Fréttablaðið - 09.05.2006, Page 51

Fréttablaðið - 09.05.2006, Page 51
ÞRIÐJUDAGUR 9. maí 2006 35 Hljóðfærahúsið Laugavegi 176 105 Reykjavík www.hljodfaerahusid.is info@hljodfaerahusid.is Sími 591 5340 NBA Það kom engum á óvart að Steve Nash, leikstjórnandi Phoenix Suns, skyldi hafa verið valinn verðmætasti leikmaður NBA- deildarinnar annað árið í röð í gær. Það eina sem kom á óvart var hversu mikla yfirburði hann hafði í kjörinu. Nash hlaut 924 atkvæði í kjör- inu, þar af 57 í efsta sætið, LeBron James hjá Cleveland kom næstur með 688 atkvæði og 16 í efsta sætið, Dirk Nowitzki, Þjóðverjinn í liði Dallas, hlaut 544 atkvæði og 14 í efsta sætið, Kobe Bryant leik- maður LA Lakers hlaut 483 atkvæði og 22 í efsta sætið og Chauncey Billups hjá Detroit hlaut 430 atkvæði og 15 í fyrsta sætið. Það þurfti heldur ekki að koma á óvart að Ben Wallace skyldi hreppa hnossið í valinu um besta varnarmann deildarinnar. Þessi sterki leikmaður Detroit Pistons hefur nú hlotið þennan heiður fjór- um sinnum á síðustu fimm árum. - hþh Steve Nash mikilvægastur: Hafði mikla yfirburði FÓTBOLTI Hinn sautján ára gamli sóknarmaður Arsenal, Theo Wal- cott, var í gær, öllum að óvörum, valinn í 23ja manna æfingahóp enska landsliðsins fyrir HM í Þýskalandi í sumar. Val Svens- Görans Erikssonar á Walcott vekur mikla furðu á meðal fjöl- miðla og almennings í Englandi, en sænski þjálfarinn tók ungstirn- ið, sem hefur enn ekki spilað leik í úrvalsdeildinni, fram yfir menn á borð við Jermain Defoe hjá Tottenham og Darren Bent hjá Charlton, en sá síðarnefndi var markahæsti enski framherjinn í ensku úrvalsdeildinni í vetur. „Þetta er mikil áhætta, ég geri mér grein fyrir því, en ég er mjög spenntur fyrir honum. Hann er stórkostlegt efni og býr yfir mikl- um hraða, sem er mikils virði í fót- boltanum í dag. Síðan verður maður stundum að hlusta á eðlis- ávísunina,“ sagði Eriksson á blaða- mannafundi í gær þar sem hann gerði grein fyrir vali sínu. Walcott er einn af aðeins fjór- um framherjum enska hópsins og annar þeirra sem eiga ekki við meiðsli að stríða. Peter Crouch er einnig í hópnum ásamt Wayne Rooney og Michael Owen, sem eru báðir að jafna sig eftir ristarbrot. Ekkert pláss er fyrir Shaun Wright-Phillips í hópnum og eins og í tilfelli Bents kemst hann ekki einu sinni í fimm manna hóp sem Eriksson hefur beðið um að vera til taks ef eitthvað kemur upp á. Athygli vekur að hinn ungi Aaron Lennon hjá Tottenham er valinn í hópinn sem og Owen Har- greaves hjá Bayern Munchen. „Mér finnst þetta vera góður hópur og mjög áhugaverður sem slíkur,“ sagði Eriksson í gær en hann kvaðst ekki hafa ákveðið hópinn endanlega fyrr en í gær- morgun. - vig Æfingahópur enska landsliðsins fyrir HM vekur undrun á Bretlandseyjum: Eriksson valdi Theo Walcott í hópinn HÓPURINN KLÁR Sven-Göran Eriksson sést hér á blaðamannafundinum í gær. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES ENSKI HÓPURINN Paul Robinson (Tottenham), David James (Man. City), Robert Green (Norwich), Gary Neville (Man. Utd), Rio Ferdinand (Man. Utd), John Terry (Chelsea), Ashley Cole (Arsenal), Sol Campbell (Arsenal), Jamie Carragher (Liverpool), Wayne Bridge (Chelsea), David Beckham (Real Madrid), Michael Carrick (Tottenham), Frank Lamp- ard (Chelsea), Steven Gerrard (Liverpool), Owen Hargreaves (B. München), Jermaine Jenas (Tottenham), Stuart Downing (Midd- lesbrough), Joe Cole (Chelsea), Aaron Lennon (Tottenham), Wayne Rooney (Man. Utd), Michael Owen (Newcastle), Peter Crouch (Liverpool), Theo Walcott (Arsenal). Til vara Scott Carson (Liverpool), Luke Young (Charlton), Nigel Reo-Coker (West Ham), Jermain Defoe (Tottenham), Andy Johnson (C. Palace). HVAÐ? HVENÆR? HVAR? MAÍ 6 7 8 9 10 11 12 Þriðjudagur ■ ■ LEIKIR  19.30 Haukar og Valur mætast í úrslitum Deildabikars HSÍ í hand- bolta að Ásvöllum í Hafnarfirði. ■ ■ SJÓNVARP  22.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  17.50 Þýski handboltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Lemgo og Flensburg.  19.30 Fótbolti á Sýn. Útsending frá ágóðaleik Roy Keane þar sem Celtic og Manchester United mætast.  20.15 Deildabikarinn í handbolta á RÚV. Bein útsending frá síðari hálf- leik í viðureign Hauka og Vals. FÓTBOLTI Sir Bobby Robson, fyrr- verandi landsliðsþjálfari Eng- lendinga í knattspyrnu, hefur áhyggjur af enska landsliðinu sem spilar á HM í sumar. Það er sér í lagi sóknarlínan sem velgir Robson undir uggum en hinn sautján ára Theo Walcott hefur ekkert spilað með Arsenal á tíma- bilinu. „Að mínu mati er það mikil áhætta að taka strákinn á mótið. Ég veit að miklar vonir eru bundn- ar við hann, vissulega er hann efnilegur, en það skiptir engu máli þegar komið er á HM. Ég held að Walcott sé langt, langt, langt frá því að geta komið að notum á HM,“ sagði Robson, sem sjálfur sagðist munda hafa tekið Jermain Defoe inn í hópinn í staðinn. „Defoe hefur góða reynslu af að spila í úrvalsdeildinni og hefur nýtt þau tækifæri sem hann hefur fengið með landsliðinu ágætlega, svo ég hefði alltaf tekið hann inn á undan óreyndum unglingi,“ sagði Sir Bobby Robson. - hþh Sir Bobby Robson: Walcott á ekki heima þarna ÓREYNDUR Walcott hefur enga reynslu úr úrvalsdeildinnin. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.