Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 66
34 16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Sendu SMS skeytið á númerið19 00 og þú gætir u nnið. BTC SBF Geggjaðir aukavinningar! PlayStation2 Tölvu • SingStar ROCKS kit Buzz Big Quiz kit • Fullt af SingStar DVD Buzz kit • Kippu af Pepsi Og margt fleira Vi nn in ga r ve rð a af he nt ir hj á BT S m ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t er tu k om in n í S M S kl úb b. 1 49 k r/ sk ey tið . A ða lv in ni ng ur d re gi n út ú r öl lu m in ns en du m S M S 31 .m aí . Aðalvinningur: PS2 tölva • Buzz Big Quiz kit • SingStar Rock kit 12. hve r vinnur! Nýjasti SingSta r PlayStation2 PlayStation2 Spurningarlei kur PlayStation2 FÓTBOLTI Knattspyrnuvertíðin hjá konunum hefst í kvöld þegar fyrsta umferðin í Landsbanka- deild kvenna verður leikin. Öruggt má telja að Breiðablik, Valur og KR verði í sérflokki en ÍBV verður ekki með þar sem meistaraflokkur kvenna hjá félaginu var lagður niður. Flestir bjuggust við því að Breiðablik myndi rúlla deildinni upp enda valinn maður í hverju rúmi en landslagið breyttist mikið um daginn þegar ljóst varð að landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir myndi ekki leika með Breiðabliki í sumar. Á svip- uðum tíma landaði Valur gríðar- lega sterkri þýskri landsliðs- konu. „Það er klárt að Breiðablik er með sterkasta hópinn en staðan hefur jafnast og svo má ekki gleyma því að KR hefur líka bætt við sig og er komið með helling af útlendingum. Þetta gæti orðið spennandi þriggja liða mót,“ sagði Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari kvennalandsliðsins. „Vonandi verður þetta skemmtilegt allt til enda. Ég ætla ekki að tala svo digurbarkalega að halda því fram að það verði slys ef Breiðablik vinnur ekki mótið. Það er samt sigurstrang- legast og er líka með mestu breiddina. Liðið hefur samt ekki verið að spila sérstaklega vel á undirbúningstímabilinu. Það voru allir að bíða eftir Ásthildi og svo kemur hún ekkert og það gæti sett strik í reikninginn hjá þjálfaranum,“ sagði Jörundur Áki, sem gerir ráð fyrir því að Stjarnan komi í humátt á eftir þessum þremur liðum og Kefla- vík, FH, Fylkir og Þór/KA berjist síðan á botninum. „Hvað leikmenn varðar verð- ur spennandi að sjá hvernig Greta Mjöll fylgir eftir tímabil- inu í fyrra. Svo verður einnig spennandi að sjá Þjóðverjann hjá Val og hvort hún sé eins góð og af er látið. Katrín Ómarsdóttir í KR er mikið efni og spurning hvort hún blómstri í sumar. Annars eru öll teikn á lofti að þetta geti orðið ágætt fótboltasumar hjá stelpun- um,“ sagði Jörundur Áki. - hbg Keppni í Landsbankadeild kvenna hefst í kvöld með fjórum leikjum: Breiðablik er sigurstranglegast ÞAÐ SEM KOMA SKAL? Blikum er spáð góðu gengi í sumar en liðið er þegar búið að vinna deildabikarinn og Meistarakeppni KSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR LEIKIR KVÖLDSINS: Breiðablik-KR 19.15 Valur-Stjarnan 19.15 Þór/KA-FH 19.15 Fylkir-Keflavík 19.15 2-1 Kópavogsv, áhorf: 1200 Egill Már Markússon (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 11–12 (6–5) Varin skot Hjörvar 5 – Kjartan 4 Horn 12–3 Aukaspyrnur fengnar 11–15 Rangstöður 3–4 1–0 Guðmann Þórisson (42.) 