Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 4

Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 4
4 16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR ���������������������������������������� ���������������� ��������������� ������������������������� �������������� ���������������� ������������������������� ������������ �������������������� ���� ����������� ���������� ������������������� ������������������ ���������������������� F A B R IK A N 2 0 0 6 ���������������������������������������������������������� ��������������������������� SKÓLAMÁL Öll börn sem hafa óskað eftir leikskólavist á Fljótdalshér- aði og eru fædd árin 2004 og 2005 hafa fengið inngöngu nú í haust. Börn fædd árið 2004 eru óvenju mörg á Fljótdalshéraði, um fimmtíu prósentum fleiri en í öðrum árgöngum í sveitarfélag- inu. Flest barnanna sem fædd eru það ár hafa sóst eftir leikskóla- vist, yfir níutíu prósent. Þau börn sem fædd eru 2005 og hafa verið á biðlista eftir leikskólavist í haust hafa einnig öll fengið inni á leikskólum sveitarfélagsins. Mikil fólksfjölgun hefur verið í sveitarfélaginu, sem varð til árið 2004 og er það fjölmennasta á Austurlandi, með um 3.500 íbúa. - gþg Leikskólar á Fljótsdalshéraði: Engir biðlistar BRASILÍA, AP Brasilískt glæpagengi er sagt standa að baki ofbeldis- öldu sem gengið hefur yfir Sao Paulo í Brasilíu undanfarna daga, en í þeim átökum hafa yfir áttatíu farist. Flestir hinna látnu eru sagð- ir vera fangar eða lögreglumenn. Grímuklæddir meðlimir geng- isins réðust gegn lögreglustöðv- um með handsprengjum og vél- byssum um helgina og á sunnudagskvöld og í gær kveiktu þeir í fjölda strætisvagna, sem varð til þess að þúsundir manna komust ekki til vinnu sinnar í gær- morgun. Meðlimir glæpagengisins eru sagðir æfir yfir fangaflutningi þar sem átta leiðtogar gengisins voru færðir í öryggisfangelsi fyrir helgi. Átökin hafa ollið uppþotum í 46 fangelsum í Sao Paulo-fylki og í gær héldu fangar 237 fangavörð- um í gíslingu. Fangarnir höfðu þó hvorki sett fram neinar kröfur síðdegis í gær, né skaðað gísla sína, að sögn talsmanns fangelsis- yfirvalda í Sao Paulo. Luiz Inacio Lula da Silva, for- seti Brasilíu, hélt neyðarfund í gær og bauð fram aðstoð hersins, en vonast er til að átökunum linni án aðkomu hans. Lögreglan hefur handtekið á áttunda tug manns í tengslum við átökin. - smk Brasilískt glæpagengi ræðst gegn lögreglu og fangavörðum: Yfir áttatíu farast í átökum SKOTÁRÁS Ráðist var á þessa lögreglustöð í Brasilíu á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 15.05.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 71,04 71,38 Sterlingspund 133,67 134,31 Evra 91,02 91,52 Dönsk króna 12,208 12,28 Norsk króna 11,673 11,741 Sænsk króna 9,7 9,756 9,728 Japanskt jen 0,6437 0,6475 SDR 106,09 106,73 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 126,0306 DÓMSMÁL Maður á fimmtugsaldri, Ólafur Barði Kristjánsson, var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja ára fang- elsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm ungum stúlkum. Þá var honum gert að greiða þeim sam- tals 2,3 milljónir í miskabætur, svo og ríflega 1,6 milljónir í sakarkostnað. Ein stúlkan var nýorðin níu ára þegar Ólafur Barði braut gegn henni. Hún hafði farið með honum og börnum hans í útilegu til Þing- valla. Um nóttina áreitti hann stúlkuna gróflega, káfaði meðal annars á kynfærum hennar og hafði í frammi fleiri grófar athafnir. Stúlkan hefur að undan- förnu gengið til sálfræðings, sem ber að atburðurinn hafi greini- lega hvílt á henni. Brot gegn annarri stúlku er þannig til komið að mánudaginn 21. mars gerði lögregla húsleit á heimili Ólafs Barða og lagði hald á tölvu hans. Í henni reyndust vera nokkrar myndir af ungri stúlku, sem sýndu hana halda um getnaðarlim karlmanns og karl- manninn rassskella stúlkuna. For- eldrar stúlkunnar báru kennsl á hana og töldu að hún hefði senni- lega verið fimm ára þegar mynd- in var tekin. Móðir stúlkunnar sagði að eftir misnotkunina hefði stúlkan verið óvenju uppstökk, kvíðin og fengið mikil grátköst. Maðurinn játaði hjá lögreglu að hann hefði haft í frammi grófar