Fréttablaðið - 29.06.2006, Qupperneq 22
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Hjónavígslur á Íslandi
Í vikunni bárust fréttir af því að
tuttugu þúsund manns hafi skrifað
á undirskrifta-
lista um afnám
fyrningarfrests á
kynferðisbrotum
gagnvart börnum.
Þar eru alþingis-
menn hvattir til
þess að samþykkja
lagafrumvarp Ágústs
Ólafs Ágústssonar
þess efnis. Samtökin
Blátt áfram standa
fyrir undirskrifta-
söfnunni en Sigríður
Björnsdóttir framkvæmdastjóri þeirra
er til svara.
Hver er saga samtakanna? Blátt
áfram var stofnað út frá því að við
tvíburasystur, ég og Svava, urðum fyrir
kynferðisofbeldi í æsku og fórum ekki
að vinna í okkar málum fyrr en við
vorum orðnar 25, 27 ára gamlar og út
frá því gerðum við okkur grein fyrir því
að ef umræða um kynferðisofbeldi
hefði verið opin hefðum við reynt að
leita okkur hjálpar miklu miklu fyrr. Við
þýddum bækling yfir á íslensku sem
við höfum verið að senda inn á öll
heimili á landinu og eftir það fengum
við mikil viðbrögð frá fólki.
Hvert er hlutverk samtakanna? Hlut-
verk samtakanna er fyrst og fremst for-
varnafræðsla, að fræða fullorðið fólk
um að vera ábyrgt í uppeldi og hjálpa
börnunum að verða að heilbrigðum
einstaklingum.
Hvernig rekið þið samtökin? Við
rekum þau eingöngu á styrkjum,
íslenska þjóðin styrkir okkur reglulega
og svo erum við líka að fara og tala við
ráðuneytin og fá styrki frá þeim.
SPURT & SVARAÐ
BLÁTT ÁFRAM
SIGRÍÐUR
BJÖRNSDÓTTIR
hjá Blátt áfram
Landsmót hestamanna fer fram á Vindheima-
melum í Skagafirði vikuna 26. júní til 2. júlí.
Búist er við allt að tólf þúsund gestum á
svæðinu, þar af um þrjú þúsund erlendum
ferðamönnum.
Hvað er Landsmót?
Landsmót eru eins konar Ólympíuleikar
íslenskra hestamanna, en þar drífur að mörg
þúsund hestamenn frá öllum landshlutum á
þetta stærsta mót í heimi þar sem íslenskir
hestar koma saman. Einnig er mótið einn stærsti
hestamarkaður landsins en fjölmargir koma á
mótið til þess að kaupa eða selja gæðing. Mótið
stendur yfir í viku og eru stórar skemmtanir
haldnar á kvöldin þegar keppni er lokið.
Hversu oft er Landsmót?
Fyrsta Landsmót hestamanna var haldið árið
1950 á Þingvöllum þar sem 133 hross voru
sýnd. Þá var aðeins keppt í einum flokki
gæðinga auk kappreiða og kynbótasýninga.
Eftir það voru Landsmót haldin á fjögurra ára
fresti, allt þar til á ársþingi Landssambands
Hestamannafélaga árið 1995 þegar ákveðið var
að halda þau á tveggja ára fresti. Fyrsta mótið
sem haldið var eftir þeim reglum var Landsmót
í Reykjavík árið 2000 og er landsmótið í ár
hið fjórða sem haldið er eftir að biðin á milli
móta var stytt. Ákveðið hefur verið að næsta
Landsmót verði haldið á Gaddstaðaflötum við
Hellu árið 2008.
Í hverju er keppt á Landsmóti?
Á Landsmóti er keppt í gæðingakeppni, tölti,
kappreiðum og kynbótasýningum. Keppendum
er skipt í hópa eftir aldri og getu en algengt
er að keppt sé í barnaflokki, unglingaflokki,
ungmennaflokki, A-flokki gæðinga og B-flokki
gæðinga. Búist er við að um þúsund hestar
komi við sögu með einum eða öðrum hætti á
mótinu.
FBL-GREINING: LANDSMÓT HESTAMANNA
Tólf þúsund á stærsta hestamótinu
1985
1.
23
8
1.
60
7
1.
25
2
1995 2005
Heimild: Hagstofa Íslands
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
„Þetta átti sér mjög stuttan
aðdraganda. Við töldum okkar
geta slegið þrjá flugur í einu höggi
að taka þennan hlut,“ segir Hann-
es Smárason, forstjóri FL Group,
um kaup félagsins á 24,2 prósent
hlutafjár í Straumi-Burðarási af
Kristni Björnssyni, Magnúsi
Kristinssyni og Þórði Má Jóhann-
essyni.
Heildarhlutur FL Group er þar
með kominn í 26 prósent í fjárfest-
ingabankanum. Kaupverðið nemur
47 milljörðum króna sem seljend-
ur fá aðallega í hlutabréfum í FL
Group sem metin eru á 35 millj-
arða.
Hannes leggur á það áherslu að
kaupin eru gerð í því skyni að efla
Straum og ætlar FL Group að
leggja sitt af mörkum til þess
að koma á starfsfriði inn eigenda-
hópsins. „Viðskiptin tengjast ekk-
ert þeim deilum sem hafa átt sér
stað í Straumi. Við teljum að þessi
kaup geri bæði FL Group og
Straum að enn öflugri félögum og
leggjum áherslu á að einblína
fram á veginn,“ sagði forstjóri FL
Group á þriðjudagskvöldið. Sú
mynd sem Hannes dró upp af
stöðu mála umrætt kvöld er þó
engan veginn svona skýr og ein-
föld.
