Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. maí 2006 BRUNAVARNIR „Í ljósi brunans að Mýrum gerðum við okkur ljóst að við þurfum að vinna hættumat fyrir hvert og eitt einasta þeirra stóru sumarhúsasvæða á landinu enda er gríðarleg hætta á ferð ef slíkur bruni verður í nágrenni slíkra staða,“ segir Björn Karlsson bruna- málastjóri. Þrátt fyrir að umfang sinubrun- ans á Mýrum fyrr í vor hafi verið með eindæmum hér á landi hafa slökkviliðsmenn og fleiri lýst yfir áhyggjum ef svipaður bruni yrði nálægt fjölmennum sumarhúsa- svæðum á borð við þær í Skorradal, Grímsnesi eða á Flúðum. Hefur Brunamálastofnun þegar fundað vegna málsins og fyrirhugað er að útbúa sérstakt hættumat fyrir hvert og eitt svæði. „Bruninn á Mýrum kom okkur öllum í opna skjöldu og það var margt sem við lærðum þar,” segir Björn. „Þó aldrei hafi annar eins bruni komið upp áður verðum við að gera ráð fyrir að svo geti orðið og það nálægt byggðum. Þess vegna hefjum við þetta starf, til að vera eins vel undirbúnir og hægt er þegar og ef slíkt gerist aftur, og tökum meðal annars sérstaklega á vinsælum sumarhúsasvæðum.“ - aöe BRUNINN AÐ MÝRUM Stærð og umfang sinubrunans að Mýrum fyrr í vor kom slökkviliðs- mönnum í opna skjöldu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Brýnt að endurskoða slökkvistarf á mörgum svæðum eftir brunann að Mýrum: Sumarhúsasvæði í hættumat Sýknaður vegna ölvunaraksturs Karlmaður var sýknaður af ákæru um ölv- unarakstur fyrir Héraðsdómi Suðurlands þar sem engin óyggjandi gögn er sönnuðu sekt mannsins komu fram fyrir rétti. Er um áfellisdóm yfir lögreglu að ræða enda var rannsókn ábótavant að mati dómara. DÓMSMÁL Máttu selja bílskúr Eigendum bílskúrs að Kambaseli í Reykjavík var heimilt að selja bílskúr sinn er tilheyrði eign þeirra til annarra en íbúa húsfé- lagsins samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Var það mat dómsins að aðrir íbúar hefðu ekki átt forkaupsrétt á eigninni. DÓMSMÁL Flutningafyrirtækið Flytjandi var í gær dæmt til greiðslu 3,4 milljóna króna í skaða- bætur til handa karlmanni sem varð fyrir vinnuslysi við störf og hlaut varanlega örorku af. Átti slysið sér stað fyrir ára- mótin 1999 þegar viðkomandi ók lítilli rafknúinni trillu á lóð fyrir- tækisins. Rann hún til vegna ísing- ar og bleytu og slasaðist maðurinn við. Reyndist trillan biluð við skoð- un Vinnueftirlitsins auk þess sem maðurinn var aðeins sextán ára gamall þegar slysið varð og hafði því engin réttindi á tækið. - aöe Fékk bætur vegna vinnuslyss: Vinnuveitandi bar ábyrgð MATVÆLAEFTIRLIT Alls fimm sýni af 77 alls stóðust ekki viðmiðunar- reglur Umhverfisstofnunar um örverur í unnun kjötvörum sam- kvæmt eftirlitsverkefni stofnun- arinnar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Eru það um sex prósent allra sýna en niðurstöðurnar eru talsvert betri en fyrir tveimur árum þegar sams konar athugun fór fram. Þá reyndust þrettán prósent alls kjöt- áleggs yfir leyfilegum mörkum en aðeins 4,5 prósent nú. - aöe KJÖTSKROKKAR Ýmsar kjötvörur eru afar viðkvæmar og mengast auðveldlega. Mikilvægt er að hafa góða kælingu á slíkum vörum. Örverur í kjötvörum: Sex prósent sýna jákvæð Stjórnarskráin 10 ára Þess var minnst í Suður-Afríku í gær að rétt tíu ár eru liðin síðan fyrsta stjórnarskrá landsins eftir afnám aðskilnaðarstefn- unnar gekk í gildi. Thabo Mbeki forseti, fyrirrennari hans Nelson Mandela, Des- mond Tutu biskup og fleiri tignargestir tóku þátt í hátíðardagskrá af þessu tilefni í Höfðaborg. SUÐUR-AFRÍKA NÁM AR GU S / 0 6- 02 66 SAMHLIÐA STARFI Umsóknarfrestur er til 10. maí! Nánari upplýsingar á www.endurmenntun.is og í síma 525-4444

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.