Fréttablaðið - 19.06.2006, Síða 79

Fréttablaðið - 19.06.2006, Síða 79
 Þú gætir auðveldlega unnið ferð til Evrópu og fullt af öðrum frábærum vinningum ef þú tekur þátt í Allt leiknum. Skelltu þér inn á www.allt.is og svaraðu fimm laufléttum spurningum sem þú finnur á síðu 351 í bókinni. Svörin eru öll í Allt bókinni. Meðal vinninga eru: Ferð út í heim með Iceland Express, Vodafone Live! Nokia 6101 símar, Fríkort á Grensásvídeó og Pizzur frá Villson’s Pizza. ALLT er ný vöru- og þjónustuskrá á netinu á www.allt.is, í síma 1850 og núna í handhægri bók sem dreift hefur verið á öll heimili. Bókin er sneisafull af upplýsingum og skemmtilegu efni, allt frá húsráðum og handhægum mælieiningum til næringarupplýsinga og götukorta. Þú finnur allt sem þig vantar í ALLT bókinni. ALLT VÖRU- OG ÞJÓNUSTUSKRÁIN ER KOMIN Í ÖLL HÚS Á LANDINU Taktu þátt í skemmtilegum leik Britney Spears kom fram í morg- unþættinum Today show með Matt Lauer á fimmtudag og var greini- lega mikið niðri fyrir vegna umfjöllunar fjölmiðla um hana. Lauer sýndi henni og áhorfendum hvert slúðurblaðið á fætur öðru sem fjallað hefur um söngkonuna og var hún gráti næst. „Veistu hvað? Ég verð bara að búa til mitt eigið tímarit. Ég verð að stofna eigið blað og segja frá sannleikan- um,“ sagði Britney. Nýlega staðfesti Britney að hún væri ófrísk en raddir hafa verið uppi um að hún og Kevin Federline séu að skilja. Aðspurð hvort Kevin sofi enn í húsi þeirra játaði hún því, og neitaði að hann svæfi í kjallaranum. „Hann hjálp- ar mér. Hann verður að gera það. Ég er í tilfinningalegu rusli núna. Ekki á slæman hátt − stundum fer ég að hlæja móðursýkislega, og svo allt í einu fer ég að gráta. Þetta eru bara hormónarnir. Svo mér finnst gott að hafa eiginmann minn hjá mér til að veita mér félagsskap,“ sagði Britney við Lauer. Hún sagði jafnframt að ásakanir um að hún væri slæm móðir gerðu hana sterkari. En þegar Lauer spurði hana út í pap- arazzi-ljósmyndarana fór söng- konan unga að hágráta. „Þið verð- ið að skilja að við erum fólk og við þurfum bara næði og virðingu og þetta eru hlutir sem við þurfum sem manneskjur,“ sagði Britney. Nú er bara að vona að ljósmynd- ararnir í Hollywood virði óskir hennar. Britney niðurbrotin í sjónvarpsviðtali BRITNEY SPEARS Britney á ekki sjö dagana sæla en hún beit frá sér í sjónvarpsþætti á fimmtudag og skammaði paparazzi-ljósmyndara sem hafa hundelt hana. Angelina Jolie sagði við blaðamenn á dögunum að hún hefði verið skelf- ingu lostin á meðan á fæðingu Shiloh stóð. Óttaðist hún mest að stúlkan myndi fæðast andvana. „Ég var ekki viðstödd fæðingu fyrstu tveggja barna minna en þarna varð ég allt í einu logandi hrædd um að barnið myndi ekki anda í fyrstu,“ sagði Jolie. „Það eina sem ég vildi heyra var grátur frá henni,“ bætti hún við. Shiloh var tekin með keisaraskurði og var unnusti leikkonunnar, Brad Pitt, viðstaddur aðgerðina. Jolie var mjög ánægð með aðstöðuna í Nam- ibíu og hrósaði læknum landsins í hástert. Sögusagnir um að Britney Spears hyggist fara sömu leið og Jolie hafa verið á kreiki en fjöl- miðlafulltrúi poppdívunnar þver- tekur fyrir allt slíkt. Ferðamála- fulltrúi Namibíu hafði áður lýst því yfir að Spears hefði haft samband en dró síðan þá fullyrðingu tilbaka. Jolie hrædd JOLIE Var logandi hrædd um að hún myndi fæða andvana barn. Bandaríska Hollywood-goðsögnin, Paul Newman, hefur tilkynnt að hann eigi einungis eina mynd eftir á sínum ferli en þetta kom fram á góðgerðasamkomu sem Newman hélt fyrir langveik börn, málefni sem hefur verið honum ákaflega hugleikið. Leikarinn frægi hefur verið sex áratugi á hvíta tjaldinu og hlaut Óskarinn fyrir túlkun sína á Fast Eddie Falson árið 1986 í kvik- myndinni The Color of Money. Newman vildi með engu móti gefa upp hver yrði hans síðasta mynd. Newman að hætta PAUL NEWMAN Sagðist á blaðamannafundi einungis eiga eina mynd eftir á sínum langa en farsæla ferli.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.