Tíminn - 18.09.1977, Side 6
6
Sunnudagur 18. september 1977
ABttGAítt*'
Þýzka leikkonan Hildegard Knef hefur
ekki alltaf baðað á rósum. Hun hefur orðið
að striða við sjúkdóma af margvislegum
gerðum. Má þar nefna blóðeitrun oftar
en einu sinni, nokkra nefuppskurði, hita-
beltissjúkdóma, margar matareitranir og
sex sinnum lifhimnubólgu. Þar við bætast
barnasjúkdómar, barnalömun, heila-
himnubólga, kirtlaúrtökur, nýrnabólgur,
sprunginn botnlangi, margvisleg bein-
brot, 14 tegundir ofnæmis, og svona mætti
lengi telja. Erfiðasta áfallið fyrir hana
hefur samt eflaust verið, þegar hún fékk
krabbamein fyrir nokkrum árum, og varð
að gangast undir margar skurðaðgerðir.
Um þá baráttu hefur hún skrifað mikið og
vel lesna bók, Dómurinn. En alltaf hefur
hún rifið sig upp úr öllum þessum erfið-
leikum. Nú er Hildegard orðin 51 árs og
nýgift sér fimmtán árum yngri manni.
Um þessar mundir leikur hún i kvikmynd,
sem verið er að taka á grisku eynni Lfkos.
Þykir hún sýna fádæma dugnað við upp-
tökurnar, þvi að ekki eru allar aðstæður
sem þægilegastar. Loftslagið á eynni er
mjög frábrugðið þvi, sem Hildegard á að
venjast: gifurlega heitt. Þar að auki er
eyjan fræg fyrir grimmar moskitóflugur,