Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 12
 9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR DAGVISTUN „Það er mjög brýn þörf fyrir fleiri pláss fyrir börn stúd- enta á aldrinum sex mánaða til tveggja ára. Úr henni er verið að leysa,“ segir Þórlindur Kjartans- son, formaður stjórnar Félags- stofnunar stúd- enta, um fyrir- hugaða breytingu á leik- skólanum Leik- garði. Breytingin felst í því að Félagsstofnun yfirtekur rekst- ur Leikgarðs af Reykjavíkurborg 1. september næstkomandi. Leikskólinn hefur tekið inn börn á aldrinum tveggja til sex ára en við breytinguna verður aldurshópurinn lækkaður. Þórlindur segir að ummæli Sig- rúnar Birgisdóttur aðstoðar- leikskólastjóra um brotthvarf barna úr skólanum séu stórlega orðum aukin, en hún hefur sagt að allt að helmingur foreldra sem eiga börn í skólanum hafi óskað eftir flutningi á aðra leikskóla. Þórlindur segir að eftir að tilkynnt hafi verið um breytinguna hafi ellefu beiðnir um flutning barna borist en plássin séu 68. „Það er forgangsmál að leysa úr þeirri þörf sem er til staðar hjá okkar stúdentum,“segir Þórlindur. „Leikgarður er inni á okkar stúd- entagörðum og við viljum hafa þjónustu okkar þar. Með því að yfirtaka reksturinn erum við að tryggja börnum stúdenta gæslu, bæði yngri aldurshópunum og hinum eldri.“ - jss ÞÓRLINDUR KJARTANSSON Breyting á aldurshópi barna á Leikgarði: Verið að leysa úr brýnni þörf LEIKSKÓLINN LEIKGARÐUR Formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta segir að ummæli Sigrúnar Birgisdóttur aðstoðarleikskólastjóra um brotthvarf barna úr skólanum séu stórlega orðum aukin. MENNTAMÁL Alls hefur þrettán milljónum króna verið úthlutað úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir næsta skólaár en 54 skólar lögðu fram umsóknir um styrki að þessu sinni. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra úthlutaði styrkjunum að höfðu samráði við ráðgjafarnefnd og hlaut Hjallastefnan hæsta styrk- inn að þessu sinni; eina milljón króna til þróunar kynjanámskrár. Álftanesskóli hlaut 700 þúsund til þróunar lýðræðislegra vinnu- bragða með aðferðum uppeldis til ábyrgðar. Tilgangurinn með úthlutun þessari er að efla nýj- ungar og nýbreytni í skólastarfi grunnskóla landsins. - aöe ÁLFTANESSKÓLI Hlaut næsthæsta styrkinn úr Þróunarsjóði grunnskóla fyrir næsta skólaár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þróunarsjóður grunnskóla: Þrettán millj- ónum úthlutað STJÓRNMÁL Ný reglugerð hefur verið gefin út varðandi svokallaða þjónustusamninga ríkisins en gerðar eru ríkari kröfur en hingað til hefur verið um faglegan undir- búning slíka samninga. Áréttað er að öll innkaup á grundvelli slíkra samninga falli undir lög og reglur um opinber inn- kaup og sæti almennu útboði sé um tiltekna lágmarksupphæð að ræða. Margir af stærstu og mikilvæg- ustu samningum ríkisins eru þjón- ustusamningar við einkafyrirtæki um rekstur hjúkrunarheimila, menntastofnana og um sjúkra- flutninga svo fátt eitt sé nefnt. - aöe Þjónustusamningar ríkisins: Skerpt á helstu reglum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.