Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.06.2006, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 19.06.2006, Qupperneq 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Í Gvendargeisla 62 stendur glæsilegt 206 fermetra einbýlishús sem fasteignasalan Domus hefur til sölu. Húsið var byggt árið 2003 og er það einkar vel skipulagt og fallegt. Fasteignasalan Domus er nú með til sölu glæsilegt 206 fermetra einbýlishús í Gvendargeisla 62 í Grafarholti. Húsið var byggt árið 2003. Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús, forstofu, baðherbergi, snyrtingu og þrjátíu fermetra bílskúr með opnara. Marmara- salli er á stofu, eldhúsi, baðherbergi og for- stofu en parket á herbergjum. Loft eru tekin upp í stofu og fyrir ofan eldhúsið er gott geymslurými. Innréttingin í eldhúsinu er úr birki og er ísskápur innbyggður. Her- bergin í húsinu eru rúmgóð með parketi á gólfum og skápar eru í þremur herbergj- um. Baðherbergið sem er flísalagt í hólf og gólf er með baðkari og innréttingu úr hlyni. Þvottahúsið er einstaklega eftirtektarvert, auk þess að vera mjög rúmgott eru flísar á gólfinu og glæsilegur sturtuklefi með inn- byggðu gufubaði og hljóðkerfi. Nýlega var lokið við að helluleggja plan- ið fyrir utan húsið sem er einkar glæsilegt. Búið er að tyrfa garðinn og hlaða beð við innganginn. Verið er að ljúka við að smíða stóra verönd í suður út frá stofunni. Eignin í Gvendargeisla 62 er metin á 53 milljónir króna. Fallegt einbýlishús í Gvendargeisla Verönd hússins snýr í suður. Stéttin fyrir utan húsið er glæsileg og var hún meðal annars á sýningu Mest nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL NÝ SÝNING Á MINJASAFNI REYKJAVÍKUR - ÁRBÆJARSAFNI VAR OPNUÐ SÍÐASTLIÐINN FÖSTUDAG. Á sýningunni er farið yfir sögu húsagerðar og byggingartækni í Reykjavík á tímabilinu 1840 til 1940. Á þessum árum fór Reykjavík að eflast sem höfuðstaður landsins og þangað voru fluttar helstu stofnanir þjóðarinnar, þar á meðal Alþingi og Lærði skólinn. Þá var einnig farið að huga að skipulagi bæjarins og Byggingarnefnd Reykjavíkur tók til starfa. Sýningunni er skipt í þrjá hluta. Fyrst eru tekin fyrir hlaðin steinhús þar sem sérreykvísk húsagerð, steinbærinn, er í forgrunni. Í öðrum hlutanum er fjallað um timburhús og sérstaklega tekin fyrir svokölluð sveitser-hús sem voru reist þegar vélavæðing í timburiðnaði hafði hafið innreið sína. Þriðji hlutinn er tími steinsteypunnar. Þar er sjónum beint að funkishúsunum og verkamannabústaðirnir við Hringbraut teknir sem dæmi. - sgi Saga húsagerðar í Reykjavík Útsýni úr Landakotskirkju um 1937. Steinsteypan er orðin ráðandi og setur svip sinn á bæinn. ELDHÚS Í GARÐINUM Á síðustu árum hefur grilltækni Íslendinga fleygt fram. HÚS 2 Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 2.54 13.29 24.04 Akureyri 1.27 13.14 1.03 Heimild: Almanak Háskólans GÓÐAN DAG! Í dag er mánudagurinn 19. júní, 170. dagur ársins 2006. FASTEIGNASÖLUR Ábyrgi 17 Ás 36-39 Árborgir 30 Atlas 34 Domus 20 Draumahús 23-28 Eignastýring 19, 35 Eignaumboðið 18 Fasteignamiðlun FMG 14 Fasteignam. Kópavogs 29 Gimli 9 Hof 8 Höfði 12 Húseign 41 Íslenskir aðalverktakar 6 Lundur 32 Lyngvík 10 Lögmenn Suðurl. 8 Neteign 13 Nýtt 16 Perla investment 35 Remax 30 Remax Lind 40 Valhöll 15 Viðskiptahúsið 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.