Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 68
8. maí 2006 MÁNUDAGUR28
EUROVISION 2006 GUNNHILDUR A. GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR UM SILVÍU OG KEPPINAUTANA
Anna Vissi og Kate Ryan leiða saman hunda sína
Slagurinn harðnar. Loforðin verða stærri. Anna
Vissi, gríski keppandinn, er nýfarin frá Brussel. Þar
hitti hún að sjálfsögðu Kate Ryan, belgíska kepp-
andann. Þær báru saman bækur sínar og komust
að því að þær ættu margt sameigin-
legt, helst þó áhuga á dýrum. Þær
ræddu meðal annars að para
hundana sína saman í Grikk-
landi. Um það má lesa á
grísku Eurovision-síðunni,
sem fylgir Önnu eftir á
ferðalögum hennar um
Evrópu.
Anna fer áhyggju-
laus í keppnina, hún
á tryggt sæti 20.
maí. Hin sænskætt-
aða Helena tryggði
henni keppnisréttinn,
sem og keppnina í
Aþenu, með sigrinum í fyrra. Svo eru það stóru
löndin fjögur sem þurfa aldrei að hafa áhyggjur,
Þýskaland, Frakkland, Spánn og Bretland. Löndin
hafa ekki náð að setja mark sitt á keppnina
síðustu ár. Borgarstjórinn í Berlín, Ole
von Beust,
spáði á dög-
unum þýska
laginu góðu
gengi. Hann
telur að framlag
þeirra gæti vel
lent í einu af
þremur efstu
sætunum.
Hljómsveit-
armeðlimirnir,
þau Jane Comer-
ford, Olli Dittrich,
Jon Fleming
Olsen, Markus Schmidt og Uwe Frenzel, voru
þó aðeins hæverskari í boði hjá borgarstjór-
anum á dögunum og sögðust aðeins vona
að ná betri árangri en Þjóðverjar náðu í
fyrra. Ætti varla að vera erfitt því Þjóðverjar
vermdu botninn og fengu fjögur stig síðast.
Allur undirbúningur Grikkjanna smellur
saman á næstu dögum. Listrænn stjórn-
andi keppninnar, Akis Stamatiades,
sagði í viðtali við grískt dagblað og
oikotimes.com greinir frá, að kynnir
kvöldsins, Sakis Rouvas, sem varð í
þrjðja sæti með Shake it í hittifyrra,
komi með stæl inn á sviðið í keppn-
unum tveimur. Á undankvöldinu
stígi hann upp úr sviðinu og aðal-
kvöldið komi hann svífandi inn.
Svipað verði með þá grísk-amer-
ísku Mariu Menounos, sem
stjórnar þættinum með honum.
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Epísku hetjurokkararnir í Snow
Patrol svindluðu sér inn bakdyra-
megin með indírokkslagaranum
Run fyrir rúmum tveimur árum.
Sannleikurinn er sá að sveitin
hljómar á þessari nýju plötu sinni
eins og ef Kenny Loggins hefði
stofnað indírokksveit og meik-
að´ða bigtime! Þetta plott getur
ekki klikkað. Þessi plata á eftir að
seljast í milljónum, án efa.
Allar laglínur á þessari plötu
eru þess eðlis að það væri hægt að
syngja þær sem stuðningssöngva
á fótboltaleikjum. Nokkuð gríp-
andi. Segjum bara sem svo að ef
þeir myndu ákveða að bæta Foot-
loose inn sem tökulagi á tónleika-
dagskrána þá myndi það ekki
hljóma svo út úr kú. Já, eða The
Heat is On? Kenny yrði líka veru-
lega þakklátur. Hann hefur ekki
komist í sviðsljósið lengi. Við elsk-
um þig Kenny!
Það er líka þess virði að minn-
ast á textana. Þeir ríma allir á ein-
faldan og kjánalega barnalegan
hátt, en takast samt á alvöru hlut-
um, klaufalega mannlega. Flestir
ættu að geta tengt sig við þá, það
er öruggt. Bestu dæmin um þetta
eru ballaðan ljúfa You Could Be
Happy og sjálfspíslagangan sem
ber nafnið Make This Go on Fore-
ver. Fyrra lagið á eftir að sökkva
verulega langt inn í þjóðarsál
Breta, jafnvel svipað langt og Run
gerði. Fallegt klukkuspil í því og
svoleiðis sætar skreytingar.
Kannski áhrif frá Sufjan Stevens?
Þeir minnast a.m.k. á lag hans Chi-
cago í texta lagsins Hands Open.