2–0 Atli Sveinn Þórarinsson, sjálfsm. (70.) 2–1 Valur Fannar Gíslason (89.) Breiðablik VALUR 4–3–3 Kjartan 6 Birkir Már 5 Valur Fannar 7 Atli Sveinn 6 Ari Freyr Skúla. 5 Baldur Aðalsteins. 3 (76. Barry Smith –) Sigurbjörn 6 Pálmi Rafn 6 (53. Kristinn Hafl. 6) Matthías Guð. 4 Guðmundur Ben. 4 Garðar Gunnlaugs. 4 (67. Jakob Spansberg 5) Valur Slegist um miðana Forsala á leik Íslands og Svíþjóðar í umspili fyrir HM 2007 sem fram fer í Laugardalshöll 17. júní fer vel af stað og með álíka framhaldi verður uppselt á leikinn fyrir mánaðamót. Hægt er að kaupa miða á midi.is og icelandair.is. Einnig býður Icelandair upp á hópferðir á leikinn í Stokkhólmi 11. júní en 500 miðar fara til Íslands. 16 þúsund manns verða á leiknum. Helgi Már Magnússon, landsliðsmaður í körfubolta, stefnir á að komast að hjá atvinnumannaliði í Evrópu næsta vetur en hann er við það að ljúka námi í North Carolina-háskólanum í Bandaríkjunum þar sem hann hefur verið undanfarin þrjú ár. Helgi Már er með „nokkra góða menn“ að vinna í sínum málum þessa dagana og er bjartsýnn á að dæmið gangi upp. „Það er ekkert fast í hendi enn sem komið er en þetta kemur allt í ljós í sumar,“ sagði Helgi við Fréttablaðið og bætti því við að ef hann kæmist ekki að hjá neinu liði myndi hann spila heima á Íslandi og þá nánast örugglega með sínum gamla félagi í Vesturbænum, KR. „Annars held ég að það færi illa fyrir mér,“ sagði Helgi og hló en bróðir hans situr í stjórn körfuknatt- leiksdeildar KR og myndi líklega ekki sætta sig við að Helgi færi til einhvers annars félags. „Ég held að ég geti alveg staðfest það að ef ég spila á Íslandi verður það með KR.“ Helgi Már er og hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu síðustu ár og af flestum talinn einhver allra sterkasti framherji Íslands. Ljóst er að hann yrði mikill hvalreki á fjörur KR en sjálfur segist hann frekar eiga von á því að spila erlendis á næstu leiktíð. „Ég stefni á Evrópu og ég hef fulla trú á að ég geti spjarað mig þar. Ég á mér engan sérstakan draumaáfangastað heldur stefni fyrst og fremst á að komast að hjá liði þar sem ég fæ að spila reglu- lega. Það heillar miklu meira en að vera hjá of góðu liði og fá lítið sem ekki neitt að spila,“ segir Helgi. KÖRFUBOLTAMAÐURINN HELGI MÁR MAGNÚSSON: HEFUR LOKIÐ NÁMI Í BANDARÍKJUNUM Stefnir á atvinnumennsku í Evrópu > Björgvin á leið til Fram Markvörðurinn Björgvin Páll Gúst- avsson mun að öllum líkindum skrifa undir samning við Íslandsmeistara Fram á allra næstu dögum. Björgvin Páll er eftirsóttur af nokkrum félögum í DHL-deildinni en staðfesti við Frétta- blaðið í gær að líklegast væri hann á leið í Safamýrina. Það er hins vegar í Digranesinu sem málið hefur farið í hnút því þar á bæ eru menn ekki á því að leyfa Björgvini að fara án þess að HK fái eitthvað fyrir sinn snúð, en markvörður- inn á ennþá eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Björgvin Páll kvaðst þó ekki eiga von á öðru en að allir hlutaðeig- andi aðilar nái saman að lokum. 