Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 74
8. maí 2006 MÁNUDAGUR34
Fyrirliðinn verð-
ur að stíga ræki-
lega upp í sumar.
Var góður í fyrra
en hreinlega þarf
að vera betri í ár
og sjá um marka-
skorun hjá liðinu.
Eftir að hafa misst Hörð Sveins-
son til Danmerkur, sem var marka-
hæstur Keflvíkinga í fyrra með
níu mörk, verður Guðmundur að
drífa liðið áfram með mörkum í
kringum tuginn.
LYKILMAÐURINN
Gummi Steinars
Efnilegasti leikmaður Færeyja kom
til Keflavíkur í fyrra og sýndi strax
að nokkuð er í hann spunnið. Hefur
leikið vel á undirbúningstímabilinu
og hefur hæfileika til að skapa hluti
upp úr engu. Spennandi leikmaður.
FYLGSTU MEÐ....
Simun Samuelsen
Vörnin:
Fengu Geoff Miles og hafa
hinn gríðarlega sterka Guð-
mund Mete í miðverðinum.
Vörn Keflavíkur var hriplek í
fyrra og fékk á sig 31 mark,
það þarf að laga auk þess
sem vörnina skortir hraða.
Sóknin:
Guðmundur Steinarsson verður að
finna fjölina eftir að Keflavík missti
Hörð Sveinsson. Mjög vel mannað
lið fram á við en flestir framherj-
arnir svipaðir og frekar stuttir í
annan endann.
| 5. SÆTI | KEFLAVÍK
LANDSBANKADEILDIN 2006
LEIKMANNAHÓPURINN
MARKMENN:
Ómar Jóhannsson
Magnús Þormar
VARNARMENN:
Branislav Milicevic
Geoff Miles
Guðmundur Viðar Mete
Issa Sheikh Abdulkadir
Badui Farah
Ólafur Þór Berry
Guðjón Árni Antoníusson
Garðar Eðvaldsson
Ragnar Magnússon
Þorsteinn Atli Georgsson
MIÐJUMENN:
Hólmar Örn Rúnarsson
Jónas Guðni Sævarsson
Kenneth Ingemar Gustafsson
Símun Eiler Samuelsen
Einar Orri Einarsson
Hallgrímur Jónasson
Baldur Sigurðsson
SÓKNARMENN:
Þórarinn Brynjar Kristjánsson
Stefán Örn Arnarson
Guðmundur Steinarsson
Magnús Sverrir Þorsteinsson
Davíð Örn Hallgímsson
Þorsteinn Þorsteinsson
Daniel Severino
KOMNIR: Magnús Sverrir Þorsteins-
son (frá Grindavík), Þórarinn Brynj-
ar Kristjánsson (frá Þrótti), Stefán
Örn Arnarson (frá Víking R.), Badui
Farah, Geoff Miles, Daniel Severino.
FARNIR: Brian O´Callaghan (til Eng-
lands), Ásgrímur Albertsson (í HK),
Michael Johansson (til Englands),
Gestur Gylfason (Njarðvík), Hörður
Sveinsson (til Silkeborg).
Markið:
Ómar Jóhannsson hefur sannað sig sem góður
markmaður en þarf að sýna stöðugleika. Hafa
góðan markmann í Magnúsi Þormar á bekknum.
ÞJÁLFARINN
Tók við í fyrra eftir að Guðjón
Þórðarson hætti með liðið. Kom á
óvart með góðum árangri og því
pressa að fylgja þeim árangri
eftir í ár.
Kristján Guðmundsson
Miðjan:
Simun Samuelsen hefur verið mjög sterkur hjá Kefla-
vík og með hina baneitruðu Hólmar Örn Rúnarsson og
Jónas Guðna Sævarsson, einn vanmetnasta leikmann
deildarinnar, kemur miðja liðsins til með að vera sterk.
Bekkurinn:
Bekkurinn er afar sterkur hjá Keflvíkingum
og mun breiddin hjálpa liðinu í toppbarátt-
unni í sumar. Margir nýir menn eiga eftir að
koma inn sem styrkja liðið svo um munar. Líklegt byrjunarlið 4-4-2
Guðjón Antoníusson Guðmundur Mete Kenneth Gustafsson
Ómar Jóhannsson
Branislav Milisic
Baldur SigurðssonJónas Guðni Sævarsson
Simun Samuelsen
Magnús Sverrir Þorsteinsson Guðmundur Steinarsson
Hólmar Örn Rúnarsson
LANDSBANKADEILDIN „Þessi spá
kemur ekkert á óvart, okkur er
yfirleitt spáð í
kringum þetta
sæti. Við höfum
verið í því að
lenda ofar en
spáin segir til
um, til að mynda
í fyrra, en ég
skil þetta vel. Ég
tel okkur ekki
vera með síðri
leikmannahóp
en þessi fjögur
lið sem er spáð
fyrir ofan okkur.
