Fréttablaðið - 12.05.2006, Síða 6
6 12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
������ ���������
������������������������������������������������������������������
������
�������
����
����
������
�
������
�����
KJÖRKASSINN
Hefurðu fylgst með umfjöllun
Kastljóss um Baugsmálið?
Já 47%
Nei 53%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á ríkið að hefja innflutning á
lyfjum?
Segðu þína skoðun á visir.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur þyngt
dóm yfir sautján ára pilti, Axel
Karli Ólafssyni, fyrir fíkniefna-
lagabrot og fyrir að hafa svipt
annan pilt frelsi sínu og neytt hann
með ofbeldi til að taka út fé. Var
pilturinn dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi en Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur hafði áður dæmt
hann í tveggja ára fangelsi.
Axel Karl hafði farið í félagi
við tvo aðra menn inn á vinnustað
sautján ára pilts og þvingað hann
með ræsibyssu til að fara með sér
út. Pilturinn var settur í farang-
ursrými bifreiðar þar sem voru
tveir Dobermann hundar. Beittu
mannræningjarnir piltinn ofbeldi
og hótunum, en óku síðan með
hann að tilteknum banka þar sem
hann var neyddur til að taka út fé
af reikningi sínum.
Axel Karl framdi hluta brot-
anna, sem hann hefur hlotið dóm
fyrir, örfáum klukkustundum eftir
að honum var birtur skilorðsdóm-
ur. Þótti Hæstarétti það bera vott
um styrkan og einbeittan brota-
vilja, sem metið var honum til
refsiþyngingar. Auk þess þótti
háttsemi hans til þess fallin að
vekja mikinn ótta hjá piltinum,
sem hann svipti frelsi.
Axel Karl hefur setið í gæslu-
varðhaldi frá 3. september á síð-
asta ári. -jss
ÞINGFESTING Í HÉRAÐSDÓMI Axel Karl
mætti ásamt félaga sínum í Héraðsdóm
þegar mannránsmálið var þingfest.
Hæstiréttur dæmir 17 ára pilt í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir mannrán:
Framdi mannrán á skilorði
FJÖLMIÐLAR Ákvarðanir 365 fjöl-
miðla um að koma á fót Talstöðinni,
Sirkus og NFS voru allar rangar í
viðskiptalegu tilliti að mati Páls
Magnússonar útvarpsstjóra.
Í nýju tölublaði Mannlífs talar
Páll um alltumfaðmandi fjölmiðla-
fyrirtæki. „Í faglegu tilliti hrein-
lega bauð mér við þessari hug-
mynd. Mér þótti þetta ógeðfellt
sambland af barnalegum stórveld-
isdraumum og nánast hálfsovéskri
hugmyndafræði, í besta falli hall-
ærisleg og gamaldags skandína-
vísk forræðishyggja, hugmyndin
um að vera öllum allt og enginn
þurfi að leita neitt annað.“
Gunnar Smári Egilsson for-
stjóri Dagsbrúnar, sem á og rekur
365, segir að einfalt sé að líta á
árangur. „365 er eina fjölmiðlafyr-
irtækið á Íslandi sem sýnt hefur
einhvern rekstrarlegan árangur á
undanförnum árum. Ríkisútvarp-
ið er rekið með tapi og er gjald-
þrota. Árvakur á í erfiðleikum og
fjölmiðlahluti Símans er rekinn
með stórkostlegu tapi. Þetta bend-
ir til þess að stefna 365 sé rétt og
menn ættu frekar að hafa áhyggj-
ur af stefnu hinna fjölmiðlafyrir-
tækjanna.“
Útvarpsstjóri segir í Mannlífs-
viðtalinu, að valdaþræði innan 365
megi rekja til Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra Baugs,
en segir jafnframt að hann hafi
ekki orðið þess var að hann mis-
noti aðstöðu sína til að hafa áhrif á
efnistök fjölmiðla í sinni eigu.
