Fréttablaðið - 20.05.2006, Page 72
Í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur gefur nú
að líta sýnishorn af
ýmsum áróðursvopn-
um sem stjórnmála-
flokkarnir hafa beitt
í sveitarstjórnarkosn-
ingum í gegnum árin.
Undir handleiðslu Guð-
mundar Odds Magn-
ússonar, prófessors í
grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands, og
Svanhildar Bogadóttur
borgarskjalavarðar leit
Jón Sigurður Eyjólfsson á
áróðurinn sem kjósend-
ur hafa fundið fyrir hér
á árum áður.
„Þessi áróðursplögg draga dám af
tíðarandanum, bæði hvað varðar
hönnun, útlit frambjóðenda og svo
þeirri framtíðarsýn sem kynnt
er,“ segir Guðmundur Oddur. „Og
þau eldast misvel eins og sést til
dæmis á áróðursplöggum Sjálf-
stæðisflokksins frá 6. áratugnum
en þar er mynd af ungum dreng og
á plagginu stendur: „Mamma og
pabbi kjósa fyrir mig.“ Þetta
myndi ekki gera sig í dag.
En stílbrögðin eru nokkuð lík
alls staðar. Til dæmis hafa Banda-
ríkjamenn, Rússar, Þjóðverjar,
Bretar og fleiri notað bendandi
fingur til að eggja áhorfandann til
leiks. Það eru ekki nema fjögur ár
síðan Framsóknarflokkurinn beitti
þessu bragði en þá reyndar með
kind sem beindi klauf sinni að
kjósandanum og undir stóð „Við
viljum þig í Framsóknarflokkinn.“
Þarna er eflaust verið að spauga
með auglýsingu sem bandarísk
yfirvöld notuðu á sínum tíma til að
hvetja fólk til að ganga í herinn.“
Ælupokar, hurðaspjöld
og eyrnatappar
Menn hafa beitt ýmsum brögðum
til að vekja athygli á málstað
sínum eða til að koma höggi á and-
stæðinginn. Til dæmis létu Alþýðu-
bandalagsmenn gera ælupoka
fyrir kosningar 1986 með sérstök-
um leiðbeiningum en þær voru:
„Settu í pokann öll afdönkuð
íhaldssjónarmið sem þú verður
var/vör við í umhverfi þínu. Lok-
aðu pokanum vandlega og hent´on-
um í ruslið!“
Og fleiri vildu sporna við þeirri
mengun sem þeir töldu stafa af
íhaldinu. Til dæmis má finna
eyrnatappa með eftirfarandi leið-
beiningum: „D-tappinn. Lausn frá
leiðindum. Varúð: Hávaðamengun
Sjálfstæðisflokksins getur skaðað
heilsu þína.“ Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur einnig beitt brögðum til
að koma höggi á andstæðinga sína.
Til dæmis létu Sjálfstæðismenn í
Reykjavík gera hurðaspjöld, líkt
og notuð eru á hótelum, fyrir kosn-
ingarnar 1982. Öðru megin var
það rautt og þar stendur: „Vinsam-
legast ónáðið ekki. Þar voru einnig
tíundaðar ástæður fyrir því af
hverju Reykvíkingar ættu ekki að
kjósa vinstri stjórn.“
Formið og sannfæringar-
krafturinn
En umfang kosningaáróðursins er
ávallt háð þeirri tækni sem til er á
hverjum tíma. „Á fyrrihluta 9. ára-
tugarins eru komin til skjalanna
fyrirtæki sem prenta á alla skap-
aða hluti og menn eru fljótir að
nýta sér þetta. Þá fóru menn að
þrykkja áróðurinn á penna, spil og
í raun allt mögulegt. Eflaust hafa
margir gætt sér á sælgæti nú síð-
ustu daga sem verið hefur í kyrfi-
lega flokksmerktum umbúðum.“
En hvað finnst Guðmundi Oddi um
grafíkvinnuna við þessi áróðurs-
plögg? „Sumt af þessu er ágætlega
unnið og það sést þá hverjir höfðu
efni á því að láta fagmenn um vinn-
una. En svo er einnig hægt að sjá
plögg sem bera vitni um lélega
grafíkvinnu en mikinn sannfær-
ingarkraft. Þá finnur lesandinn
fyrir því að sá sem vann verkið
trúir virkilega á það sem þar er
sagt meðan á öðrum plöggum getur
því verið öfugt farið; að formið er
flott en andinn af skornum
skammti. Annars sýnist mér áber-
andi í dag að þeir reyni að segja
sem minnst því fæst orð hafa
minnsta ábyrgð. Þeir vilja helst
aðeins minna á sig án þess að gefa
of mikið færi á sér.“ Svanhildur
Bogadóttir borgarskjalavörður
segir að stundum leiti fulltrúar
flokkanna til sín og vilji fá að kíkja
á gömul áróðursplögg til að minna
sjálfa sig á það hverju þeir og and-
stæðingarnir voru búnir að lofa.
Bylting eða pulsupartí
Það virðist heldur ekki þurfa
dýran pappír og litríkar myndir til
að boða til byltingar. Sennilega
verður áróðursplagg Húmanista-
flokksins sennilega seint lofað fyrir
hönnun en andann skortir ekki. Þar
er boðað til byltingar, svart á app-
elsínugulu; völdin til fólksins,
ókeypis heilbrigðisþjónusta,
menntun og leikskólavistun fyrir
alla. Reyndar er það plagg ekki svo
ólíkt kosningaplaggi B-listans frá
því um miðja síðustu öld. Þar er
minnt á frambjóðendur sem eru
allir af alþýðustétt og almenningur
beðinn um að láta ekki glepjast af í
pólitískum flokkadráttum. Þar er
því atvinnu frambjóðenda getið
eins og oft viðgengst en fulltrúar
Kvennalistans brutu blað þegar
þær kynntu sína frambjóðendur, en
þá var tekið fram hversu mörg
börn hver þeirra ætti.
En ekki er alltaf reynt að höfða
til kjósandans með jafn alvarlegum
hætti og gamli B-listinn gerði eða
Húmanistaflokkurinn. Stundum
virðist lausnin felast í því að bregða
upp skemmtilegri stemningu og
boða frekar til veislu heldur en
byltingar. Auglýsing R-listans fyrir
síðustu kosningar er gott dæmi um
þetta en þar eru frambjóðendur
saman í heitum potti og bjóða í
pylsuveislu.
20. maí 2006 LAUGARDAGUR40
Öllum kosningabrögðum beitt
SVANHILDUR BOGADÓTTIR Borgarskjala-
vörður stendur hér við áróðursplöggin sem
gerð hafa verið handa kjósendum, en þar
hefur ýmsum brögðum verið beitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUÐMUNDUR ODDUR MAGNÚSSON
Að sögn Guðmundar Odds sést greinilega
hvaða flokkar hafa haft efni á að láta
fagmenn gera áróðursplöggin.