Hinum liðunum
er eflaust spáð
þarna af gömlum vana og eru
kannski með stærri nöfn, en við
erum til alls líklegir. Stefnan hjá
okkur er eitt af þremur efstu sæt-
unum,“ sagði Guðmundur Stein-
arsson, fyrirliði Keflavíkur.
„Liðsheildin er okkar sterkasta
hlið. Ákveðinn kjarni í hópnum er
búinn að spila lengi saman auk
þess sem útlendingarnir hjá okkur
voru margir hverjir í fyrra. Það er
mjög mikill styrkur fyrir okkur
þar sem þeir þurfa ekki að aðlag-
ast lífinu né boltanum. Það hefur
sýnt sig að það tekur oft sinn
tíma,“ sagði Guðmundur.
Keflavík er með marga erlenda
leikmenn innan sinna raða, en þrír
nýir hafa bæst í hópinn, Budiah
Farah og Daniel Severino, auk
Geoff Miles sem spilaði með
Haukum í fyrra. Jónas Guðni Sæv-
arsson verður einn af lykilmönn-
um liðsins í sumar og Guðmundur
sparar ekki stóru orðin um félaga
sinn. „Jónas er vanmetnasti leik-
maður deildarinnar. Hann vinnur
ótrúlega vel, frábær leikmaður,“
sagði Guðmundur sem viðurkenn-
ir að einhver pressa sé til staðar á
honum eftir að Hörður Sveinsson
fór. „Ég þarf jafnvel að skila
aðeins meiru en í fyrra, ég finn
fyrir því.” - hþh
Við erum til alls líklegir
Fréttablaðið og Sýn spá Keflavík 5. sæti í Landsbankadeildinni í sumar. Fyrirlið-
inn Guðmundur Steinarsson segir að liðið stefni á eitt af þremur toppsætunum.
HVAÐ GERIR KRISTJÁN? Kristján Guð-
mundsson fékk að stýra Keflavík frekar
pressulaust í fyrra en nú er krafa á hann
um árangur.
SPÁIN
1 ?
2 ?
3 ?
4 ?
5 Keflavík 92
6 Fylkir 69
7 Grindavík 46
8 Víkingur 41
9-10 Breiðab. 32
9-10 ÍBV 32
HANDBOLTI Gunnar fór í uppskurð
á öxl í júlímánuði í fyrra en fékk
tvisvar sýkingu í skurðinn og
þurfti tvo uppskurði til viðbótar
til að ráða bót á því. Gunnar hefur
verið með eindæmum óheppinn
með meiðsli en þegar hann hafði
náð sér af þessu tóku sig upp ýmis
minni meiðsli sem héldu skyttunni
frá í enn lengri tíma.
„Þetta hefur gengið alveg
hrikalega hjá mér. Ég var frá í
hálft ár eftir aðgerðina en þar með
er ekki öll sagan sögð. Minni
meiðsli tóku sig upp eftir það og
því hefur þetta verið mjög erfitt
fyrir mig, ég missteig mig illa,
reif vöðva og meiddist í baki. Ég
gæti haldið áfram endalaust,“
sagði Gunnar Berg við Fréttablað-
ið. Líkur eru á því að hann yfirgefi
Kronau eftir tímabilið enda staða
hans ekki vænleg hjá liðinu.
„Ég er orðinn frekar pirraður á
stöðunni hérna, það er ekki mikill
skilningur fyrir þessu. Annað-
hvort ertu klár eða ekki. Ég hef
nánast ekkert komist í liðið síðan
ég náði mér að fullu, ég er góður
af meiðslunum í dag en skortir
leikæfingu. Það verður bara að
koma á undirbúningstímabilinu
fyrir næsta tímabil, ég sé ekki
fram á að spila mikið það sem eftir
er af þessu tímabili. Það er ekki
auðvelt að komast í liðið hér auk
þess sem þjálfarinn hefur varla
tíma til að setja mig inn í hlutina
þegar svona skammt er eftir af
mótinu. Auðvitað er maður hund-
fúll út í þjálfarann en maður verð-
ur að sjá þetta frá hans sjónarmiði
líka, hann græðir ekkert á því að
koma mér í smá æfingu núna,“
sagði Gunnar sem er orðinn lang-
þreyttur á stöðu sinni.
„Ég verð að viðurkenna að
þetta hefur ekki verið gaman og
ég er langt frá því að vera sáttur.
Mér líður eins og ég sé farþegi í
liðinu, ekki bara í leikjum heldur
líka á æfingum. Það er líklega
alveg eins gott að breyta bara um
umhverfi í stað þess að standa í
þessu,“ sagði Gunnar og viður-
kennir að eiga nokkra möguleika í
stöðunni.
