Fréttablaðið - 20.05.2006, Page 8
20. maí 2006 LAUGARDAGUR
STJÓRNSÝSLA Framleiðsla nýrrar
gerðar vegabréfa hefst 23. maí. Í
nýju vegabréfunum verður raf-
rænt lífkenni á örflögu sem hefur
að geyma mynd af handhafanum.
Að sögn Jóhanns Jóhannssonar,
sérfræðings hjá dómsmálaráðu-
neytinu, er ekki þörf á því að
hlaupa til og endurnýja vegabréfið
þá þegar, þar sem núgildandi
vegabréf haldi gildi sínu að fullu
og verði ekki innkölluð.
Þrátt fyrir að kostnaður við
framleiðslu nýju vegabréfanna sé
mun meiri en þeirra gömlu er ekki
ráðgert að hækka verð þeirra til
handhafa. Til lengri tíma litið
verða vegabréf fullorðinna þó í
reynd tvöfalt dýrari þar sem
gildistími þeirra verður einungis
fimm ár í stað tíu áður.
Með tilkomu nýju vegabréf-
anna verður ekki hægt að sækja
um vegabréf erlendis nema í fimm
sendiráðum; í Noregi, Svíþjóð,
Danmörku, Englandi og Banda-
ríkjunum. Jóhann vill því benda á
að skynsamlegt gæti verið fyrir
fólk búsett erlendis, í öðrum
löndum en þessum fimm, að endur-
nýja vegabréf sitt eigi það leið til
Íslands og stutt sé eftir af gildis-
tíma bréfsins. - sh
Framleiðsla vegabréfa með lífkennum hefst 23. maí:
Gömlu vegabréfin
halda gildi sínu
FARÞEGAR VIÐ LEIFSSTÖÐ Gömlu vegabréf-
in verða ekki innkölluð.
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
������� ����������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
17
15
LYFJAMÁL Íslensk erfðagreining
hefur nú hafið lokaprófanir á nýju
hjartalyfi sem nefnist DG031 og er
fyrsti sjúklingurinn byrjaður að
taka lyfið. Prófanir verða gerðar á
um 3.400 hjartasjúklingum í
Bandaríkjunum en óvíst er hvenær
þeim líkur.
Sérstaða Íslenskrar erfðagrein-
ingar felst í erfðarannsóknum við
þróun lyfja. „Þetta er mikilvægt
skref, bæði fyrir okkur og fyrir
lyfjaiðnaðinn almennt, því þetta er
í fyrsta sinn sem þekking á líf-
fræðilegum orsökum algengs sjúk-
dóms sem fengist hefur með erfða-
rannsóknum skilar nýju lyfi í
síðasta fasa lyfjaprófana,“ segir
Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar.
Vísindamenn Íslenskrar erfða-
greiningar hafa fundið erfða-
breytileika sem eykur hættu á
hjartaáföllum en prófanir verða
einkum á svörtum hjartasjúkling-
um sem hafa þennan breytileika.
Um 400 Íslendingar fá hjarta-
áfall á hverju ári en það er svipað
hlutfall og á öðrum Vesturlöndum.
Í iðnvæddum ríkjum eru hjarta-
áföll algengasta dánarorsökin en
um helmingur karlmanna fær
hjartaáfall áður en yfir lýkur. - gþg
Íslensk erfðagreining hefur lokaprófanir á hjartalyfi:
Prófanir gerðar á
hjartasjúklingum
HÖFUÐSTÖÐVAR ÍSLENSKRAR ERFÐAGREININGAR Í VATNSMÝRINNI. Um 400 Íslendingar fá
hjartaáfall á hverju ári en það er svipað og á öðrum Vesturlöndum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÁRI STEFÁNSSON Þetta er mikilvægt skref
fyrir lyfjaiðnaðinn almennt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖNNUN Meirihluti vinstrimanna
á Húsavík mun falla í komandi
sveitarstjórnarkosningum sam-
kvæmt skoðanakönnun Þekkingar-
seturs Þingeyinga og héraðs-
fréttablaðsins Skarps á Húsavík.
Minnihluti Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks fær samkvæmt
könnuninni sex af níu bæjarfull-
trúum en núverandi meirihluti
einungis þrjá.
Könnunin var gerð með póst-
kosningu í síðustu viku. Úrtakið
var liðlega 400 manns og svar-
hlutfallið 46 prósent. Tæplega
þriðjungur kjósenda gaf ekki upp
afstöðu sína. - kk
Fylgi flokkanna á Húsavík:
Meirihlutinn
kolfallinn
Húsavík
B
35,0%
D
26,6%
S
23,7%
V
14,7%
23
3
1
Skipting atkvæða og
fjöldi bæjarfulltrúa
Könnun Þekkingarseturs Þingeyinga og
héraðsfréttablaðsins Skarps á Húsavík
ATVINNA Daníel Ólafsson ehf. og
Sensa ehf. eru fyrirtæki ársins
og Skattrannsóknarstjóri ríkis-
ins stofnun ársins. Þetta er niður-
staða könnunar VR og SFR sem
kynnt var á Nordica hóteli í gær.
Rúmlega tíu þúsund starfs-
menn hjá 1900 fyrirtækjum tóku
þátt í könnun VR á Fyrirtæki árs-
ins 2006, sem er metþátttaka.
Danól varð hlutskarpast í flokki
stærri fyrirtækja og Sensa í
flokki þeirra minni.
Félagsmenn SFR tóku í fyrsta
sinn þátt í könnuninni og endaði
Skattrannsóknarstjóri í efsta
sæti. Um 3000 starfsmenn nærri
300 stofnana tóku þátt. - sh
Fyrirtæki og stofnun ársins:
Danól og Sensa
fyrirtæki ársins