Fréttablaðið - 19.06.2006, Síða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Í Gvendargeisla 62 stendur glæsilegt
206 fermetra einbýlishús sem
fasteignasalan Domus hefur til sölu.
Húsið var byggt árið 2003 og er það
einkar vel skipulagt og fallegt.
Fasteignasalan Domus er nú með til sölu
glæsilegt 206 fermetra einbýlishús í
Gvendargeisla 62 í Grafarholti. Húsið var
byggt árið 2003. Húsið skiptist í fjögur
svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús,
forstofu, baðherbergi, snyrtingu og þrjátíu
fermetra bílskúr með opnara. Marmara-
salli er á stofu, eldhúsi, baðherbergi og for-
stofu en parket á herbergjum. Loft eru
tekin upp í stofu og fyrir ofan eldhúsið er
gott geymslurými. Innréttingin í eldhúsinu
er úr birki og er ísskápur innbyggður. Her-
bergin í húsinu eru rúmgóð með parketi á
gólfum og skápar eru í þremur herbergj-
um.
Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og
gólf er með baðkari og innréttingu úr hlyni.
Þvottahúsið er einstaklega eftirtektarvert,
auk þess að vera mjög rúmgott eru flísar á
gólfinu og glæsilegur sturtuklefi með inn-
byggðu gufubaði og hljóðkerfi.
Nýlega var lokið við að helluleggja plan-
ið fyrir utan húsið sem er einkar glæsilegt.
Búið er að tyrfa garðinn og hlaða beð við
innganginn. Verið er að ljúka við að smíða
stóra verönd í suður út frá stofunni. Eignin
í Gvendargeisla 62 er metin á 53 milljónir
króna.
Fallegt einbýlishús í
Gvendargeisla
Verönd hússins snýr í suður. Stéttin fyrir utan húsið er glæsileg og var hún meðal annars á sýningu Mest nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
NÝ SÝNING Á MINJASAFNI REYKJAVÍKUR - ÁRBÆJARSAFNI VAR
OPNUÐ SÍÐASTLIÐINN FÖSTUDAG.
Á sýningunni er farið yfir sögu húsagerðar og byggingartækni
í Reykjavík á tímabilinu 1840 til 1940. Á þessum árum fór
Reykjavík að eflast sem höfuðstaður landsins og þangað voru
fluttar helstu stofnanir þjóðarinnar, þar á meðal Alþingi og Lærði
skólinn. Þá var einnig farið að huga að skipulagi bæjarins og
Byggingarnefnd Reykjavíkur tók til starfa.
Sýningunni er skipt í þrjá hluta. Fyrst eru tekin fyrir hlaðin
steinhús þar sem sérreykvísk húsagerð, steinbærinn, er í
forgrunni. Í öðrum hlutanum er fjallað um timburhús og
sérstaklega tekin fyrir svokölluð sveitser-hús sem voru reist þegar
vélavæðing í timburiðnaði hafði hafið innreið sína. Þriðji hlutinn
er tími steinsteypunnar. Þar er sjónum beint að funkishúsunum
og verkamannabústaðirnir við Hringbraut teknir sem dæmi. - sgi
Saga húsagerðar í Reykjavík
Útsýni úr Landakotskirkju um 1937. Steinsteypan er orðin ráðandi og
setur svip sinn á bæinn.
ELDHÚS Í GARÐINUM
Á síðustu árum hefur
grilltækni Íslendinga
fleygt fram.
HÚS 2
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 2.54 13.29 24.04
Akureyri 1.27 13.14 1.03
Heimild: Almanak Háskólans
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
19. júní, 170. dagur ársins
2006.
FASTEIGNASÖLUR
Ábyrgi 17
Ás 36-39
Árborgir 30
Atlas 34
Domus 20
Draumahús 23-28
Eignastýring 19, 35
Eignaumboðið 18
Fasteignamiðlun FMG 14
Fasteignam. Kópavogs 29
Gimli 9
Hof 8
Höfði 12
Húseign 41
Íslenskir aðalverktakar 6
Lundur 32
Lyngvík 10
Lögmenn Suðurl. 8
Neteign 13
Nýtt 16
Perla investment 35
Remax 30
Remax Lind 40
Valhöll 15
Viðskiptahúsið 31