Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 34
12. maí 2006 FÖSTUDAGUR
Ekki láta allir henda kvittun-
inni í matvörubúðinni og er
Hulda Emilsdóttir ein þeirra.
Hún hefur haldið bókhald um
matarinnkaupin allt frá því að
hún flutti að heiman.
Þegar Hulda er spurð hvort hún
sé ein af þeim sem hugsi alltaf vel
um það í hvað peningarnir fara
játar hún því. Hún segir að besta
leiðin til þess að spara sé að vera
hagsýnn í matarinnkaupum,
einnig bendir hún á einföld atriði
eins og að borga reikninga á rétt-
um tíma. Varðandi matarinnkaup-
in segir Hulda að margt sé hægt
að gera til þess að spara. „Gott er
að nýta sér tilboðin. Svo er gott að
kaupa sem mest inn fyrir hverja
viku, þannig að hægt sé að fara
sjaldnar í búðina. Einnig verður
maður að passa að fara ekki
svangur út að versla, þá hættir
manni til að kaupa of mikið af
óþverra.“
Um leið og Hulda flutti að
heiman tók hún upp á því að skrá
niður hjá sér allt sem hún eyddi í
mat. Fyrir hver mánaðamót safn-
ar hún saman kvittunum þess
mánaðar og skráir hjá sér í bók.
Þannig hefur Hulda alltaf gott
yfirlit yfir eyðslu fjölskyldunnar
í mat og annað slíkt. Aðspurð
hvort hún hafi einhvern tímann
þurft að segja öðrum fjölskyldu-
meðlimum að fara að borða minna
vegna of mikilla útgjalda fer
Hulda að skellihlæja. „Nei, nei,
það vantar aldrei mat.“
Þar sem Hulda hefur skráð hjá
sér matarinnkaupin allt frá því að
hún flutti að heiman er hún komin
með nokkuð góða yfirsýn yfir
hvaða mánuði fjölskyldan eyðir
mest í mat og hvaða mánuði fjöl-
skyldan eyðir minnst. „Mest er
eytt í afmælismánuðunum og líka
meðan sumarfríin standa yfir, þá
hverfur yfirleitt hagsýnin. Í
febrúar og maí er síðan lítið um
að vera og þá eru útgjöldin í sam-
ræmi við það,“ segir Hulda með
bros á vör.
Fyrir utan að huga vel að mat-
arinnkaupunum hefur Hulda
einnig sérstakan gleði- og áfalla-
sjóð fyrir fjölskylduna. „Þegar ég
byrja með sjóðinn byrja ég að
borga fimm þúsund á mánuði.
Síðan þegar þetta er orðin ein-
hver upphæð er maður orðinn svo
glaður að eiga þetta mikið og því
byrjar maður alltaf að leggja
hærri og hærri upphæð fyrir á
mánuði. Svo endar sjóðurinn í
góðri upphæð og helst vil ég taka
hann út í gleði, til dæmis að fara
til útlanda,“ útskýrir Hulda og
bætir jafnframt við að erfiðast sé
að byrja að safna. „Um leið og
maður er kominn af stað verður
það til þess að maður leggur
meira fyrir.“
steinthor@frettabladid.is
Heldur bókhald
um matarkaupin
Hulda Emilsdóttir hefur komið sér upp einföldu kerfi sem hjálpar henni og fjölskyldu
hennar að spara og er sá sparnaður oftast tekinn út í gleði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vinsælir sturtuklefar fást nú
með miklum afslætti í verslun-
inni Innréttingum og tækjum.
Í versluninni Innréttingum og
tækjum í Ármúla eru seldir sturtu-
klefar frá ítalska fyrirtækinu Tab.
Sturtuklefarnir eru með hitastýrð-
um blöndunartækjum, átta nudd-
stútum og sæti svo hægt er að
slappa vel af í sturtunni. Þessa
dagana eru sturtuklefarnir á til-
boðsverði og kosta frá 66.900 krón-
um. Sturtuklefarnir henta jafnt í
heimahús og sumarbústaði og fást
í tveimur stærðum.
Tæknilegir sturtu-
klefar á góðu verði
Sturtuklefar með átta nuddstútum og sæti
fást á góðu verði í versluninni Innréttingum
og tækjum.
Vertu velkomin í
okkar hóp!
Hafðu samband!
Taktu þér tak!
Ertu á aldursbilinu
16 til 30?
Viltu ná kjörþyngd?
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Sumarnámskeið
hefjast 21. maí
Skráning hafi n!