Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 2
2 16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR 2 sæti FERÐALAG Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir lögðu af stað í gær í hjólreiðaför sína hring- inn í kringum landið. Þau hjóla undir kjörorðinu „Hjólað fyrir velferð barna“ en ætlun þeirra er að vekja athygli á börnum með geðraskanir og fjölskyldum þeirra. Áætlað er að hringferðin taki tæpa 80 daga og er leiðin um 2.700 kílómetra löng. Þau ætla ekki einasta að hjóla eftir þjóð- vegi eitt heldur einnig um Vest- og Austfirði. Bjarki og Gyða Rós lögðu upp frá húsakynnum Barna- og unglingageðdeildar Landspít- ala í gærmorgun og sögðust full tilhlökkunar. Nokkrir starfsmenn deildarinnar fylgdu þeim hjólandi úr hlaði og hvöttu um leið lands- menn til að hjóla með þeim þegar þeir yrðu á vegi þeirra. Bjarki er gjörkunnugur þjóð- vegunum en á síðasta ári gekk hann hringinn í kringum landið ásamt Guðbrandi Einarssyni nuddara undir slagorðinu „Haltur leiðir blindan“. Fari allt að óskum nú verður Bjarki að líkindum fyrsti maðurinn sem afrekar bæði að ganga og hjóla hringinn í kring- um landið. - bþs HJÓLAÐ AF STAÐ Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir lögðu af stað í gærmorgun í ferðalag sitt hringinn í kringum landið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Bjarki Birgisson og Gyða Rós Bragadóttir ætla að hjóla hringinn í kringum landið: Lagt af stað í hjólatúrinn mikla LÖGREGLUMÁL Einn mannanna þriggja sem handteknir voru í tengslum við hnífstungu í Hafnar- firði aðfaranótt sunnudags hefur viðurkennt verknaðinn og verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí. Hinum tveimur hefur verið sleppt. Maðurinn sem játaði er á nítj- ánda aldursári. Hann var handtek- inn í bíl á Kaldárselsvegi ásamt tveimur piltum skömmu eftir hnífstunguárásina. Samkvæmt vitnum að árásinni var félagi þess stungna einnig keyrður niður af bíl árásarmannsins og slasaðist lítillega, en rannsókn þess máls stendur enn yfir. - sh Hnífstungan í Hafnarfirði: Í varðhaldi til loka mánaðar SVEITARSTJÓRNARMÁL „Með þessu er ég fyrst og fremst að biðjast afsök- unar á gjörðum mínum, þótt þetta sé að sjálfsögðu óafsakanlegt,“ segir Eyþór. Í yfirlýsingunni sem hann sendi frá sér í fyrrakvöld kemur fram að hann muni ekki taka frekari þátt í kosningabaráttu Sjálf- stæðisflokksins í Árborg og að hann hyggist taka sér frí frá störfum sem bæjarfulltrúi á komandi kjörtíma- bili á meðan hann tekur út refsingu fyrir ölvunarakstur. Yfir- lýsingin kom í kjölfar fjög- urra klukkustunda fundar í Valhöll með forvígismönn- um flokksins og frambjóð- endum hans í Árborg. Að óbreyttu segist Eyþór munu taka sæti í bæjarstjórn að loknu þessu fríi, en það sé þó ekki einhliða ákvörðun hans. „Fram- tíðin er óráðin, fyrir utan það að ég tek núna út mína refsingu og vinn í mínum málum.“ Lögreglu barst ábending á aðfaranótt sunnudags um að ekið hefði verið á ljósastaur við Sæbraut og flúið af vettvangi. Eyþór var handtekinn stuttu síðar í bifreið sem átti við lýsingu vitnis og reyndist ölvaður. Hann játaði síðan brotið við yfirheyrslu. Eyþór segist harma atvikið. „Slíkt hefur aldrei hent mig áður en er engu að síður óafsakanlegt. Með þessu brást ég trausti sam- flokksmanna minna, stuðnings- manna, fjölskyldu og þeirra kjós- enda sem ég leita eftir stuðningi hjá,“ segir í yfirlýsingunni. Eyþór segist munu vinna í sínum málum og leita sér áfengismeðferðar. Að sögn Eyþórs voru ekki allir sammála um hvernig bregðast skyldi við. „Það voru margir sem vildu að ekkert yrði gert og að ég leiddi list- ann áfram.“ Í yfirlýsingunni segir að full samstaða sé um niðurstöðuna í frambjóðendahópnum. Nafn Eyþórs verður áfram efst á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Árborg þegar kemur að kosningunum þar sem lög heimilega ekki breytingar á listanum eftir að framboðsfrestur rennur út. Þórunn Jóna Hauksdóttir, sem skipar annað sæti á listanum, segist þó tekin við stjórnartaumunum. „Manneskjan sem er í öðru sæti er auðvitað alltaf tilbúin að fara í fyrsta sætið og ég hef tekið við stöðu oddvita flokksins,“ segir Þór- unn og bætir við að listinn sé mjög breiður og að sá árangur sem Sjálf- stæðisflokkurinn hefur náð í Árborg sé að miklu leyti því að þakka. stigur@frettabladid.is Tekur að óbreyttu sæti í bæjarstjórn Eyþór Arnalds er hættur þátttöku í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Árborg og hyggst taka sér frí frá störfum í bæjarstjórn á meðan hann tekur út refsingu fyrir ölvunarakstur. Að óbreyttu mun hann þó taka sæti að því loknu. EYÞÓR ARNALDS ÞÓRUNN JÓNA HAUKSDÓTTIR fiJÓ‹VAKI SELFOSS Töluverðar hræringar hafa