Fréttablaðið - 19.06.2006, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 19.06.2006, Blaðsíða 83
MÁNUDAGUR 19. júní 2006 35 FÓTBOLTI FIFA þurfti að hafa afskipti af leikmönnum Tógó sem ætluðu sér ekki að mæta í leikinn gegn Sviss í G-riðli HM í dag. Leikmenn liðsins eiga í deilum við knattspyrnusamband landsins vegna greiðslu fyrir að spila á mótinu og á meðan deilan stendur gátu þeir ekki hugsað sér að spila. „Þeir vildu ekki spila leikinn,“ sagði talsmaður FIFA sem talaði leikmenn Tógó til í gær. „Við tjáðum þeim að ef þeir mættu ekki hefði það mikil áhrif og þeim var tjáð hversu óraun- sæir og ósanngjarnir þeir voru,“ bætti talsmaðurinn við en leik- menn Tógó fóru ekki úr æfinga- búðum sínum í tæka tíð gær og misstu því af flugi sínu til Dort- mund þar sem leikurinn fer fram í dag. Eftir miklar umræður ákváðu þeir loksins að fara og nældu sér í flug á síðustu stundu. „Við erum í rútunni núna,“ sagði Otto Pfister í símaviðtali í gær en bætti við að hann hefði ekki hugmynd um hvort deilan hefði leyst og að hann hefði ekki áhuga á því að vita það. Pfister sjálfur hætti rétt fyrir fyrsta leik- inn gegn Suður-Kóreu, en hætti síðan við að hætta á síðustu stundu. Það er því greinilega ekki tekið með sældinni að fara með Tógó á HM í Þýskalandi. Leikmenn frá þessu smáríki í Afríku heimtuðu 155.000 evrur hver fyrir að spila á mótinu frá knattspyrnusambandi Tógó, 30.000 evrur fyrir sigur og helming þess fyrir jafntefli. Forráðamenn knattspyrnusambandsins sögðu þó að þessar upphæðir væru alltof háar en meðaltekjur í Tógó eru undir 800 evrum á mánuði. Aldrei hefur það gerst að lið sem komist hefur í lokakeppni HM hafi ekki mætt í leik í 76 ára langri sögu HM, en það stóð tæpt í þetta sinn. Þjóð sem gerir það á yfir höfði sér háa fjársekt og lík- lega útilokun frá næstu heims- meistarakeppni. - hþh Leikmenn Tógó eru að gera allt vitlaust á HM: Ætluðu ekki að spila gegn Svisslendingum LEIKMENN TÓGÓ Fagna hér marki sínu í 2-1 tapleik gegn Suður-Kóreu en þeir eiga í hörð- um deilum þessa dagana. NORDICPHOTOS/AFP F-riðill: JAPAN-KRÓATÍA 0-0 BRASILÍA-ÁSTRALÍA 2-0 1-0 Adriano (49.), 2-0 Fred (90.) STAÐAN BRASILÍA 2 2 0 0 3-0 6 ÁSTRALÍA 2 1 0 1 3-3 3 KRÓATÍA 2 0 1 1 0-1 1 JAPAN 2 0 1 1 1-3 1 G-riðill: FRAKKLAND-SUÐUR-KÓREA 1-1 1-0 Thierry Henry (9.), 1-1 Ji-Sung Park (81.). STAÐAN SUÐUR-KÓREA 2 1 1 0 3-2 4 FRAKKLAND 2 0 2 0 1-1 2 SVISS 1 0 1 0 0-0 1 TÓGÓ 1 0 0 1 1-2 0 Á morgun mætast Tógó og Sviss kl. 13, Sádi-Arab- ía gegn Úkraínu er kl. 15 og um kvöldið mætast Spánn og Túnís. HM 2006 ÚRSLIT GÆRDAGSINS FÓTBOLTI Það er lítill meistarabrag- ur á leik Brasilíu á HM en þrátt fyrir það er liðið búið að vinna báða leiki sína á mótinu, ekki feng- ið á sig mark og er komið í sextán liða úrslit. Þó það vanti samba- taktana í liðið sýna úrslit síðustu leikja hversu ógnarsterkt liðið er og finni Brasilíumenn sambatakt- inn sinn mega andstæðingarnir fara að vara sig. Sigurinn á Áströlum var ekki sannfærandi en Ástralar fengu verulega góð færi til að jafna leik- inn í stöðunni 1-0 og besta færið fékk Liverpoolmaðurinn Harry Kewell er hann stóð einn fyrir framan opið markið en tókst á ein- hvern ótrúlegan hátt að skjóta boltanum yfir markið. „Við erum ánægðir með að vera komnir áfram og sigurinn var verðskuldaður,“ sagði Carlos Alberto Pareira, þjálfari Brasilíu. „Ástralar sköpuðu okkur viss vandræði um tíma en í heildina voru fleiri jákvæðir en neikvæðir hlutir í gangi hjá okkur.