Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 73
MÁNUDAGUR 8. maí 2006 33
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
5 6 7 8 9 10 11
Mánudagur
■ ■ SJÓNVARP
16.00 Ensku mörkin á Rúv.
18.30 NBA-úrslitakeppnin á Sýn.
20.30 Ítölsku mörkin á Sýn.
21.00 Ensku mörkin á Sýn.
21.30 Spænsku mörkin á Sýn.
22.00 HM 2002 á Sýn. England
gegn Brasilíu.
23.10 Ensku mörkin á Rúv.
KÖRFUBOLTI Verðmætasti leikmað-
ur NBA-deildarinnar, Steve Nash,
og félagar í Phoenix Suns sýndu
fádæma karakter þegar þeir unnu
seríuna gegn Los Angeles Lakers
4-3, eftir að hafa lent 3-1 undir.
Oddaleikur liðanna var aldrei
spennandi því Suns flengdi Lakers,
121-90. „Við spilum ekki betur en
þetta,“ sagði Mike D´Antoni, þjálf-
ari Suns, en þess má geta að
skotnýting Suns í leiknum var 61
prósent. Suns mætir næst hinu
LA-liðinu, Clippers.
Phil Jackson, hinn sigursæli
þjálfari Lakers, var að tapa í
fyrsta sinn á ferlinum í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar. - hbg
NBA-körfuboltinn:
Ótrúleg endur-
koma Suns
FARÐU FRÁ KOBE Steve Nash keyrir hér að
körfunni gegn Kobe Bryant í oddaleiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
GOLF Hin ótrúlega 16 ára golfkona,
Michelle Wie, hafnaði í 35. sæti á
karlamóti sem fram fór í Suður-
Kóreu. Wie komst í gegnum niður-
skurðinn á mótinu en það var í
fyrsta skipti í átta tilraunum sem
henni tókst að ná þeim sögulega
árangri.
Hún náði ekki að fylgja eftir
þeim fína árangri því hún lék loka-
hringinn á tveim yfir pari en
aðeins voru leiknir þrír hringir á
mótinu þar sem slæmt veður
aftraði leik á laugardag. - hbg
Michelle Wie:
Endaði í 35. sæti
MICHELLE WIE Missti dampinn á loka-
hringnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
NFL Hinn goðsagnakenndi leik-
stjórnandi Green Bay Packers,
Brett Favre, er loksins búinn að
taka ákvörðun um að spila áfram
en flestir bjuggust við því að hann
myndi leggja skóna á hilluna eftir
sitt versta tímabil á ferlinum þar
sem hann kastaði boltanum 29
sinnum í hendur andstæðinganna.
„Ég mun spila, gefa allt sem ég
á og ekki tala of mikið um framtíð-
ina,“ sagði Favre sem útilokar
ekki að halda áfram eftir næsta
tímabil en Packers-liðið er ungt og
óreynt. - hbg
Brett Favre:
Spilar áfram
með Packers
FORMÚLA 1 Þýski ökuþórinn
Michael Schumacher fagnaði
sigri í Evrópukappakstrinum
sem fram fór á Nurburgring í
Þýskalandi í gær.
Hann háði mikla og harða bar-
áttu við Spánverjann Fernando
Alonso í keppninni og Schuma-
cher var á eftir fram að síðasta
viðgerðarhléi.
Þá fór Alonso í pyttinn á undan
og Schumacher notaði tækifærið
og byggði upp nægilegt forskot
til að taka sjálfur viðgerðarhlé og
komast út á undan Spánverjan-
um. Felipe Massa varð þriðji og
Kimi Raikkonen fjórði.
„Það kom mér alls ekki á óvart
að þetta skyldi vera mjög jöfn
keppni en ég vissi að við gætum
staðið jafnfætis Renault í dag,“
sagði Schumacher sem var að
sigra í Formúlu 1 í 86. skipti. „Það
var erfitt að keyra á eftir Alonso
lengi vel enda mikill vindur.
Fernando keyrði mjög hart en
sem betur fer gátum við haldið
sama hraða.“ - hbg
Hörkuspenna í Formúlunni í gær:
Schumacher sigraði
á heimavelli
Í BANASTUÐI Þrátt fyrir 86 sigra í Formúlu 1-keppnum fær Michael Schumacher seint leið á
því að fagna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES