Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 6
6 16. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ �������������� ����������������������������������������������������������������� ���� ����� ���� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� KJÖRKASSINN Á að hætta við byggingu há- tæknisjúkrahúss við Hringbraut? Já 74% Nei 26% SPURNING DAGSINS Í DAG Heldurðu að Silvía Nótt komist áfram í forkeppni Eurovision? Segðu þína skoðun á visir.is SKOÐANAKÖNNUN Vinstri grænir á Akranesi geta næstum tvöfaldað fylgi sitt frá síðustu sveitarstjórn- arkosningum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. 12,6 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn, en hann hlaut 6,7 prósent atkvæða í síðustu kosn- ingum. Ef þetta yrðu niðurstöður kosninga myndi flokkurinn fá einn bæjarfulltrúa kjörinn, en hann hefur nú engan fulltrúa í bæjar- stjórn. Í könnun Félagsvísindastofn- unar sem gerð var um mánaða- mótin mars-apríl sögðust 10,8 pró- sent myndu kjósa Vinstri græna og hefur flokkurinn því aðeins bætt við sig fylgi síðan þá. Jafnt hlutfall karla og kvenna segjast nú myndu kjósa listann. Sjálfstæðisflokkurinn bætir einnig við sig fylgi frá síðustu kosningum. 41,7 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust nú myndu kjósa flokkinn. Samkvæmt því myndi Sjálfstæðisflokkurinn halda sínum fjórum bæjarfulltrú- um. Aðeins fleiri karlmenn en konur segjast myndu kjósa flokk- inn; 42,3 prósent karla og 40,9 pró- sent kvenna. Þetta er örlítið minna fylgi en flokkurinn mældist með í skoðanakönnun Félagsvísinda- stofnunar, þegar 42,6 prósent sögðust myndu kjósa flokkinn. Athygli vekur að í millitíðinni kynnti Sjálfstæðisflokkurinn Gísla Einarsson, fyrrum þing- mann Samfylkingar, sem bæjar- stjóraefni sitt. Það útspil virðist ekki hafa áhrif á fylgi flokksins. Fylgið nú mælist hins vegar nokk- uð meira en í síðustu kosningum, þegar hann hlaut 35,0 prósent atkvæða. Samfylking tapar fylgi frá síð- ustu kosningum. Nú segist 28,1 prósent myndu kjósa flokkinn. Samkvæmt því myndi flokkurinn halda sínum þremur bæjarfulltrú- um. Örlítið fleiri karlar en konur segjast myndu kjósa Samfylking- una, en fylgið skiptist nánast jafnt milli kynja. Þessi niðurstaða er mjög áþekk skoðanakönnun Félagsvísindastofnunnar, þegar 28,9 prósent sögðust myndu kjósa flokkinn. Fylgið nú mælist tæpum fjórum prósentustigum minna en flokkurinn hlaut í síðustu kosning- um þegar flokkurinn hlaut 32,4 prósent atkvæða. Framsóknarflokkurinn tapar verulegu fylgi frá síðustu kosn- ingum. Nú mælist fylgi Framsókn- arflokksins 12,7 prósent og fengi flokkurinn samkvæmt því einn bæjarfulltrúa kjörinn. Aðeins fleiri konur en karlar styðja Fram- sóknarflokkinn á Akranesi nú, en 14,1 prósent kvenna segist myndu kjósa flokkinn, en 11,5 prósent karla. Þessi niðurstaða er nánast samhljóða könnun Félagsvísinda- stofnunnar, þegar fylgi flokksins mældist 12,3 prósent. Flokkurinn tapar hins vegar 13,3 prósenta fylgi frá síðustu kosningum, þegar Framsóknarflokkurinn hlaut 26,0 prósent atkvæða og tvo bæjarfull- trúa kjörna. Frjálslyndi flokkurinn bauð ekki fram í síðustu sveitarstjórn- arkosningum. Fylgi flokksins mælist nú 4,5 prósent. Í könnun Félagsvísindastofnunnar höfðu Frjálslyndir ekki tilkynnt um framboð, en þá sögðust 5,4 pró- sent kjósa Frjálslynda flokkinn. Hringt var í 600 íbúa Akranes- kaupstaðar mánudaginn 15. maí. Skiptust svarendur jafnt milli kynja. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga nú? 55,2 prósent tóku afstöðu til spurning- arinnar. Einnig var spurt hvort viðkom- andi hafi nýtt sér þjónustu Strætó bs. milli Akraness og Reykjavík- ur. Rúmlega fjórðungur, 26,5 pró- sent, sagðist hafa nýtt sér þessa þjónustu en 73,5 prósent sögðust ekki hafa gert það. Nokkuð fleiri konur sögðust hafa tekið strætis- vagn milli Akraness og Reykja- víkur; 30,7 prósent á móti 22,4 prósentum karla. Nokkuð margir vildu þó taka fram að þó svo að þeir notuðu ekki þjónustuna sjálf- ir væri mikil ánægja með þessa þjónustu. 