Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 19

Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 19
MÁNUDAGUR 8. maí 2006 19 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4 NFS Í BEINNI Á VISIR.IS 35.000 gestir vikulega sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver. Auglýsingasími 550 5000. NFS Í BEINNI Á VISIR.IS 35.000 gestir vikulega sem dvelja í u.þ.b. eina klst. hver. Auglýsingasími 550 5000. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar að leggja áherslu á að veita ungum börnum og fjölskyldum þeirra örugga og fjölbreytta þjón- ustu þar sem áherslan er á val, gæði, árangur og lausnir. Þessi markmið krefjast fjármagns og stuðnings foreldra og þjónustuaðila. Samhliða þessum markmiðum vill Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mæta foreldrum og öðrum skatt- greiðendum á miðri leið með almennri gjaldskrárlækkun um 25% 1. september 2006. Til viðbótar ætlum við að koma til móts við stórar barnafjölskyldur þannig að foreldrar greiði aldrei fyrir fleiri en eitt barna sinna sem dvelja á leikskóla samtímis. Þannig náum við á einfaldan hátt að minnka byrðar stórra barnafjölskyldna. Sannkallað neyðarástand er í borginni varðandi þjónustu við yngstu börnin. Foreldrar sem eru að fara aftur á vinnumarkaðinn eftir fæðingarorlof lenda í miklum hremmingum þar sem þjónusta dagmæðra er af skornum skammti og einungis örfáir leikskólar, oft- ast einkareknir, þjónusta yngstu börnin. Margir foreldrar þurfa að draga úr vinnuframlagi eða fá lengra leyfi frá störfum. Það er sannkölluð tímaskekkja hvað varðar jafnrétti kynjanna að bjóða ekki betri þjónustu en þetta. Fjölskyldu- stefna Sjálfstæðisflokksins boðar uppbyggingu sérstakra smábarna- deilda í hverju hverfi auk þess sem framboð á þjónustu dagforeldra verður aukin með auknum stuðn- ingi borgarinnar. Leikskólinn er fjöreggið í skóla- kerfinu. Lítil miðstýring, mikil fagmennska og náin tengsl við foreldra gera leikskólann að aðlaðandi valkosti fyrir foreldra. Leikurinn og nánd starfsmanna við foreldra eru lykill að þeirri ánægju foreldra sem birtist aftur og aftur í könnunum í Reykjavík. Þessu góða starfi þarf að viðhalda. Foreldrar eiga það til að gleyma hversu mikilvægur leikskólinn er fyrir líðan barns og líðan foreldra, sem eru nánast áhyggjulausir frá börnum sínum við vinnu meiri- hluta dagsins. Byggja þarf áfram á sterkum grunni faglegs starfs leikskólanna og tryggja áfram- haldandi sveigjanleika og fjöl- breytni. Gera þarf átak í net- og tölvuvæðingu leikskóla, bæði til að efla innra starf leikskólanna og auka upplýsingagjöf til foreldra. Samstarf við grunnskólastigið þarf að efla sem viðvarandi sam- starf nú þegar þróunarstarf hefur gengið vel í töluverðan tíma. Foreldrar treysta á þjónustu dagforeldra og leikskólakennara. Án þeirra þrifist ekki það líflega atvinnulíf og sú mikla ásókn í háskólanám sem við höfum vanist. Stjórnendur borgarinnar verða að vera í takt við þá þróun sem á sér stað á vinnumarkaði á Íslandi, þar sem báðir foreldrar velja að vinna mikið. Hlutverk borgarkerfisins er að tryggja gæðastundir barna á meðan þau eru ekki í faðmi foreldra. Þess vegna endurspegla markmið fjölskyldustefnu Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík forgangsröðun í þágu reykvískra barna. Höfundur er með meistara- gráðu í námssálfræði og er í 6. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ódýrari en ekki ókeypis UMRÆÐAN BARNAFJÖLSKYLDUR ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR FRAMBJÓÐANDI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.