Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 24
16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR4
Bandarískir vísindamenn segja
rauðvín gera heyrninni gott.
Lengi hefur því verið haldið fram
að rauðvín í hófi sé gott fyrir
hjartastarfsemina, komi á stund-
um í veg fyrir kvef og styrki
ónæmiskerfið. Bandarískir vís-
indamenn hafa nú gert betur og
komist að því að rauðvín í hófi sé
gott fyrir heyrnina og geti komið í
veg fyrir að fólk verði heyrnar-
laust.
Rauðvínið ver viðkvæmu hárin
sem eru í innra eyranu. Haft er
eftir rannsakanda úr viðtali í tíma-
ritinu New Scientist að þráavarna-
efni í rauðvíni geri önnur efni í
líkamanum, sem ráðast gegn hár-
unum í eyrunum, óvirk. Rannsak-
andinn segir að í rauðvíni sé að
finna svipaða varnareiginleika og
finnast í grænu tei.
Rauðvín gott fyrir heyrnina
Sannað hefur verið að efni í rauðvíni
vernda viðkvæm hár í innra eyranu.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Grasið er víðast hvar orðið
grænt og því tími til kominn að
taka upp takkaskóna.
Tíminn til þess að taka upp takka-
skóna og aðra útiíþróttaskó hefur
runnið upp síðustu daga. Margir
hafa reyndar komist að því að
gömlu góðu takkaskórnir eru orðnir
aðeins of slitnir eða jafnvel of litlir.
Þá er farið í næstu íþróttaverslun
og nýir skór valdir. Nokkur atriði er
þó gott að hafa í huga þegar keyptir
eru nýir skór og þeir fyrst notaðir.
Þegar farið er að kaupa takkaskó
er ekki endilega best að benda á
flottustu skóna og fá þá í sinni
stærð. Best er að prófa nokkrar teg-
undir og í nokkrum stærðum, þar
sem takkaskórnir lagast misvel að
fótunum. Sigurður Freyr Bjarna-
son, starfsmaður Adidas-búðarinn-
ar í Kringlunni, tekur undir þessi
sjónarmið og segir að aðalatriðið sé
að skórnir passi almennilega á fót-
inn. „Mikilvægt er að skórnir haldi
vel við hælinn og styðji við fótinn.“
Sigurður segir jafnframt að þeir
sem séu hættir að stækka vilji yfir-
leitt taka aðeins of litla skó, vegna
þess að takkaskór stækki oftast
örlítið um leið og byrjað sé að nota
þá.
Sigurður segir að hönnun á
takkaskóm hafi farið mikið fram á
undanförnum árum. „Mun meiri
tækni er fólgin í skónum í dag, þetta
eru ekki bara skór og búið. Bætt
hefur verið við ýmsum smáatrið-
um, til dæmis til þess að ná meiri
sveiflu á fótinn og til að fá betri
snúning á boltann.“
Ef skórnir passa almennilega
eiga þeir ekki að vera til neinna
vandkvæða fyrst þegar þeir eru
notaðir. Sumir takkaskór geta þó
verið stífir í fyrstu og eiga þá til að
nuddast í hælinn. Best er því að
byrja hægt til þess að mýkja hælinn
á skónum. Einnig er gott ráð að
smyrja vaselíni eða öðru mjög feitu
kremi í hælinn og kringum opið á
skónum.
steinthor@frettabladid.is
Best að mýkja hælinn fyrst
David Beckham með frægu Predator-skóna sína sem eru gott dæmi um „hátækni“-takkaskó.
NORDICPHOTOS/AFP
Sumartilboð
Við kaup á 10 tíma korti færðu 2 ókeypis.
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Embla
fyrir konur
á besta aldri
Vertu velkomin í
okkar hóp!
Hafðu samband!
Taktu þér tak!
Ertu á aldursbilinu
16 til 30?
Viltu ná kjörþyngd?
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Sumarnámskeið
hefjast 21. maí
Skráning hafi n!
Fæst í heilsubúðum, apótekum,
og heilsuhornum verslana
Einnig sjampó, hárnæring o.fl.
DREIFING: JÓN KARLSSON • SÍMI: 5610570
• 100% náttúrulegir jurtalitir
• Engin skaðleg aukaefni
• Ekkert ammóníak
• Laust við festiefni (Resorcinol)
• Þægilegt og fljótlegt í notkun
• 30 litir (Hægt að blanda fleiri)
List jóga námskeið
Fyrir krakka á aldrinum 6-11 ára
Skemmtileg blanda af leiklist og jóga
• 12-16. júní frá Kl. 9:00 til 14:00. Aldur 9-11 ára.
• 19-23. júní frá kl. 9:00 til 14:00. Aldur 6-8 ára.
• 26-30. júní frá kl. 9:00 til 14:00. Aldur 9-11 ára.
Skráning í síma 553-0203 eða yoga@yogashala.is. Engjateigur 5
Kennari: Ingibjörg Stefánsd. Verð: 15.900 kr. www.yogashala.is