Fréttablaðið - 20.05.2006, Page 96

Fréttablaðið - 20.05.2006, Page 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 60 02 .V .B s met sy S AEKI re tn I © Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is 6002.V.B s met sy S AEKI re tn I © 150,- Grilluð pylsa og gos um helgina BÅLSÖ blómapottur Ø50 cm 3.490,- BLEKESKÄR blómakassi 36x36x48 cm 1.990,- ODLA bakki og þrír pottar 30x10x7 cm 295,- BÅLSÖ blómapottur Ø39 cm 1.690,- BETA hengipottur Ø20 H32 cm 490,- HULTET blómapottur Ø30 H32 cm 790,- HULTET blómapottur Ø20 H24 cm 390,- SOMMAR blómapottur Ø18 H18 cm PETÚNÍA sumarblóm ýmsir litir CACTACEAE kaktusar 3 stk. í pk. 295,- 490,- Blómamarkaður 18. - 28. maí sumarblom 490,- DALÍA sumarblóm, ýmsir litir BETA garðkanna galvaníseruð 2,7 l 590,- RÖNÖ garðskraut 36 cm 290,- VÅJÖN blómastandur rauðbrúnt/galvaníserað 47x27x81 cm 2.990,- SKATÖN skraut ýmsar tegundir 290,- 490,- TRAUSTUR FERÐAFÉLAGIEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR Á FERÐ OG FLUGI ‒ með ferðatösku frá FAXE ���������� ��������� ��������������� Stærstu tíðindin í borgarstjórn-arkosningunum eru án efa þau að báðir stjórnarflokkarnir eru á harðahlaupum undan sjálfum sér. Sá minni forðast að nefna sjálfan sig á nafn og kallar sig núna Bé, en sá stærri hefur gripið til þess ráðs að fela frambjóðendur, segja sem minnst og breyta markvisst um stefnu, merki, stíl og lit. MÉR finnst alltaf heiðarlegra þegar flokkar halda sig við mark- mið sín, eru stoltir af sögu sinni og koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Fyrir nokkrum vikum var hægt að fara inn á www.frelsi. is og lesa allt um stefnumál íslenskra frjálshyggjumanna í Sjálfstæðisflokknum, greinar um nauðsyn þess að taka upp skóla- gjöld og fjölga einkaskólum. Núna er þar komin bleik síða í staðinn undir heitinu D.is þar sem flokk- urinn tilkynnir okkur það unaðs- lega markmið sitt að hann ætli að „leita allra leiða til að ungu fólki líði vel í Reykjavík“. ÞAÐ er nú gott. Loftkenndara verður það samt varla. Hin raun- verulega stefna, sem flokkurinn þorir ekki að veðja á þessa stund- ina, er talsvert skýrari: „Hið opin- bera á ekki að reka leikskóla“ stendur í stefnu Sambands ungra sjálfstæðismanna, svo dæmi sé tekið. Þessu stefnumáli er ekki mikið flaggað núna, í borg sem er stolt af leikskólum sínum. Nú sitja frambjóðendur úr röðum þessa sama flokks inni á þessum sömu leikskólum á blaðamannafundum og kynna bleikbrosandi stefnu sína um 25% lækkun á leikskóla- gjöldum. Þeir segja reyndar ekki neinum frá því að þeir studdu ekki slíka lækkun þegar hún var sam- þykkt í borgarstjórn í desember síðastliðnum. BLEIKUR er hann orðinn. Bleikri framtíð þar sem Reykvíkingar svífa um á bleiku skýi er lofað í bleikum sjónvarpsauglýsingum þar sem frambjóðendur sjást auð- vitað hvergi. Það er skiljanlegt Að sýna frambjóðendur þjónar illa markmiði flokksins fyrir þessar kosningar. Hvað þá að þeir tali um pólitík. Nú á nefnilega að freista þess að sýnast vera velferðar- flokkur. TÍMI til að gera hitt og þetta, er auglýst. Sjálfstæðismenn virðast hafa komist að þeirri niðurstöðu að nú sé runninn upp tími til að breyta. Sér. Fálkinn er orðinn bangsi. Geir bambi. Hannes dúlla. Villi rúsína. Eyþór grallaraspói. Flokkurinn hefur breytt um nafn: Hægri bleikir. Eftir þessar kosn- ingar þarf hins vegar enginn að velkjast í vafa um það hvaða lit- brigði munu koma í ljós, hvernig sem úrslitin verða: Gamli blái mun birtast Reykvíkingum í öllu sínu Flokksveldi, önugur og gugginn. FLEIRI gullmolar úr stefnu SUS til að sanna mál mitt? Hér eru þeir: „Styrkir til menningarmála eiga ekki rétt á sér.“ Þar fór Air- waves. „Opinberir styrkir til menntamála eiga ekki rétt á sér.“ Og þar fór uppbygging grunnskól- anna. Hægri bleikir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.