Fréttablaðið - 19.06.2006, Page 88

Fréttablaðið - 19.06.2006, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 19 0 NISSAN PATHFINDER Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 VERÐLÆKKUN! 500.000 KR. NISSAN BERST Á MÓTI VERÐBÓLGUNNI Vegna góðs stuðnings frá Nissan getum við nú boðið enn betra verð á Nissan Pathfinder í takmörkuðu magni. Gerðu samanburð! Þú gerir einfaldlega ekki betri kaup í dag á jeppa í sama stærðarflokki. Tryggðu þér eintak strax! Nissan Pathfinder SE sjálfskiptur Verð aðeins 4.390.000 kr. Verð áður 4.890.000 kr. BORGAÐU MINNA FYRIR MEIRI LÚXUS Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði. TAKMARKAÐ MAGN! KOMDU OG REYNSLUAKTU! Selfossi 482 3100 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 461 2960 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � ���������� ������������������� „Fair Play“ eða „The Art of War“ Heimsmeistarakeppnin í knatt-spyrnu býður ekki einasta knattspyrnuunnendum upp á spennuþrungin augnablik heldur er hún nokkurs konar kraftaverk friðar og siðmenningar í veröld sem einkennist af ófriði og villi- mennsku. Þarna fara fram sam- skipti þjóða eftir settum reglum - og sömu reglur gilda fyrir alla. Grundvallarlögmál íþróttanna er „ærlegur leikur“ eða „fair play“. FAIR PLAY þykir kannski góð speki fyrir æskulýðinn, íþrótta- menn og almenning, en í stjórn- málum og viðskiptum er gengið út frá öðrum grundvallarreglum. Á hótelherbergjum viðskiptafor- ingja liggur Biblían í náttborðs- skúffunni en ofan á náttborðinu er bók sem var skrifuð fyrir 2400 árum, Stríðslistin eftir Sun Tzu. Milljónasala þessarar fornu bókar sýnir að það er útbreidd skoðun að kaupsýsla og rekstur fyrirtækja í nútímanum sé árangursríkust ef stjórnendur reyni að tileinka sér herstjórnarlist úr forneskju. Stjórnmál eru „list hins mögulega“ og snúast um hagsmunabaráttu sem ekki má trufla með tilfinn- ingasemi ellegar siðferði. Jafnvel íslenskum stjórnmálamönnum þykja blóðsúthellingar fullgildur valkostur í stjórnmálum. Saman- ber þátttaka í löglausu og siðlausu stríði í Írak. KANNSKI kemur sú tíð að blóð- regnið stytti upp og sólin fari að skína í veröldinni. Þrír milljarðar jarðarbúa létu að minnsta kosti þá von í ljósi níunda júní og lögðu til hliðar stríðslist og deilur og tóku að fylgjast með stærstu friðar- samkomu sem haldin hefur verið í heiminum, HM í knattspyrnu. Í DAG er athyglisverður leikur. Þá keppir ein ríkasta þjóð heims- ins við einhverja þá fátækustu. Sviss og Tógó. Í Sviss eru meðalárs- tekjur á mann tæpar fjórar millj- ónir króna. Í Tógó eru meðalárs- tekjur tuttugu og fjögur þúsund krónur. Meðallífslíkur í Sviss eru um 80 ár, og fara hækkandi; í Tógó 52 ár, og fara lækkandi. Það eru grundvallarsjónarmið viðskipta- og stjórnmála sem valda þessum mun. En það er grundvallarhug- sjón íþróttanna sem gerir þessum þjóðum kleift að mætast á jafn- réttisgrundvelli. „Fair play“ handa öllum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.