Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 67
HANDBOLTI Í kvöld og annað kvöld leikur íslenska kvennalandsliðið æfingaleiki við Holland. Leikirnir eru liður í undirbúningi fyrir umspilsleiki gegn Makedóníu sem fram fara í lok mánaðarins. Hol- lenska liðið er mjög sterkt og varð í fimmta sæti á síðasta HM. Fyrri leikurinn fer fram í Laugardals- höll í kvöld klukkan 20. - hbg LANDSLIÐSHÓPURINN: Hrafnhildur Skúladóttir SK Århus Drífa Skúladóttir Valur Rebekka Rut Skúladóttir Valur Ágústa Edda Björnsdóttir Valur Berglind Íris Hansdóttir Valur Jóna Margrét Ragnarsdóttir Stjarnan Hanna Guðrún Stefánsdóttir Haukar Rakel Dögg Bragadóttir Stjarnan Elísabet Gunnarsdóttir Stjarnan Harpa Sif Eyjólfsdóttir Stjarnan Kristín Clausen Stjarnan Sólveig Lára Kjærnested Stjarnan Anna Úrsula Guðmundsdóttir Levanger Eva Margrét Kristinsdóttir Levanger Helga Torfadóttir Haukar Dröfn Sæmundsdóttir FH Ragnhildur Guðmundsdóttir Haukar Guðbjörg Guðmannsdóttir Haukar Íris Símonardóttir Grótta Kvennalandsliðið í handbolta: Spilar tvo leiki við Holland ANNA ÚRSULA GUÐMUNDSDÓTTIR Kemur frá Noregi í leikina gegn Hollendingum. FÓTBOLTI Chelsea staðfesti það sem allir vissu í gær. Michael Ballack spilar með liðinu á næstu leiktíð og vel það því hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ensku meistarana. Hann kemur án greiðslu frá Bayern München þar sem samningur hans við þýsku meistarana er að renna út. Laun hans voru ekki gefin upp í gær en enskir fjölmiðlar tala um að hann fái að minnsta kosti tólf milljónir króna í vikulaun. „Ég spurði leikmenn eins og Robert Huth og Jens Lehmann um ensku deiildina. Þeir voru mjög jákvæðir og ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað,“ sagði Ballack á blaðamannafundi á Stamford Bridge í gær. Jose Mour- inho, stjóri Chelsea, var ánægður með nýja liðsmanninn. „Chelsea er mjög ánægt og enskur fótbolti ætti að fagna því að fá mann eins og Ballack í deild- ina. Við erum með meistara í okkar liði og til að bæta það verð- um við að fá fleiri meistara. Hér er kominn meistari sem mun aðstoða okkur við að ná markmið- um næstu leiktíðar,“ sagði Mour- inho. - hbg Chelsea kynnti Michael Ballack til leiks í gær: Verst geymda leyndarmál Evrópu loksins afhjúpað MÆTTUR TIL LONDON Chelsea kynnti Michael Ballack fyrir blaðamönnum í gær. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Chelsea fær í sumar. Næstur á óskalistanum er Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen er í nokkrum ensku dagblaðanna í gær orðaður við skoska úrvalsdeildar- liðið Hearts, en sagt er að Vladimir Romanov, hinn moldríki aðaleig- andi félagsins, sé mikill aðdáandi Íslendingsins. Rætt er um að kaup- verðið verði kringum fjórar millj- ónir punda og þó að það sé býsna há upphæð á skoskan mælikvarða myndi Romanov ekki eiga í erfið- leikum með að reiða fram slíkan pening. Telja má ólíklegt að Eiður Smári hafi hug á því að leika í skosku úrvalsdeildinni en upp- gangur Hearts hefur engu að síður verið með besta móti í ár. Liðið hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildar- innar á eftir Celtic og hampaði bikarmeistaratitlinum um helg- ina. Með árangri sínum tryggði liðið sér sæti í Meistaradeild Evr- ópu á næsta ári. Hjálmar Þórar- insson er á mála hjá Hearts en auk þess leika Eggert Gunnþór Jóns- son og Haraldur Björnsson með unglingaliði félagsins. Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára, vildi lítið tjá sig um mál Eiðs við Frétta- blaðið í gær en játti því að viðræð- ur við Chelsea væru enn í fullum gangi. Hann vildi ekkert segja til um hvort einhver félög hefðu sýnt Eiði áhuga á síðustu dögum, en sem kunnugt er hefur hann eink- um verið orðaður við Manchester United, Arsenal, Tottenham, Blackburn og nú Hearts. - vig Eiður Smári og Chelsea: Eiður orðaður við Hearts ENNÞÁ Í SIGURVÍMU Eiður Smári tók að sjálfsögðu þátt í sigurskrúðgöngu Chelsea um London sem fram fór á sunnudag. Hér sést hann ásamt John Terry og Frank Lampard á góðri stund í gleðinni. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.