Fréttablaðið - 08.05.2006, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 8. maí 2006 3
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
�����������������������
������������������
�������������������������������������������
Þessi ættbálkur er nefndur
einu nafni roðamaur (Tetran-
ynchus), en fjölmargar teg-
undir eru til af honum. Þetta
er sníkjumaur sem komið hefur til
landsins með ávöxtum og plöntum
á sínum tíma og er hann enn að
koma til landsins með vörum.
Maurinn lifir í gróðurhúsum og
í görðum við hús. Hann er oftast
rauður eða rauðgulur að lit, bæði
bolur og fætur og á fótunum eru
burstakennd hár. Kvendýrin eru um
0,4 mm að lengd en karldýrin minni.
Í gróðurhúsum skemmir maurinn
margs konar jurtir og einnig agúrkur,
tómata o.fl.
Á þurrum og heitum sumrum
getur roðamaur valdið tjóni á jurtum
í görðum. Hann fer á stjá á vorin og
má oft finna hann í gluggakistum
mörgum til mikils ama. Þetta eru
kvenmítlar í leit að varpstað. Þær
verpa eggjum sínum á neðra borð
laufblaða. Ungviðið sem skríður
úr eggjunum sýgur næringuna úr
blöðunum og eftir verða hvítleitir
eða brúnleitir blettir á blöðunum
sem síðan visna og falla að lokum
til jarðar. Seinni hluta sumars spinna
maurarnir og þekja þá neðra borð
laufblaðanna með þráðum sínum.
Á haustin skríða þeir í sprungur, rifur
og önnur fylgsni og halda þar kyrru
fyrir, aðallega eru þetta frjóvguð
kvendýr sem lifa veturinn af.
Til varnar þessum dýrum í híbýli
manna er ýmislegt hægt að gera:
Þar sem gróður nær að húsi er
best að grafa um 30-40 cm breiðan
og 30 cm djúpan skurð og setja
jarðvegsdúk og möl í skurð-
inn. Með því að vökva síðan
reglulega í mölina í skurðinum
hverfur roðamaurinn því honum er
mjög illa við mikinn raka og bleytu.
Það er hægt að úða fyrir maurn-
um og eru þá notuð varnarefni, sem
eru með stutta eiturvirkni og hratt
niðurbrot á efninu. Úða skal á veggi
undir gluggum með opnanleg fög
og undir gluggakistur og í gluggakist-
ur innanhúss. Úða skal gróður við
húsvegg eins nálægt veggnum og
mögulegt er því þegar úðað er í jarð-
veg drepast önnur dýr sem þar lifa.
Hægt er að fá límspjöld fyrir skor-
dýragildrur og setja þau í glugga til
að taka við maurnum ef hann kemur
inn.
Í gömlum heimildum er sagt
að notað hafi verið grænsápuvatn
og því úðað á jarðveg við hús og á
veggi.
Maurinn hefur oft skamma við-
dvöl og hverfur alveg þegar tré og
runnar laufgast.
Best er að fá meindýraeyði til
að úða fyrir sig ef fólk telur einu
lausnina að úða. Fólk sem þarf að
fá meindýraeyði skal óska eftir að
fá að sjá starfsskírteini gefið út af
Umhverfisstofnun og athuga einnig
hvort meindýraeyðirinn hafi starfs-
leyfi frá viðkomandi sveitarfélagi.
Heimildir: Upplýsingar og fróð-
leikur um meindýr og varnir 2004,
Meindýr í húsum og gróðri og
varnir gegn þeim 1944. University
of Missouri USA
Grasmítlar – Roðamaur
Grasmaur (Bryolia sp.)
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið
gudmunduroli@simnet.is.