Fréttablaðið - 19.06.2006, Page 24

Fréttablaðið - 19.06.2006, Page 24
 19. júní 2006 MÁNUDAGUR4 Í einu skoti á Barnum á Lauga- vegi má finna flottan vegg sem segja má að sé afrakstur af hálfkláruðu verki. Á miðhæð skemmtistaðarins Bars- ins á Laugaveginum blasir við glæsilegur veggur sem fær fólk til að staldra við og stara. Flestir velta fyrir sér hvaða listamaður eigi heiðurinn að verkinu en sagan bak við vegginn er ekki svo ein- föld. Meðan framkvæmdir stóðu yfir á Barnum og verið var að innrétta staðinn hófust verkamenn handa við að pússa upp þennan tiltekna vegg til þess eins að mála hann aftur. Þótti verkið æði drjúgt enda var snemma ljóst að veggurinn hafði ekki verið pússaður upp svo áratugum skipti heldur sífellt málað yfir hann aftur. Í miðjum klíðum við erfiða pússun kom einn af eigendum stað- arins aðvífandi, leit á vegginn og skipaði svo fyrir að hér skyldi látið staðar numið. Veggurinn þótti fínn eins og hann var. Á honum glytti í málningu sem, að því er talið er, hefur verið máluð í mörgum lögum á mismunandi tímum allt frá upp- hafi þessa góða veggs. Allir litir rófsins koma þar fyrir en það sem gerir hvað mest fyrir vegginn er sagan sem í honum liggur, sem dregin var fram með ekki flóknara tóli en sandpappír. Til að finna fyrir hversu langt aftur sú saga hlýtur að ná þarf ekki annað en að strjúka yfir vegginn og finna hvernig höndin lyftist og sveigist eftir þykkt eldgamallar málningar. johannas@frettabladid.is Barveggurinn á Barnum Undir splunkunýju lakki liggja nú máln- ingarrendur sem segja áratuga langa sögu veggsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Veggurinn við enda barsins á Barnum er hlýlegt listaverk sem varð til fyrir slysni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Ljósbleiku Kitchen Aid-hræri- vélarnar seldust hratt upp hjá Einari Farestveit. Heimilistæki í pastellitum eru orðin vinsæl og taka við af hinum sterku litum svo sem eld- rauðum og app- elsínugulum. Nýj- ustu Kitchen Aid-hrærivélarn- ar fást núna í ljósbleiku, -bláu, kremgulu og drapp og eru þær ljósbleiku nú þegar uppseldar í versluninni Einar Farestveit. Kitchen Aid í Bandaríkjunum gefur hluta af hagnaði bleiku hrærivélanna til styrktar brjósta- krabbameinsrannsóknum og hefur verslunin Einar Farestveit ákveð- ið að gefa 3.500 krónur af hverri seldri bleikri vél til Krabbameins- félags Íslands. Búast má við fleiri pastellitum heimilistækjum frá Kitchen Aid í Einari Farestveit á næstunni, eins og blöndurum, brauðristum, matvinnsluvélum og kaffivélum. Pastellitir vinsælir Krabbameinsfélag Íslands fær 3.500 krónur af hverri seldri, bleikri hrærivél í Einari Farestveit. Ekki er alls staðar rúm fyrir spegil í fullri lengd. Hægt er að bæta úr þessu með „fótaspegli“ innan á skáphurð neðan til. Þá er auðvelt að athuga kjólfaldinn, aðgæta hvort pilsið stendur niður undan kápunni eða bara dást að nýju fínu skónum. Oft koma hamarsför á málaða fleti þegar neglt er í þá. Lítil gúmmíkringla með gati á miðju getur leyst þennan vanda. Þegar naglinn hefur fengið festu er kringlunni smeygt niður á hann og þá er hægt að reka naglann inn án þess að missmíði sjáist í kring. húsráð } Fótaspegill og hamarsför SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI. • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN. • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR. • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU. • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4 F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.