“ Hollendingurinn Guus Hidd- ink, þjálfari Ástrala, segir Brasil- íu þurfa að bæta leik sinn ætli liðið sér meistaratitilinn. „Brasilía er ekki upp á sitt besta og var í mikl- um vandræðum í seinni hálfleik. Þeir spila ekki eins og heimsmeist- arar en eru samt að braggast. Ann- ars er ég stoltur af mínu liði því það gaf allt og með smá heppni hefðum við getað nælt í stig. Mór- allinn er góður og við eigum enn möguleika. Þetta er ekki búið,“ sagði Hiddink. - hbg Ástralar voru klaufar gegn heimsmeisturum Brasilíu: Sambalausir Brasilíumenn komnir í sextán liða úrslitin SLAKUR Ronaldo gat ekkert annan leikinn í röð og var tekinn af velli. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP KOMINN Á BLAÐ Adriano kom Brasilíu á bragðið og fagnar hér marki sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP FÓTBOLTI Háttsettur meðlimur innan FIFA, Ismael Bhamjee frá Botswana, var sendur heim frá Þýskalandi í gær eftir að upp komst um miðabrask hans. Bhamjee seldi miða á völlinn í Þýskalandi á þre- falt hærra verði en hann átti að gera og hirti mismuninn sjálfur. „Ég er virkilega vonsvikinn með þetta, svona mál gerir mig brjálað- an,“ sagði Sepp Blatter, forseti FIFA, en það var blaðamaður frá Englandi sem sýndi fram á sönnun- argögn um málið. „Ég sé mjög mikið eftir þessu og bið FIFA og alla hluteigandi afsökunar,“ sagði í yfirlýsingu frá Bhamjee sem seldi miðana á leik Englands og Trínidad á 380 evrur, en venjulegt verð á leikinn var 127 evrur. - hþh Ismael Bhamjee: Rekinn heim með skömm FÓTBOLTI Vandræðagangur Frakka í heimsmeistarakeppninni hélt áfram í gær. Þá mættu þeir spræku liði Suður-Kóreu og urðu að sætta sig við jafntefli, 1-1. Góðu fréttirn- ar voru þó þær að Frökkum tókst að skora en þeir náðu ekki að skora mark í síðustu keppni og margir Frakkar voru farnir að óttast álíka niðurlægingu á þessu móti. Henry skoraði fyrir Frakka í fyrri hálfleik en Park jafnaði tíu mínútum fyrir leikslok. Frakkar reyndu hvað þeir gátu til að jafna það sem eftir lifði en það var of lítið og of seint. Það var þungt hljóðið í franska hópnum eftir leikinn og ekki er laust við að örlítil örvænting sé farin að gera vart við sig hjá liðinu enda lítur það ekki út fyrir að geta gert stóra hluti á þessu móti miðað við spilamennskuna það sem af er. Jafnt í leik Frakka og Kóreu: Frakkar í vond- um málum SÍÐASTI LEIKURINN? Það var ekki hátt risið á Zinedine Zidane eftir leikinn og hann leit ekki einu sinni á þjálfarann Raymond Domenech er hann var tekinn af velli. Zidane fékk gult spjald í leiknum og er því í banni gegn Tógó. Frakkar eru ekki öruggir áfram og því var þetta kannski síðasti leikur Zidane. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.