99,8 prósent svarenda tóku afstöðu til þessarar spurningar. svanborg@frettabladid.is Vinstri grænir gætu komið manni að Framsókn fengi aðeins einn fulltrúa kjörinn á Akranesi og tapar manni til Vinstri grænna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Sjálfstæðis- flokkur og Samfylking halda sínum fulltrúum en Frjálslyndir ná ekki manni inn. Já 26,5% Nei 73,5% Akranes 2006 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR ■ Kosningar 2002 B 12,7% D 41,7 F 4,5% S 28,1% V 12,7% Hvaða lista myndir þú kjósa ef boðað yrði til kosninga nú? Hefur þú nýtt þér þjónustu Strætó bs. milli Akraness og Reykjavíkur? Skoðanakönnun Fréttablaðsins 15. maí 2006 SVEITASTJÓRNARMÁL „Ég verð að segja eins og er að það var lítil prýði að þessum girðingum en engu að síður voru þær teknar niður í heimildarleysi,“ segir Úlfar Ármannsson, íbúi að Aspar- vík á Álftanesi. Komið hefur í ljós að félagar í Lionsklúbbi Álftaness, sem fengu tæpa milljón króna frá bænum fyrir nokkur verkefni til fegrunar bæjarins, rifu niður landamerkja- girðingar í leyfisleysi og verður bærinn að standa straum af kostn- aði við að koma þeim upp aftur. Um er að ræða landamerkja- girðingar milli Álftaness og Garðabæjar, Kirkjubrúar og Brekku auk merktrar spildu í eigu fyrirtækis. Að sögn Úlfars hafa eigendur þeirrar spildu fallist á að settar verði hnitamerkingar í stað stauranna sem fyrir voru en. „Mál sem þessi eru þó nokkuð alvarleg og refsiverð í raun. Framkvæmdagleði er af hinu góða en kapp er best með forsjá. Guð- mundur G. Gunnarsson bæjar- stjóri rauk hins vegar til þegar þetta varð ljóst og samkomulag hefur náðst held ég við alla aðila sem hlut eiga að máli.“ - aöe FRÁ ÁLFTANESI Á myndinni sést hluti þeirra girðinga er fjarlægðar voru í heimildarleysi af félagsmönnum Lions á Álftanesi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Fengu hundruð þúsunda fyrir að fegra bæinn: Rifu landamerkjagirðingar HEILBRIGÐISMÁL Stefnt er að því að koma á svokallaðri hágæslu á Barnaspítala Hringsins á LSH eins fljótt og auðið er. Þetta segir Ragnheiður Sigurðardóttir, deild- arstjóri á vökudeild, sem sæti á í hjúkrunarráði spítalans og er jafn- framt í teymi sem undirbýr hágæsluna. Í sjónvarpsþættinum Kompási á NFS var í fyrrakvöld greint frá hjónum sem eiga mikið veikt barn á spítalanum. Þau höfðu vakað yfir því síðustu vikur og mánuði, en í gær brá til betri vegar. „Okkur var tilkynnt að það yrði fengið hjúkrunarfólk til að sinna barninu að næturlagi, en það þarf aðstoð á klukkustundar fresti,“ sagði Hjörleifur Már Jóhannsson, faðir barnsins, við Fréttablaðið. „Þetta þýðir að fólk þarf að bæta á sig aukavinnu, sem er slæmt. En þetta er mikill léttir fyrir okkur því ef svefninn fer þá er lítið eftir.“ Um helgina var auglýst eftir fólki til starfa við hágæsluna og hafði ein umsókn borist í gær. Spurð hvenær gera megi ráð fyrir að hágæslan komist á segir Ragn- heiður það fara eftir svörun við atvinnuauglýsingunni. „Ef hún er góð þarf nokkrar vikur til að hún verði að raunveru- leika,“ sagði hún.“ Við þurfum að ráða tvær vaktalínur, sem þýðir 9- 10 hjúkrunarfræðinga. Við erum bjartsýn úr því að viðbrögð fóru að berast við auglýsingunni á fyrsta virka degi eftir að hún birtist.“ - jss BARNASPÍTALINN Fyrir liggur að hágæsl- an fær sextíu milljónir á ári í fimm ár til rekstrarins. Auglýst eftir tug hjúkrunarfræðinga á Barnaspítala Hringsins: Hágæslu verður hraðað DÓMSMÁL Sautján ára ungum refsifanga á Litla-Hrauni var ekki gerð sérstök refsing fyrir héraðsdómi vegna fíkniefna sem fundust á honum þegar hann sneri til baka í fangelsið eftir dagsleyfi. Segir í dómnum að þar sem magn fíkniefnanna hafi verið lítið og hafi ekki haft áhrif til þynging- ar dómi þeim er hann var dæmdur til í Hæstarétti hinn 11. maí síðast- liðinn verði honum ekki gerð sér- stök refsing nú. Pilturinn afplánar rúmlega tveggja ára fangelsisdóm vegna fíkniefnabrots og ráns. Á pilturinn langan sakaferil að baki þó ungur sé. - aöe Ungur fangi sýknaður: Var með dóp á Litla-Hrauni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.