- jh
Útvarpsstjóri segir hug sinn í blaðaviðtali um brotthvarfið frá 365 miðlum:
Rangar viðskiptaákvarðanir
PÁLL MAGNÚSSON
ÚTVARPSSTJÓRI
„...hugmyndin um að
vera öllum allt og eng-
inn þurfi að leita neitt
annað.“
SKOÐANAKÖNNUN Í-listi, sameigin-
legt framboð Frjálslynda flokks-
ins, Samfylkingar og vinstri-
grænna, myndi fá hreinan
meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarð-
ar ef boðað yrði til kosninga nú.
Þetta er niðurstaða nýrrar skoð-
anakönnunar Fréttablaðsins. Í-list-
inn hefur nú stuðning 56,5 prósent
bæjarbúa og myndi samkvæmt
því fá fimm bæjarfulltrúa af níu.
Listinn bætir við sig frá því Félags-
vísindastofnun gerði skoðanakönn-
un fyrir NFS og Fréttablaðið í
byrjun maí, þegar 52,1 prósent
sögðust myndu kjósa Í-listann.
Samkvæmt þessu er núverandi
meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks á Ísafirði fall-
inn.
29,8 prósent sögðust myndu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn og
myndi flokkurinn samkvæmt því
fá þrjá bæjarfulltrúa. Í könnun
Félagsvísindastofnunar sögðust
31,3 prósent myndu styðja Sjálf-
stæðisflokkinn og er hann sam-
kvæmt því að tapa fylgi.
Framsóknarflokkurinn er með
stuðning 13,5 prósent þeirra sem
tóku afstöðu og fengi samkvæmt
því einn bæjarfulltrúa kjörinn. Í
könnun Félagsvísindastofnnunar
sögðust 14,0 prósent myndu kjósa
þann flokk.
Aðeins fleiri karlar segjast
myndu kjósa Sjálfstæðsflokkinn,
eða 33,0 prósent á móti 26,3 pró-
sent kvenna. Fylgi hinna flokk-
anna tveggja er meira meðal
kvenna en karla. 54,5 prósent
karla segjast myndu kjósa Í list-
ann en 56,5 prósent kvenna. 12,0
prósent karla segjast myndu kjósa
Framsóknarflokkinn, en 15,1 pró-
sent kvenna.
Hringt var í 600 íbúa sveitarfé-
lagsins fimmtudaginn 11.maí og
skiptust svarendur jafnt milli
kynja. 63,2 prósent tóku afstöðu
til spurningarinnar.
Jafnframt var spurt hvort
Vestfirðir ættu að vera stjóriðju-
laust svæði. Mikill meirihluti
svarenda svaraði því játandi, eða
83,8 prósent. 16,2 prósent voru
því ósammála. 91,5 prósent svar-
enda tóku afstöðu til þeirrar
spurningar.
svanborg@frettabladid.is
Í-listi með hreinan
meirihluta á Ísafirði
Í-listi fengi tæp 57 prósent atkvæða og fimm bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri
könnun Fréttablaðsins. Sjálfstæðismenn fengju 29.8 prósent atkvæða og þrjá
bæjarfulltrúa. Framsóknarflokkur fengi 13,5 prósent atkvæða og einn fulltrúa.
EIGA VESTFIRÐIR AÐ VERA
STÓRIÐJULAUST SVÆÐI?
HVAÐA LISTA MYNDIR ÞÚ KJÓSA EF BOÐAÐ
YRÐI TIL SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA NÚ?
KJARADEILA Samningaviðræður í
kjaradeilu stuðningsfulltrúa og
samninganefndar ríkisins hófust
á ný í gærmorgun en viðræður
slitnuðu fyrir páska. Nýr fundur
hefur verið boðaður í dag og munu
nefndarmenn leggja fram útreikn-
inga og tillögur.
„Það fór vel á með okkur og
okkur var sagt að það væri meira í
spilunum núna en fyrir nokkrum
vikum,“ segir Árni Stefán Jóns-
son, formaður SFR.
Setuverkfall hefur verið boðað
hjá stuðningsfulltrúum á þriðju-
daginn og telur Árni Stefán að
menn freistist til að ná samning-
um fyrir þann tíma. - ghs
Kjaradeila stuðningsfulltrúa:
Leggja fram
tillögur í dag
29
,8
%
56
,5
%
13
,5
%
Já 83,8%
Nei 16,2%