Fréttablaðið - 19.06.2006, Side 10
10 19. júní 2006 MÁNUDAGUR
JAPÖNSK LIST Þessi kabúkí-leikari og
taiko-trommuleikarar komu saman í Tókíó
í vikunni til að æfa einstakt verk sem sýnt
verður í Japan síðar í þessum mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Bandarískur maður
í giftingarhugleiðingum hljóp nak-
inn út á götu nýverið til að sýna
hikandi kærustu sinni að áhætta
er nauðsynleg. Það fór þó ekki
betur en svo að hann var eltur og
skotinn.
Hjónaleysin voru að ræða um
giftingu þegar maðurinn ákvað að
sannfæra kærustuna með þessum
hætti, en hoppaði inn í runna þegar
hann sá par á göngu. Þau tóku eftir
honum og gripu til vopna, svo sá
berrassaði hlaut minniháttar
áverka. Byssumaðurinn var hand-
tekinn fyrir árás og fyrir að leyna
skotvopni. Nakti maðurinn var
ekki handtekinn. - sgj
Reyndi að hvetja kærustuna:
Nakinn maður
eltur og skotinn
KÍNA, AP Mahmoud Ahmadinejad
Íransforseti hvatti Kínverja, Rússa
og aðrar Asíuþjóðir til að sameina
efnahagslega og pólitíska krafta
sína til mótstöðu við áhrif Banda-
ríkjanna.
Hann ávarpaði á fimmtudag
fund SCO-sambandsins, sem inni-
heldur ellefu Asíuþjóðir, og sagði
þessi stórveldi á sviðum efnahags-
og orkumála geta unnið vel saman.
„Það getur gert SCO að sterku
og áhrifamiklu efnahags-, stjórn-
mála- og viðskiptasambandi á
svæðisbundinn og alþjóðlegan hátt,
sem getur varist ógnunum ráðandi
afla og ofbeldisfullum afskiptum
þeirra í heimsmálum.“
Forseti Rússlands var harðorð-
ur í garð Bandaríkjanna og hvatti
til aukinna hernaðartengsla Asíu-
ríkjanna til að berjast gegn hryðju-
verkum. Hann tók það einnig fram
að allt stefndi í viðræður við Írana
um kjarnorkuáætlun þeirra.
„Rússland hefur alltaf verið
áreiðanlegur félagi Írans,“ sagði
forsetinn, sem telur Írana eiga full-
an rétt á að nýta kjarnorku á frið-
samlegan hátt. Ahmadinejad bætti
við að vinátta Írans og Rússlands
væri náin. - sgj
Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hvetur leiðtoga Austurlanda til samstöðu:
Mótvægi við Bandaríkin
FORSETAR ÍRANS OG RÚSSLANDS
Mahmoud Ahmadinejad og Vladimír Pútín
var vel til vina á fundi Asíuríkjanna.
MENNTUN Nemendaverðlaun
menntaráðs Reykjavíkurborgar
voru afhent í fjórða sinn í Ráðhús-
inu í gær. Liðlega fjörutíu nemend-
ur úr grunnskólum Reykjavíkur
voru verðlaunaðir, meðal annars
fyrir góðan námsárangur, fram-
farir í námi, félagsstörf, sam-
skiptahæfni, frumkvæði, leiðtoga-
hæfileika og frammistöðu í
íþróttum og listum. Mikið var um
dýrðir í Ráðhúsinu þar sem saman
voru komnir stoltir nemendur, for-
eldrar og aðrir aðstandendur sem
glöddust saman af þessu hátíðlega
tilefni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri og Júlíus Vífill Ingv-
arsson, formaður menntaráðs,
afhentu verðlaunahöfunum bóka-
gjöf og viðurkenningarskjal.
„Þessir nemendur sem hér voru
heiðraðir fá verðlaun af mjög ólík-
um ástæðum,“ segir Júlíus Vífill.
„Hér voru veitt verðlaun til þeirra
sem skarað hafa fram úr, til dæmis
í félagsfærni eða í námi en líka
þeim sem hafa skarað fram úr af
persónulegum ástæðum. Í hópnum
eru til dæmis nemendur sem eiga
við fötlun að stríða.“
Hver grunnskóli tilnefndi einn
nemanda en jafnan er hvatt til
þess að starfsmenn skóla, for-
eldrafélög og foreldra- og nem-
endaráð tilnefni fulltrúa síns skóla
til verðlaunanna. „Þessi verðlaun
eru mjög mikilvæg fyrir þá sem
þau hljóta og líka mikilvæg fyrir
samnemendur þeirra því við erum
að benda á fyrirmyndir. Þetta er
hvatning fyrir alla skólafélaga til
þess að standa sig vel á ýmsum
sviðum. Hér er ekki verið að taka
út þá sem hljóta hæstu einkunnirn-
ar heldur leitað að þeim sem hafa
skarað fram úr, jafnvel af mjög
mannlegum ástæðum,“ útskýrir
Júlíus Vífill sem nýtekinn er við
formennsku í menntaráði borgar-
innar. „Það er mjög skemmtileg
byrjun á starfinu, þessi verðlaun
eru mjög jákvæður hlutur og ég er
sjálfur mjög ánægður með að fá að
starfa að þessum mikilvæga mála-
flokki.“ - khh
Liðlega fjörutíu nemar fengu verðlaun menntaráðs:
Framúrskarandi
og til fyrirmyndar
MENNTARÁÐ REYKJAVÍKURBORGAR VERÐLAUNAÐI GRUNNSKÓLANEMENDUR Hátíðleg
stemning ríkti í ráðhúsinu á þjóðhátíðardaginn. Fjölþjóðlegur kór Austurbæjarskóla tróð
upp á verðlaunaafhendingunni undir stjórn Péturs Hafþórs Jónssonar tónmenntakennara.
BLÓÐBANKINN Fjölskylduskokk
Blóðbankans fór fram á
miðvikudaginn. 70 manns tóku
þátt, en hlaupið var haldið í annað
sinn.
Markmiðið með hlaupinu er að
vekja athygli á Alþjóða blóðgjafar-
deginum (World Blood Donor Day)
sem var haldinn á miðvikudaginn.
Dagurinn er sameiginlegt verkefni
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO), Alþjóða Rauða krossins,
Alþjóðasamtaka blóðgjafarfélaga
og Alþjóðasamtaka blóðgjafar. - sgj
Fjölskylduskokk Blóðbankans:
Athygli vakin á
blóðgjöfum
FJÖLSKYLDUSKOKK Um 70 manns hlupu til
að minna á mikilvægi blóðgjafar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P