„Ég verð áfram úti en hvort það
verður í Þýskalandi verður bara
að koma í ljós, það er ýmislegt í
stöðunni. Þónokkur lið hafa verið í
sambandi við mig en ekkert bita-
stætt í 1. deild í Þýskalandi en ég á
nokkra kosti sem er auðvitað mjög
gott. Það er ljóst að þá myndi ég
ganga til liðs við lakara lið. Það er
auðvitað aðalmálið að spila og hafa
gaman af íþróttinni. Maður verður
ekki ríkur af því að spila hand-
bolta, nema kannski þeir allra
bestu,“ sagði Eyjapeyinn sem spil-
aði með ÍBV og Fram á Íslandi
áður en hann reyndi fyrir sér í
atvinnumennskunni. Hann dvaldi
hjá Paris St. Germain og hélt síðan
til Wetzlar áður en hann gekk til
liðs við Kronau.
hjalti@frettabladid.is
Dæmalaus meiðslasaga
Handboltakappinn Gunnar Berg Viktorsson hefur ekki átt sjö dagana sæla í
Þýskalandi að undanförnu. Gunnar spilar með Kronau/Östringen en miklar
líkur eru á því að hann fari frá liðinu með það fyrir augum að spila meira.
EKKI Á LEIÐ HEIM Þó að Gunnar Berg Viktorsson muni væntanlega yfirgefa herbúðir Kron-
au/Östringen er hann ekki á leið heim en nokkur þýsk félög hafa sýnt honum áhuga.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BOX Einn vinsælasti hnefaleika-
maður heims, Oscar de la Hoya,
sneri aftur í hringinn um helgina
eftir 18 mánaða fjarveru. Mótherji
hans var hinn öflugi Ricardo
Mayorga og var fyrir fram búist
við jöfnum bardaga.
Því fór víðs fjarri því De la
Hoya setti á svið eina flottustu
sýninguna á sínum ferli og gjör-
samlega lamdi Mayorga sundur
og saman og rotaði hann að lokum
i sjöttu lotu.
„Þetta er einn af mínum fimm
bestu bardögum,“ sagði himinlif-
andi De la Hoya eftir bardagann
en Mayorga hafði úthúðað honum
fyrir bardagann og fyrir það fékk
hann að blæða í hringnum.
Mayorga leit strigann í fyrsta sinn
í návígi eftir aðeins 30 sekúndur
þegar De la Hoya landaði tveim
mögnuðum vinstri krókum.
„Ég verð eiginlega að þakka
Mayorga fyrir að koma mér í
stemningu með öllu því sem hann
sagði um mig og mitt líf fyrir bar-
dagann. Það kveikti í mér og hjálp-
aði mér að mæta enn beittari en
ella í hringinn.“
De la Hoya fer nú í að skipu-
leggja lokabardaga sinn á ferlin-
um sem verður að öllum líkindum
gegn Floyd Mayweather í sept-
ember. Eftir það ætlar hann að
skipuleggja hnefaleikaviðburði
líkt og sjálfur Don King.
- hbg
Hörkubardagi í boxinu:
De la Hoya fór
á kostum
REFSARI De la Hoya lét Mayorga blæða
fyrir að hafa verið með dónaskap í hans
garð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Íslendingarnir í þýska
handboltanum létu mikið að sér
kveða rétt eins og venjulega um
helgina. Logi Geirsson var marka-
hæstur í liði Lemgo sem sigraði
Melsungen, 30-18, en Logi skoraði
sex mörk og þar af tvö úr víti.
Ásgeir Örn Hallgrímsson var
næstmarkahæstur hjá Lemgo með
fjögur mörk.
Alexander Peterson fór á kost-
um í liði Grosswallstadt sem sigr-
aði Minden, 30-26. Alex skoraði tíu
mörk, þar af tvö úr víti, og Einar
Hólmgeirsson bætti við tveim
mörkum fyrir Grosswallstadt.
Snorri Steinn Guðjónsson fann sig
ekki gegn sínum gömlu félögum
og skoraði eitt mark úr vítakasti.
Guðjón Valur Sigurðsson skor-
aði átta mörk, þrjú úr vítum, fyrir
Gummersbach og Róbert Gunn-
arsson fimm þegar liðið lagði
Pfullingen, 28-27. Þórir Ólafsson
skoraði tvö mörk fyrir Lubbecke
sem lagði Wetzlar, 32-26. Róbert
Sighvatsson lék ekki með liði
Wetzlar í leiknum.
Magdeburg lagði síðan Nord-
horn í gær, 35-28. Arnór Atlason
komst ekki á blað hjá Magdeburg
en Sigfús Sigurðsson skoraði eitt
mark. - hbg
Þýski handboltinn:
Logi og Ásgeir
markahæstir
SJÓÐHEITIR Íslendingarnir hjá Lemgo, Logi
Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, gera
það gott þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÖRG HAGEMANN