Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 11

Fréttablaðið - 16.05.2006, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 2006 fiú sækir um á www.e2.is Peningar og punktar, allt sem flú flarft! e2 Vildarkort er n‡tt VISA kreditkort sem veitir korthöfum bæ›i Vildarpunkta Icelandair og endurgrei›slu – allt í sömu færslunni, hvar sem flú verslar innanlands. Kostir e2 Vildarkortsins: SPRON / Sími: 550 1400 / thjonusta@e2.is / www.e2.is Allt í einu korti fiú flarft engu a› breyta í innkaupum – fiú fær› bæ›i Vildarpunkta og endurgrei›slu hvar sem flú verslar innanlands. fiú fær› Vildarpunkta og endurgrei›slu af öllum bo›grei›slum eins og orkureikningum, leikskólagjöldum, fasteignagjöldum, sjónvarpsáskriftinni og öllu hinu sem fylgir flví a› reka heimili. fiú fær› 0,65–25% vi›bótarendurgrei›slu e›a vi›bótarvildarpunkta og ‡mis sértilbo› hjá næstum 400 fyrirtækjum. Me› flví a› nota e2 Vildarkorti› getur›u áunni› flér tugi flúsunda Vildarpunkta sem hægt er a› nota til a› komast út í heim me› Icelandair og tugi flúsunda króna sem flú notar í fla› sem flér hentar! Allir geta sótt um korti› óhá› vi›skiptabanka WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst senda þúsundir þjóðvarðliða til landa- mæra Mexíkó í því skyni að stöðva eða draga verulega úr straumi ólöglegra innflytjenda til Banda- ríkjanna. Bush hugðist skýra frá þessum áformum opinberlega í sjónvarps- ávarpi seint í gærkvöld, en fréttir höfðu þá þegar borist fréttastof- um og fjölmiðlum í Bandaríkjun- um. Af hálfu forsetans munu þessar aðgerðir til þess ætlaðar að afla frekari stuðnings á þingi við breyt- ingar á innflytjendalöggjöf Banda- ríkjanna. Hörðustu íhaldmennirn- ir á þinginu hafa hikað við að styðja þær breytingar, sem eiga að auðvelda þeim ólöglegu inn- flytjendum sem þegar eru komnir til landsins að fá dvalar- og atvinnuleyfi. Þjóðvarðliðarnir eiga að styrkja störf landamæralögreglunnar, sem áfram ber þó meginábyrgð á gæslu landamæranna. Um það bil hundrað þjóðvarðliðar eru nú þegar staðsettir við landamærin til að aðstoða við baráttu gegn smygli á eiturlyfjum. Ýmsir þingmenn hafa þó lýst áhyggjum sínum af því að auka enn álagið á sveitir þjóðvarðliða, sem nú þegar hafa töluverðu hlut- verki að gegna í Írak. Til dæmis hefur repúblikaninn Chuck Hagel sagt að það samrýmist ekki hlut- verki þjóðvarðliðsins að gæta landamæra. Nær væri að efla landamæragæsluna sjálfa, fjölga í liði hennar sem nú nemur um 12.000 manns. Einnig hefur Vicente Fox, for- seti Mexíkó, lýst áhyggjum sínum af því að nú eigi að hervæða landa- mærin. Maria Tamburri, talsmað- ur Hvíta hússins, segir að Bush hafi þó fullvissað Fox um að Bandaríkin líti á Mexíkó sem vin- veitt ríki og að „það sem nú er í bígerð sé ekki hervæðing landa- mæranna heldur eigi þjóðvarðlið- arnir að styrkja landamæragæsl- una tímabundið.“ Sjálfur hugðist Bush forseti skýra nánar frá áformum sínum í sjónvarpsávarpi sínu, sem allar helstu sjónvarpsstöðvarnar sýndu í beinni útsendingu í gærkvöld. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig áform um að reisa tvöfalda varnargirðingu meðfram stórum hluta landamæranna til þess að auðvelda landamæragæslunni störfin. gudsteinn@frettabladid.is Landamæra- gæsla stórefld George W. Bush skýrði í gærkvöld frá áformum um að stórefla gæslu við landamærin að Mexíkó. WASHINGTON, AP Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í gær að Líbía yrði tekin af lista Bandaríkjanna yfir þau ríki sem styddu hryðjuverka- menn. Jafnframt taka ríkin tvö upp stjórnmálasamband að nýju eftir 25 ára hlé. Fyrir þremur árum féllst Moammar Gadhafi Líbíufor- seti á að eyða gereyðingarvopnum og hefur síðan lagt áherslu á að bæta ímynd landsins, meðal ann- ars með greiðslu skaðabóta til aðstandenda þeirra sem fórust með farþegaþotu yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988. - gb Bandaríkin taka Líbíu í sátt: Gadhafi þykir standa sig vel MOAMMAR GADHAFI Líbíuforseti er kom- inn í náðina á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.