orðið í stjórnmálunum í Árborg í kjölfar frétta af ölvunarakstri Eyþórs Arnalds. ANDLÁT Maður á sjötugsaldri fannst látinn á Fjarðarheiði á tólfta tímanum í gærkvöld. Hann hafði farið á bíl upp á heiðina til að ganga á skíðum. Þegar maðurinn skilaði sér ekki til baka á eðlileg- um tíma var óskað eftir aðstoð björgunarsveita. Um tíu björgunarmenn sem höfðu verið við leit að unga mann- inum á Mýrdalsöræfum leituðu á vélsleðum og fundu manninn eftir stutta leit í nágrenni við Heiðar- vatn, um einn kílómetra frá bíl hans. Hann var þá látinn og er talið að hann hafi orðið bráð- kvaddur. - sh Skíðamaður á sjötugsaldri: Fannst látinn á Fjarðarheiði Samningur samþykktur Setu- verkfall stuðningsfulltrúa á svæðis- skrifstofum fatlaðra sem átti að hefjast í gærkvöld var blásið af. Nýgerður stofnanasamningur var samþykktur í gær sem felur í sér að laun stuðnings- fulltrúa hækka til samræmis við laun starfsmanna í sambærilegum störfum hjá sveitarfélögum. KJARAMÁL LEIT Björgunarsveitir frá Norður- og Austurlandi, ásamt liðsmönnum björg- unarsveita af höfuðborgar- svæðinu, leituðu í allan gær- dag á Möðrudalsöræfum að sautján ára gömlum pilti, Pétri Þorvarðarsyni, sem saknað hefur verið frá Grímsstöðum á Fjöllum síðan klukkan eitt aðfara- nótt sunnudags. 240 björgunar- sveitamenn á 32 bílum og fjölda fjór- og sexhjóla, auk sporhunda og víðavangsleitarhunda, hafa komið að leitinni sem hófst síðdegis á sunnudag. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi hafði leitin ekki borið árangur. Pétur gekk frá Gríms- stöðum um klukkan eitt á sunnudagsnótt og var þá klæddur í gallabuxur og flíspeysu. Hann hringdi tví- vegis um nóttina, fyrst um klukkan tvö og svo rúmri klukkustund síðar. Hann taldi sig þá vera að nálgast Fellabæ við Lagarfljót. Þyrlur Landhelgisgæslunnar voru ekki til taks til að aðstoða við leitina. Við athugun á föstudag kom fram bilun í drifskafti þyrlunnar TF-Líf og TF-Sif er í uppfærslu í Noregi. Þyrla danska sjóhersins frá eftirlitsskipinu Trit- on fór norður í gærkvöldi og hóf leit klukkan átta í gærmorgun. Þyrla Varnarliðsins var síðan ræst út eftir hádegið og var komin á leitarsvæðið um fjögurleytið. Elds- neytisbíll sem koma átti með elds- neyti fyrir dönsku þyrluna bilaði á leiðinni til Grímsstaða og sá því Varnarliðsþyrlan ein um leit úr lofti seinni partinn í gær. - shá Á þriðja hundrað björgunarsveitarmenn eru á Möðrudalsöræfum: Víðtæk leit að sautján ára pilti FRÁ LEITINNI Á MÖÐRUDALSÖRÆFUM Um 240 björgunarsveitarmenn taka þátt í leitinni og þeim fylgir mikill búnaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANNA FUGLAFLENSA Þar sem engin stað- fest tilvik fuglaflensu af H5N1- stofni hafa verið staðfest hér á landi hefur Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra, að fengnum til- lögum Landbúnaðarstofnunar, ákveðið að breyta viðbúnaðrstigi vegna fuglaflensu. Tímabundnum varnaðarað- gerðum til að fyrirbyggja að fuglaflensa berist í alifugla hefur verið aflétt. Þar með er ekki leng- ur gerð sú krafa að hýsa alla ali- fugla. Ákvörðun ráðherra byggir á því að nú liggur fyrir að fugla- flensa hefur ekki greinst í yfir 240 sýnum sem tekin hafa verið úr villtum fuglum hér á landi. - th Ráðherra lækkar áhættustig: Engin tilvik fuglaflensu VEGABRÉF Útgáfa nýrra íslenskra vegabréfa með lífkennaupplýsing- um hefst á morgun. Með tilkomu nýju vegabréfanna verður ekki lengur hægt að sækja um íslensk vegabréf erlendis nema í fimm sendiráðum þar sem settur verður upp sérstakur umsóknabúnaður. Mögulegt er að endurnýja núgildandi vegabréf í dag en eftir þann tíma verður ræðismönnum og sendiráðum óheimilt að taka við umsóknum um vegabréf. Evr- ópusambandið hefur samþykkt að öll ríki þess hefji útgáfu rafrænna vegabréfa og er þessi samþykkt skuldbindandi fyrir Ísland. - shá Dómsmálaráðuneytið: Breytt vega- bréfaútgáfa Löglegur kavíar Evrópusambandið samþykkti í gær nýjar reglur um viðskipti með kavíar. Ætlunin er að reyna að sporna gegn ólöglegum styrjuveiðum í Kaspíahafi, en fiskurinn er í útrýming- arhættu. Samkvæmt nýju reglunum mun koma fram á umbúðum utan um hrognin hvenær þeim var safnað og hvar, svo ljóst sé að um lögleg styrju- hrogn sé að ræða. EVRÓPUSAMBANDIÐ SPURNING DAGSINS Margrét, eru íslenskar þjóð- minjar einna bestar í Evrópu? „Það er mjög afstætt að tala um virði þjóðminja. Þær eru alls staðar ómetanlegar.“ Þjóðminjasafn Íslands er eitt þriggja safna sem hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í samkeppni um safn Evrópu árið 2006. Þetta er mikill heiður að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar. PÉTUR ÞORVARÐARSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.