Hittust um helgina
Eftir sögulegan stjórnarfund í síð-
ustu viku, þegar meirihluti stjórn-
ar Straums undir forystu stjórnar-
formannsins Björgólfs Thors
Björgólfssonar lét reka forstjór-
ann Þórð Má Jóhannesson, vakn-
aði sú hugmynd hjá Kristni og
Magnúsi, sem fóru fyrir minni-
hlutanum, að koma bréfum sínum
í hendur annarra. Sættu þeir sig
illa við málalok og töldu að þar
sem búið var að afgreiða boðun
hluthafafundar í júlí hefði stjórn-
in ekkert umboð til að vísa for-
stjóra frá störfum. Viðræður
þeirra við FL Group fóru á flug
um helgina og var ekki aftur snúið.
Viðskipti þessi fóru fram án þess
að samráð væri haft við stjórnar-
formanninn.
Þetta hlýtur að teljast nokkuð
óvæntur leikur af hálfu FL Group
en félagið nýtti sér þá spennu sem
hafði verið að magnast í Straumi
og keypti hlutabréf af miklum
móð eftir því sem gengi Straums
hækkaði. Eftir þessi viðskipti er
ljóst að þræðir FL Group liggja
orðið víða í bankakerfinu. Félagið,
sem er að langstærstum hluta í
eigu Hannesar, og Baugs Group,
er stærsti hluthafinn í Glitni banka
með 24 prósenta hlut, sem er met-
inn á um það bil 62 milljarða
króna, og það er einnig stærst í
Straumi-Burðarási með 26 pró-
senta hluti, um sex prósentum
meira en Samson Global Holding,
eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga.
Auk þess heldur FL Group utan
um þriggja prósenta hlut í KB
banka. Við kaupin eflist FL Group
enn frekar en eftir útgáfu nýs
hlutafjár fyrir 1,8 milljarða að
nafnvirði verður eigið fé félagsins
um 110 milljarðar og markaðs-
virði líklega um 140 milljarðar.
Ekkert kaffiboð
Það er gaman að velta því fyrir
sér hvort þessi viðskipti séu leik-
ur í þeirri fléttu að steypa saman
Straumi-Burðarási og FL Group
eins og margir í viðskiptalífinu
hafa velt fyrir sér. Björgólfur
Thor og Hannes Smárason hafa
ekki áður starfað saman og ekki
heldur Björgólfsfeðgar, aðaleig-
endur Landsbankans, og Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, sem hefur nú orðið mikil
ítök í FL Group, Glitni og Straumi
í gegnum eignarhlut Baugs í FL
Group. Ekki má því horfa fram
hjá því að þessir aðilar gætu verið
að horfa enn lengra fram í tímann,
jafnvel á sameiningu Glitnis og
Landsbankans, sem áður hefur
komið til umræðu.
Hins vegar segja heimilda-
menn Fréttablaðsins að FL Group
sé ekki komið inn í Straum til að
drekka kaffi með Björgólfi Thor.
Leikfléttan er sú að FL Group
kemur Magnúsi og Kristni úr
óþægilegri stöðu, eignast sjálft
yfir fjórðung hlutafjár í Straumi
sem er staða sem félagið getur átt
um langa hríð og síðan komi í ljós
hver niðurstaðan verður. Arkitekt-
arnir á bakvið þessa skák eru þeir
Jón Ásgeir Jóhannesson og fyrr-
verandi forstjóri Straums, Þórður
Már Jóhannesson, sem naut mikils
trausts hjá Kristni og Magnúsi.
Ákvörðun um framhaldið ræðst af
því hvað Björgólfur Thor vill gera,
enda ráði hann enn för í Straumi
með hlut Samsonar og Fjárfest-
ingafélagsins Grettis á bak við sig
en hefur óþægilega minnihluta-
eigendur í samstarfi við sig. Hugs-
anlegt er að Straumi-Burðarási
verði hreinlega skipt upp milli FL
Group, sem fengi Straum, og
Björgólfsfeðga sem fengju Burðar-
ás. Og jafnvel gæti það gerst
að Björgólfur taki yfir Straum
gegn því að greiða öðrum hluthöf-
um gott verð fyrir sinn snúð.
Síðustu sviptingar vekja jafn-
framt spurningar um stöðu Björg-
ólfs Thors í íslensku viðskiptalífi
sem virðist eiga fáa bandamenn
þessa dagana. Samstarfsmönnum
Jóns Ásgeirs hefur aftur á móti
fjölgað um tvo.
Björgólfur vildi Magnús út
Niðurstaðan er stórgóð fyrir þá
félaga, Kristinn og Magnús, sem
Örlög Straums í höndum
Björgólfs Thors og Jóns Ásgeirs
Kaup FL Group á 24 prósenta hlut í Straumi-Burðarási er leikflétta sem er hönnuð af Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni, forstjóra Baugs, og Þórði Má Jóhannessyni, fyrrverandi forstjóra Straums. Ítök FL Group í fjármála-
kerfinu stóraukast en seljendur eignast fjórðung hlutafjár í félaginu. Björgólfur á næsta leik.
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON, FORSTJÓRI
BAUGS Hann og Þórður Már Jóhannesson
voru forkólfar þess að FL Group keypti hluti
Kristins og Magnúsar.
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU DAGA Björgólfur Thor Björgólfsson, Þórður Már Jóhannesson og Magnús Kristinsson þegar allt lék í lyndi - að minnsta
kosti á yfirborðinu.