kynferðisathafnir gagnvart henni. Þriðja stúlkan varð fyrir áreitni af hálfu mannsins þegar hún gisti hjá dóttur hans, sem var Dæmdur fyrir kynferðisbrot og að eiga barnaklám Ólafur Barði Kristjánsson var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm stúlku- börnum. Brotin vörðuðu grófa kynferðislega áreitni og gerð og vörslu barnakláms, þar sem þrjár stúlknanna komu við sögu. Þá var maðurinn dæmdur til greiðslu á nær fjórum milljónum króna. vinkona hennar. Stúlkan kom hágrátandi heim um miðja nótt og sagði að maðurinn hefði káfað á sér „á óæskilegum stöðum“. Í fórum mannsins fundust 210 myndir sem sýndu börn á kyn- ferðislegan og klámfenginn hátt. Þar komu tvær síðustu stúlkurn- ar við sögu, ásamt einni af stúlk- unum sem að ofan er getið. jss@frettabladid.is „Ég man enn skerandi vein dóttur minnar þegar hún kom hlaupandi heim,“ segir móðir tólf ára gamallar stúlku sem beitt var kynferðislegu ofbeldi af Ólafi Barða Kristjánssyni fyrir rúmlega ári síðan. Stúlkan fékk leyfi til þess að gista eina nótt hjá vinkonu sinni, sem er dóttir mannsins, sem síðan var ákærður. Á þessum tíma bjó maðurinn ásamt fjölskyldu sinni í einbýlishúsi skammt frá heimili stúlkunnar. Stúlkan skýrði móður sinni strax um nóttina frá því sem gerðist. „Við hjónin vorum ofsalega skelkuð og ráðþrota eftir að við heyrðum frásögn dóttur okkar. Hún lýsti því í smáatrið- um þegar maðurinn leitaði á hana í herbergi dóttur hans. Hún þóttist vera sofandi í fyrstu, þegar atvikið átti sér stað, en öskraði síðan af hræðslu og kom sér út úr húsinu og hljóp heim.“ Lögreglan var kölluð til eftir að stúlkan hafði lýst fyrir foreldrum sínum þegar maðurinn leitaði á hana. Móðir stúlkunnar segir lífsreynslu sem þessa hafa varanleg áhrif á líf fjölskyldunnar. „Rannsóknarlögreglan hóf fljótt að rannsaka málið og voru vinnubrögð lögreglunnar til fyrirmyndar. Við fórum niður á bráðamóttöku þar sem hæft starfsfólk tók á móti okkur.“ Móðirin segir dótturina enn glíma við óöryggistilfinningu og hræðslu. „Hún fer reglulega í viðtal hjá starfs- manni Barnahúss og það hefur reynst henni afskaplega vel. En þetta atvik á eftir að fylgja henni ævilangt.“ Móðir stúlkunnar miðlar því til foreldra að vera á verði gagnvart kynferðisbrotamönnum því þeir leynist víða. „Í eðli sínu geta sárin, sem kyn- ferðisbrot gagnvart börnum skilja eftir sig, ekki gróið. Þau verða alltaf opin og sársaukinn sem þeim fylgir hverfur aldrei. En það er hægt að búa um þau með því að hjálpa börnunum að lifa með sárunum sem kynferðislegt ofbeldi skilur eftir sig.“ - mh Urðu skelkuð og ráðþrota eftir frásögn dótturinnar: Skerandi öskur HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Ólafur Barði Kristjánsson var dæmdur í tveggja ára fang- elsi. Hann þarf að greiða fórnarlömbum sínum 2,3 milljónir í miskabætur. SLYS Starfsmaður Neyðarlínunnar gerði þau mistök á miðvikudag að senda sjúkrabíl að Hallgríms- kirkju eftir að upplýsingar bárust um umferðarslys við Höfners- bryggju á Akureyri. Þar hafði verið ekið á tíu ára gamla stúlku. Hún slasaðist ekki alvarlega. Þórhallur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir að um misskilning varðandi staðsetningu hafi verið að ræða, innhringjandi hafi einnig verið óskýr í máli og erfitt að fá frá honum nákvæmar upplýsingar. „Þrátt fyrir það átti neyðarvörður að sjá hvaðan var hringt og Neyð- arlínan harmar þau vinnubrögð.“ Neyðarlínan féllst á að leyfa Fréttablaðinu að hlusta á viðtöl neyðarvarðarins. Upptökurnar endurspegla mikla samskipta- erfiðleika. - shá Mistök hjá Neyðarlínunni: Vinnubrögðin hörmuð MISSKILNINGUR Neyðarvörður sendi sjúkrabíl að Hallgrímskirkju í Reykjavík. Tölur víxluðust í súluriti Fréttablaðsins í gær við hlutfall þeirra Akureyringa sem vildu sjávarsíki í miðbæinn. Rétt er að 66,6 prósent svöruðu spurningunni neitandi en 33,4 prósent játandi. LEIÐRÉTTING Eyðniráðstefna í Moskvu Ráð- stefna um HIV og eyðni hófst í Moskvu í gær og er þetta í fyrsta sinn sem slíkur fundur er haldinn í Rússlandi. Samkvæmt opinberum tölum eru um 350.000 manns smitaðir af HIV-veirunni í Rússlandi. RÚSSLAND

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.