Martha Wainright syngur svo í
kúrekalaginu Set the Fire to the
Third Bar. Þið eigið eflaust eftir
að heyra það nokkrum sinnum á
komandi mánuðum.
Alltaf eru íslendingar alls stað-
ar. Það er einhver íslensk stelpa,
Hrafnhildur Halldórsdóttir, sem
syngur í kór í fjórum lögum.
Maður heyrir nú ekkert í henni
svo sem innan um alla hina söng-
fuglana. Samt skemmtilegt.
Ég efast um að það sé til Snow
Patrol aðdáandi í þessum heimi
sem á eftir að verða fyrir von-
brigðum með þessa plötu. Aðrir
verða kannski að nálgast hana
með öðru hugarfari. Að hér sé
sveit að reyna að búa til stærstu
lög í heimi sem hún ætlar svo að
fara og spila fyrir þúsundir manna
um allan heim á tónleikum. Það er
líka akkúrat það sem þeir eiga
eftir að gera. Þessi plata á eftir að
gera þá að einni stærstu indípopp-
sveit Breta. Hvort sem ykkur líkar
betur eða verr.
Birgir Örn Steinarsson
...og svo tóku þeir
yfir heiminn!
SNOW PATROL: EYES OPEN
NIÐURSTAÐA:
Fylgifiskur Final Straw er jafn grípandi og
lagið Run. Hetjuleg og hugljúf á réttum stöð-
um. Coldplay er komið með alvöru andstæð-
ing í keppninni um vinsælustu indípoppsveit
Breta.
Kvikmynd byggð á sjónvarps-
þættinum vinsæla 24 er í burðar-
liðnum. Að sögn Kiefers Suther-
land, sem fer með hlutverk Jacks
Bauer í þættinum, verður myndin
tekin upp í London.
„Við erum að vinna að mynd-
inni. Við erum mjög spennt,“ sagði
Kiefer í spjalli við breska ríkisút-
varpið BBC. „24 var lengi að ná
vinsældum í Bandaríkjunum en
hann varð strax gríðarvinsæll í
Bretlandi svo þess vegna var
ákveðið að halda áfram með hann.
Takk fyrir það, Bretland,“ sagði
hann.
Kiefer hefur leikið í fimm
þáttaröðum af 24 og talið er að
hann hafi samið um að leika í
þremur til viðbótar. Hann fékk
Golden Globe-verðlaunin árið
2002 fyrir hlutverkið. Auk þess
hefur hefur hann verið tilnefndur
til fernra Emmy-verðlauna.
Næst sést Kiefer á hvíta tjald-
inu í myndinni The Sentinel þar
sem Michael Douglas og Kim Bas-
inger fara með hin aðalhlutverkin.
Kvikmynd byggð á
24 í undirbúningi
JACK BAUER Kiefer Sutherland fer með
hlutverk leyniþjónustumannsins Jacks
Bauer sem lendir í hinum ýmsu raunum.
Tískusýning á vegum útskriftar-
nema Listaháskóla Íslands var
haldin föstudaginn var. Helstu
tískuspekúlantar landsins voru
mættir í Lístasafn Reykjavíkur
til að fylgjast með þessum ungu
hönnuðum spreyta sig.
Sýningin einkenndist af slauf-
um, hettum, fallegum tígla-
munstrum og niðurmjóum buxum
með hátt mitti. Þemað var greini-
lega tekið úr tímabilinu í kring-
um 1930-40 og voru öll sniðin
mjög kvenleg.
Förðunin var svört á öllum
fyrirsætunum og hárið látlaust.
Þetta var góð samsetning hjá
unga fólkinu sem á vonandi eftir
að láta til sína taka í framtíð-
inni.
Fatahönnuðir
framtíðarinnar
FALLEGIR LITIR OG SKEMMTILEGT SNIÐ
Ferskjulitaður og fjólublár kjóll úr satín efni.
Girnilegt.FRETTABLAÐIÐ/ANTON
HETTUR ERU ALLTAF HENTUGAR Þessi
skemmtilega doppótta hetta var meðal
sýningagripa.
ÁHUGASAMIR ÁHORFENDUR Fólk skoðaði
flíkurnar vel og vandlega og sumir mynd-
uðu.
ROKK OG RÓL Þessi leður jakki er eins og
klipptur út úr myndinni Grease, en þó í
nýjum búning.
TÍSKUSPEKÚLANTAR HEIMS FYLGDUST MEÐ
Bloggarinn Diane Pernet og erlendur
blaðamaður sitja í fremstu röð.
TÍGLAMUNSTUR ÁBERANDI Skemmtilegir uppháir sokkar og háhælaðir skór.