1. deild karla: LEIKNIR-HK 2-0 1-0 Pétur Örn Svansson (6.), 2-0 Einar Örn Ein- arsson (14.). HAUKAR-ÞRÓTTUR 0-2 Sænski boltinn: KALMAR-HALMSTAD 2-1 Gunnar Heiðar lék allan leikinn en skoraði ekki. ÚRSLIT GÆRDAGSINS BREIÐ. 4–5–1 Hjörvar 7 Árni Kristinn 6 Guðmann Þóris. 7 Oliver Risser 7 *Stig Haaland 8 Kristján Óli Sig. 5 (90. Magnús Páll –) Petr Podzemsky 7 Olgeir Sigurgeirs. 8 Ragnar Heimir 4 Gunnar Örn 5 (64. Steinþór Freyr 5) Marel Baldvins. 5 *Maður leiksins FÓTBOLTI Leikurinn byrjaði með nokkrum látum og bæði lið keppt- ust við að sækja. Valsmenn fengu dauðafæri strax á 5. mínútu en Hjörvar varði slakt skot Vals Fannars auðveldlega. Blikar fengu fljótlega sín færi en Kjartan, markvörður Vals, var vel með á nótunum eins og félagi hans hinum megin. Eftir tuttugu mínútur rann mesti móðurinn af liðunum og ekki nokkur skapaður hlutur gerð- ist fyrr en Guðmann Þórisson kom heimamönnum yfir á 42. mínútu með góðum skalla eftir horn- spyrnu Stigs Haaland. Nýliðarnir yfir í leikhléi og sú staða gaf góð fyrirheit fyrir síðari hálfleikinn. Síðari hálfleikur stóð ekki alveg undir væntingum. Hinir skemmtilegu sóknarmenn Vals voru úti á túni og lítið sem ekkert gerðist í sóknarleik þeirra. Sókn- arlotur Blika voru ekki heldur merkilegar en þeim fyrirgafst það enda marki yfir. Jafnræði var með liðunum en dagskránni lauk um tuttugu mínútum fyrir leiks- lok þegar Atli Sveinn skoraði skrautlegt sjálfsmark. Skallaði í eigið net einn í teignum og ekki undir neinni pressu. Spurning hvort Kjartan hafi látið hann vita? Valsmenn færðust allir í auk- ana undir lokin og Valur Fannar minnkaði muninn fyrir þá undir lokin en það var of lítið og of seint. Blikar fögnuðu sigrinum innilega í lokin en þeir sýndu í leiknum að ekkert lið mun hafa af þeim stig á auðveldan hátt. Liðið er vel skipulagt, þekkir sín takmörk og leikmenn vinna vel hver fyrir annan. Með þolinmæði og álíka baráttu munu Blikar vel geta halað inn fjölda stiga og hald- ið sæti sínu í deildinni. Valsmenn ollu nokkrum von- brigðum í leiknum en sóknarleik- ur liðsins var broddlítill og lykil- menn fjarri sínu besta. Tapið er liðinu klárlega áfall en Valur á mikið inni og verður gaman að sjá liðið með Barry Smith í formi. „Þetta var algjör klassi en tæpt í lokin,“ sagði hinn ungi marka- skorari Blika, Guðmann Þórisson, sem átti fínan leik. „Það fór um okkur síðustu mínúturnar en við náðum að bjarga þessu og yfir því er ekki hægt að kvarta. Annars fannst mér við eiga leikinn fyrir utan lokamínúturnar.“ henry@frettabladid.is Draumabyrjun hjá Breiðabliki Nýliðar Blika fengu óskabyrjun í Landsbankadeildinni er þeir lögðu bikarmeistara Vals í Kópavogi í gær- kvöldi, 2-1. Blikar stóðust nokkuð mikla pressu Valsmanna á lokamínútum leiksins og uppskáru óvæntan en verðskuldaðan sigur, stuðningsmönnum liðsins til mikillar gleði. 1-0 Varnarjaxlinn Guðmann Þórisson sést hér skora fyrsta mark leiksins í gær með góðum skalla eftir hornspyrnu. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.