Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.05.2006, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 16.05.2006, Qupperneq 37
379■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { útskrift 2006 } ■■■■ Elín starfar á Hellu en þar er hún nú að safna að sér tímum til að útskrif- ast alfarið sem heilsunuddari. „Ég útskrifaðist úr Nuddskóla Íslands í apríl sem nuddnemi en eftir um eitt til eitt og hálft ár þá útskrifast maður sem nuddari. Í þessum skóla lærir maður nokkrar tegundir af nuddi: klassískt nudd, íþróttanudd og teygjur, svæðanudd, heildrænt nudd og ilmolíu- og sogæðanudd. Ég byrjaði á bóklega náminu í Fjöl- brautaskólanum Ármúla en þar er sérstök nuddbraut. Ef þú kemur beint úr grunnskóla er það svona tvö ár í bóklegu námi en annars getur það verið mismunandi. Svo fór ég í Nuddskólann og þar var ég við verklegt nám í eitt ár,“ sagði Elín. „Þetta hefur verið ótrúleg lífs- reynsla. Þetta snýst ekki bara um að læra að ýta á líkamann heldur öðlast maður líka mikla reynslu og lærir að koma betur fram við fólk,“ sagði Elín en aðspurð sagðist hún ekki vera almennilega viss um það hvers vegna hún ákvað að fara þessa braut. „Flestir sem fara út í þetta vita eiginlega ekki almenni- lega ástæðuna fyrir því. Þetta hefur blundað í mér mjög lengi og ég ákvað að prófa.“ Elín er annar nuddarinn á Hellu en hún starfar undir leiðsögn konu í bænum og hefur þar aðstöðu. „Maður þarf alltaf að útvega sér meistara til að vera í leiðsögn hjá. Draumur minn er að eignast stofu í framtíðinni en þetta er fínt svona til að byrja með,“ sagði Elín en hún er 25 ára. „Ég flutti í bæinn til að stunda námið en er nú flutt aftur heim og er að safna að mér tímum til að útskrifast algjörlega sem nuddari. Maður þarf að safna að sér tæplega 1.000 klukkustundum og þá getur maður útskrifast sem heilsunuddari og hefur fullkomið starfsleyfi.“ Nuddskólinn er starfræktur í Asparfelli 12 í Breiðholti en það var 21 nemandi sem útskrifaðist úr honum í apríl. „Hópurinn hélt rosa- legt teiti og allir skemmtu sér kon- unglega. Við útskrifuðumst í húsa- kynnum skólans og svo var haldið í gleðskap hjá einum af kennurun- um og þangað pöntuðum við okkur mat. Svo var bara mikið stuð fram eftir nóttu. Ógleymanlegur dagur,“ sagði Elín Drífa Ólafsdóttir. Ótrúleg lífsreynsla í nuddinu Elín Drífa Ólafsdóttir útskrifaðist sem nuddnemi í síðasta mánuði. Elín Drífa Ólafsdóttir segir það draum sinn að eignast eigin nuddstofu í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Norræn hönnun frá broste-Copenhagen í útskriftargjöfina Sölustaðir m.a.: Blómaval Reykjavík-Blómaval Reykjanes-Blómaval Akureyri-Blómaval Selfoss - Tekk Company - Blómaturninn Dreifing: Bergís ehf – Heildverslun www.bergis.is sími: 587 8877 Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.