Fréttablaðið - 09.05.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 09.05.2006, Síða 16
 9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR16 Ákæruvaldið gerir kröfu um að Jónas Garðarsson verði dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi, vegna sjóslyss á Viðeyjar- sundi sem varð í september í fyrra. Jónas Garðarsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, neitaði því staðfastlega að hafa stýrt skemmtibátnum Hörpu þegar hann steytti á Skarfaskeri í september í fyrra með þeim afleiðingum að Friðrik Á. Hermannsson og Matt- hildur V. Harðardóttir létu lífið. Aðalmeðferð málsins lauk í gær en Jónas er ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á siglingalögum. Hann viðurkenndi að hafa drukkið rauðvín og gin meðan á siglingunni stóð en rúmlega eitt prómill af áfengi mældist í Jónasi tæplega tveimur og hálfum tíma eftir að slysið varð. Fyrir dómi sagðist Jónas hafa „orðið við beiðni Friðriks um að leyfa Matthildi að stýra bátnum“, en framan af ferðinni hafði Jónas verið við stjórnvölinn. Hann var eigandi bátsins og eini maðurinn um borð sem var með réttindi til þess að stýra bátnum. Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík komst að þeirri niður- stöðu að Jónas hefði verið við stýri bátsins þegar hann steytti á Skarfa- skeri. Áverkar sem hann hlaut á læri og úlnliðum þóttu benda til þess að hann hefði stýrt bátnum, auk þess sem skemmdir á innrétt- ingum við stýrið þóttu styðja þá kenningu lögreglu. Matthildur slapp ómeidd úr árekstrinum og sagði réttarmeina- fræðingur fyrir dómi að afar „ólík- legt væri að hún hefði sloppið svo vel ef hún hefði verið við stýrið þegar slysið varð“. Hún drukknaði þegar báturinn sökk skömmu eftir áreksturinn. Dómarar sögðu túlk finnska réttarmeinafræðingsins ekki hæfan til starfans vegna tengsla sinna við Jónas, en í upphafi átti Borgþór Kjærnested að starfa sem túlkur, en hann var fyrir nokkrum árum náinn samstarfsmaður Jónas- ar. Við skýrslutöku hjá lögreglu, sem spiluð var í dómssal í gær, sagðist ellefu ára gamall sonur Jónasar ekki hafa vitað hver hefði verið við stýrið þegar báturinn steytti á skerinu þar sem hann var sofandi niðri í bátnum þegar slysið varð. Hann sagði pabba sinn hafa verið við stýrið eftir áreksturinn og framan af bátsferðinni en hann gat ekki greint frá því hver hefði stýrt bátnum þegar hann steytti á skerinu. Hann greindi lögreglu- mönnum frá því að pabbi sinn væri „alltaf við stýrið í bátsferðum á skemmtibátnum“. Kröfurnar í málinu nema sam- tals tæplega þrjátíu milljónum króna. Tveir synir Matthildar fara fram á tíu milljónir króna í bætur auk einnar milljónar í útfarar- kostnað. Hæstu kröfuna um bætur gerir sonur Friðriks en hún nemur rúmlega tólf milljónum króna. Réttu tækin í þrifin Nilfisk-ALTO háþrýsti- dælur á tilboðsverði Nilfisk-ALTO C 100 Þrýstingur: 100 bör Vatnsmagn: 440 l/klst. 6.888 kr. Nilfisk-ALTO P 150 X-TRA Þrýstingur: 150 bör Vatnsmagn: 610 l/klst. 48.888 kr. Vortilboð RVNilfisk-ALTO háþrýstidælur R V 62 06 B Bjarnþór Þorláksson bílstjóri RV Tilboðið gildir út maí 2006 eða meðan birgðir endast. BÁTURINN HÍFÐUR UPP Skemmtibáturinn Harpa fórst á Viðeyjarsundi úti fyrir Reykja- vík í fyrra. Hann var 9,9 metra langur af gerðinni Silksö, smíðaður í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/ TEITUR TÍMAÁS ATBURÐA FRÁ ÁREKSTRI TIL BJÖRGUNAR Á SLYSSTAÐ ■ 01.38 Skemmtibáturinn Harpa steytir á Skarfaskeri. Friðrik lætur lífið á innan við mín- útu vegna alvarlegra brjóstholsáverka sam- kvæmt skýrslu réttarmeinafræðings. Jónas tví- lærbrotnar og kona hans slasast mikið, brýtur tíu rif og lunga fellur saman. ■ 01.49 Matthildur hringir í neyðarlínuna. Getur ekki upplýst um hvar slysstaðurinn er. Eiginkona Jónasar ræðir einnig við starfsmann neyðarlínunnar. Erfiðlega gengur að fá staðfest hvar slysið varð. Í kjölfarið fylgja fjögur sím- töl frá eiginkonu Jónasar þar sem hún ítrekar beiðni um hjálp og leggur áherslu á að bátur- inn sé að sökkva. ■ 01.54 Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra fær boð um slysið en á þessum tíma liggur ekki fyrir hversu alvarlegt það er. ■ 01.58 Skemmtibátnum er siglt af skerinu á fjögurra til sjö mílna hraða. Jónas stýrir þá bátnum. ■ 02.04 Sent er út neyðarútkall til björgunar- sveita. SMS-skilaboð með orðunum „bátur á reki, grunur um ölvun“ sent til björgunarsveit- ar- og lögreglumanna. ■ 02.05 Jónas Garðarsson hringir og ítrekar beiðni um hjálp. ■ 02.06 Skemmtibáturinn veltur. Eiginkona Jónasar hringir og segir að „tvö séu dáin“, og á þar við Friðrik og Matthildi. Þetta var sjötta símtalið til neyðarlínunnar. Matthildur, sem slapp nánast ómeidd úr árekstrinum, drukknar þegar bátnum hvolfir. Fjórum sinnum í viðbót er hringt í neyðarlínuna og beiðni um aðstoð er ítrekuð. ■ 02.10 Björgunarbáturinn Gróa Pétursdóttir kemur á slysstað. ■ 02.23 Báturinn á hvolfi. Jónas er hálfur ofan í sjónum en eiginkona hans og sonur komust á kjöl. Jónas heldur í hönd konu sinnar meðan þau bíða hjálpar. ■ 02.24 Björgunarskipið Ásgrímur Björnsson kemur á slysstað. ■ 02.35 Lögregla og slökkvilið kölluð til. Lög- reglumenn fara á slysstað. Ekki hafa enn borist upplýsingar frá fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglu- stjóra til lögreglunnar í Reykavík um hversu alvarlegt slysið er. Lögreglumenn hefja strax aðgerðir sem miða að því að velta bátnum við, til þess að komast að Friðriki og Matthildi sem eru inni í bátnum. Það tekst í tvígang en bátur- inn snýst jafnóðum við aftur. ■ 02.42 Lögreglan kallar til þyrlu Landhelgis- gæslunnar. ■ 03.11 Jónasi, eiginkonu hans og syni er bjarg- að. ■ 03.28 Báturinn sekkur. JÓNAS GARÐARSSON Jónas sést hér horfa inn í bát sem er sambærilegur þeim er fórst á Viðeyj- arsundi. Báturinn var skoðaður gaumgæfilega í gær í tengslum við málið. fréttir og fróðleikur Neitar staðfastlega að hafa verið við stýrið VETTVANGSFERÐ VIÐ AÐALMEÐFERÐ Sækjandi, verjandi og dómarar ásamt ákærða, Jónasi Garðarssyni, fóru niður í smábátahöfn Snarfara í gær og skoðuðu bát sem er sambærilegur við skemmtibátinn Hörpu sem fórst á Viðeyjarsundi í september í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Evran, sameiginlega Evrópumyntin, er nú mjög til umræðu á Íslandi í tilefni af þeim hremm- ingum sem gengissveiflur krónunnar valda íslensku efnahagslífi. Hvernig kom myntbandalagið til? Árið 1988 hóf störf sérskipuð nefnd, sem leiðtogar aðild- arríkja ESB fólu það hlutverk að vinna skýrslu um það hvernig mögulegt væri að koma í framkvæmd efnahags- og myntbandalagi með sameiginlegri mynt. Hver voru aðildarskilyrðin? Til að skapa for- sendur fyrir sameiginlegri peningamálastefnu fyrir allt tilvonandi evrusvæðivoru ákveðin nokkur grunnskilyrði sem þau lönd þyrftu að uppfylla sem vildu gerast aðilar (síðar kölluð „Maastricht-skilyrðin“): a) Verðbólga má ekki vera meira en 1,5 pró- sentustigum hærri en meðaltal í þeim þremur aðildarlöndum þar sem verðbólgan er lægst. b) Skuldir ríkissjóðs mega ekki vera meiri en sem nemur 60 prósentum af vergri landsfram- leiðslu. c) Fjárlagahalli má ekki verða meiri en 3% af vergri lands- framleiðslu. d) Gengi gjaldmiðils viðkomandi lands verður að hafa haldist stöðugt síðustu tvö árin fyrir inngöngu í EMU. Stöðugleikasáttmálinn svokallaði, sem bætt var við árið 1997, hafði að markmiði að skjóta frekari stoðum undir þessi skilyrði. Hvenær komst EMU til framkvæmda? Þriðji og síðasti áfangi EMU kom til fram- kvæmda árið 1999. Þá var gengi gjaldmiðla ESB-ríkjanna 11, sem þá uppfylltu Maastricht- skilyrðin og sóttust eftir þátttöku, bundinn föstu, óafturkræfu gengi við evruna. Evran var tekin upp sem rafrænn gjaldmiðill og Seðlabanki Evrópu (ECB) tók til starfa. Í samráði við seðlabanka aðildarríkjanna tekur Seðlabanki Evrópu ákvarðanir um stýrivexti á evru-svæðinu, með verðbólgu- markmið í fyrirrúmi. Í ársbyrjun 2002 voru evru-seðlar og -mynt sett í umferð í aðildarlöndum EMU, sem þá voru orðin 12. Íbúar þeirra eru um 300 milljónir. Þrjú ESB-lönd standa eftir sem áður utan EMU, hvert á sínum forsendum, en þau eru Bretland, Danmörk og Svíþjóð. Ríkin tíu sem gengu í ESB árið 2004 eru öll skuldbundin til að taka upp evruna þegar þau hafa uppfyllt skilyrðin. Heimild: Auðunn Arnórsson o.fl.: Ísland og Evrópusambandið: EES, ESB-aðild eða „svissnesk lausn“? Reykjavík 2003. FBL-GREINING: EFNAHAGS- OG MYNTBANDALAG EVRÓPU Mynt 300 milljóna Evrópubúa FRÉTTASKÝRING MAGNÚS HALLDÓRSSON ritstjorn@frettabladid.is Svona erum við > Fjöldi brautskráðra stúdenta 2. 19 5 2. 52 7 2. 51 5 2002 2003 2004 Heimild Hagstofa Íslands

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.