Fréttablaðið - 25.06.2006, Side 80

Fréttablaðið - 25.06.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Ný tt! + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu- dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. – HAGSTÆÐAR AFBORGANIR Spurðu um ENNE M M / S ÍA Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000 Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express Nánar á www.expressferdir.is/golf eða í síma 5 900 100 www.expressferdir.is/golf Express Ferðir bjóða pakkaferðir við allra hæfi á frábæra golfvelli á Englandi og Spáni. Aðstaðan er eins og best verður á kosið, fyrsta flokks hótel og iðagrænir 18 holu vellir. Vallaraðstæður eru frábærar: Skógar allt um kring sem skapa aðstæður sem reyna á hæfni hvers og eins og gildir þá einu hvort golfarinn er byrjandi eða þaulreyndur. Fuglar eru eftirsóknarverðir, ernir sjaldséðir og albatrossar nánast útilokaðir. Skelltu þér á www.expressferdir.is/golf og kynntu þér kostina! HÓTEL SIDI SAN JUAN Glæsilegt fimm stjörnu lúxushótel í smábænum San Juan sem er steinsnar frá Alicante á Spáni. Öll herbergi hafa svalir með útsýni yfir hafið. Allt til alls, frábær veitingastaður, glæsileg heilsulind, tennisvellir, inni- og útilaug og leiksvæði fyrir börnin. Hótelið býður sérstaka þjónustu fyrir golfara: Bókar teigtíma, far á vellina, geymslur fyrir golfsett o.fl. Hótelið á í samstarfi við fjölda golfvalla og eru fjórir þeirra í næsta nágrenni: Golf Alicante (2 km): Völlur hannaður af Seve Ballesteros. Beinar brautir og hættulegar glompur og tjarnir. Bonalba (8 km): Mikið af trjám, tjörnum og sandgryfjum. Fjölbreyttur og skemmtilegur völlur. El Plantino (16 km): Einn 18 holu völlur og annar níu. Við 18 holu völlinn eru 36.000 tré og þrjú vötn! Alenda (20 km): Völlur sem hentar öllum golfurum, byrjendum og lengra komnum. BONALBA Bonalba er stórskemmtilegt svæði rétt utan við Alicante á Spáni. Gist er í sumarhúsum og því ýmsir möguleikar í boði, allt frá tveimur í íbúð og upp í heilar fjölskyldur í stórum einbýlishúsum. Öllum sumarhúsunum fylgir aðgangur að sundlaugum og með stærri húsunum fylgir einkasundlaug. Fullkomin líkamsræktaraðstaða með heilsulind. Golfvöllurinn er einstakur 18 holu, par 72. Á honum var leikið til úrslita í spænsku atvinnumannaröðinni '97 og '98 og Costa Blanca áskorendamótið og áskorendamót Evrópu fóru einnig á þessum frábæra velli. MANOR OF GROVES Vel búið og huggulegt golfhótel með öllum þægindum, aðeins 16 km frá Stansted flugvelli. Gullfallegt umhverfi, fínir veitingastaðir og frábær aðstaða til heilsuræktar og hvers kyns dekurs. Golfvöllurinn er krefjandi og afar skemmtilegur 18 holu, par 71 völlur. Hægt er að fá fyrsta flokks golfkennslu, leigja golfbíla, kerrur og kylfur og fyrir þá sem vilja gera góð kaup er mjög góð golfverslun á staðnum. MARRIOTT HANBURY MANOR Glæsilegt og margverðlaunað fimm stjörnu golfhótel í London. Rúmgóð herbergi, frábærir veitingastaðir, sundlaug, tennisvellir, æfingaaðstaða, spa og nudd. Þá er völlurinn ekki af verri endanum: 18 holu, par 72, PGA-völlur sem hefur verið völlur Opna enska meistaramótsins. FUGL Í SKÓGI! BÓKAÐU GOLFFERÐINA Á EXPRESSFERDIR.IS/GOLF F í t o n / S Í A Verð frá 65.900 kr. Flug, skattar, gisting í 2 nætur, morgunverður og 2 golfhringir Verð pr. einstakling í tveggja manna herbergi. Verð frá 49.900 kr. Flug, skattar, gisting í 2 nætur, morgunverður og 3 golfhringir Verð pr. einstakling í tveggja manna herbergi. Verð frá 69.900 kr. Flug, skattar, gisting í 7 nætur og 5 golfhringir Verð pr. einstakling m.v. 6 manns saman í húsi. Verð frá 83.908 kr. Flug, skattar, gisting í 5 nætur, morgunverður og 5 golfhringir Verð pr. einstakling í tveggja manna herbergi. ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � ��������������������� ���������� Nýlega gerði ég tilraun til að lesa sjálfshjálparbók, mér datt í hug að það væri vit í henni því titillinn var hnyttinn og í henni átti austræn speki að blandast vestrænni á nýjan og frumlegan hátt. Þegar spurningin „hvernig getur þér þótt vænt um aðra ef þér þykir ekki vænt um sjálfan þig?“ var sett fram eins og augljóst væri að enginn gæti gert öðrum gott nema hafa náð djúpri innri sátt við sjálfan sig með tilheyrandi sálar- friði, gafst ég upp. Samkvæmt þessari bók er trixið við að öðlast þennan frið og þessa sátt í því fólg- ið að fara til Indlands, dýrðarríkis fátæktar og barnaþrælkunar, og hugsa þar um sjálfan sig. MÉR finnst aftur á móti eðlilegra að spyrja: „Hvernig er hægt að þykja vænt um einhvern sem hugsar bara um sjálfan sig?“ STAÐREYNDIN er auðvitað sú að eina manneskjan í heiminum sem ekki er skítsama um það hvernig þér líður með sjálfan þig ert þú. Til að geta hjálpað öðrum, lagt öðrum lið, reist einhvern við eða stutt á einhvern hátt er per- sónuleg innri sátt jafn nauðsynleg og vasaljós í björtu. Saga þín og samviska skipta engu máli þegar þú gefur svöngum manni brauð. Það hefur engin áhrif á næringar- gildi brauðsins hvort þú ert á bömmer yfir fortíðinni og átt erf- itt með að horfast í augu við sjálf- an þig í spegli eða hvort hver hugsun þín sé í óaðfinnanlegum samhljómi við nið almættisins. Brauð er brauð. ÞANNIG að ef þú átt í erfiðleik- um með að sættast við sjálfan þig og það hjálpar þér ekki að loka þig af frá öðru fólki og einbeita þér að því að hugsa þig upp í sjálfsvænt- umþykju af eigin rammleik inni í hausnum á þér, þá gætirðu prófað að hætta að hugsa bara um sjálfan þig og farið út og hjálpað öðrum – án þess að skeyta um það hvernig þér líður með það og þig og þitt á meðan. EF þú gerir það í dag er ég viss um þér finnst pínulítið auðveldara að bera virðingu fyrir manneskjunni sem þú sérð í speglinum í kvöld en þessari sem blasti við þér í honum í morgun. Þér kynni jafnvel að þykja agnarögn vænna um sjálfan þig í kjölfar þess að þín svarta for- tíð hefur skánað um einn dag. ÞAÐ besta við þessa aðferð er að ef þú gerir þetta aftur á morgun hefur hún skánað um tvo. Munkurinn sem seldi sjálfshjálp- arbókina sína

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.