vínarborg í gær.
„Mig langar að ljúka þessari
stuttu ræðu með kveðju sem er í
raun okkar gamla kveðja,“ sagði
hann og uppskar ákaft lófatak
þegar hann sagði „Heil“.
Heinz-Christian Strache, for-
maður flokksins, sagðist ekkert
hafa við þetta að athuga.
„Ég ferðast mikið um vestur-
héröðin og hvar sem ég kem er
mér fagnað með þessu orði,“
sagði Strache.
- gb
Stjórnmálamaður í Austurríki:
Kvaddi með
Hitlerskveðju