Fréttablaðið - 29.06.2006, Side 24
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.477 -0,10% Fjöldi viðskipta: 247
Velta: 23.283 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,70 -0,48% ... Alfesca
3,86 +1,04%... Atorka 6,12 +2,12% ... Bakkavör 44,30 +0,45%
... Dagsbrún 5,70 +0,53% ... FL Group 17,50 -1,14% ... Flaga 3,83
+0,00% ... Glitnir 17,70 -0,00% ... KB banki 734,00 +0,41% ...
Landsbankinn 20,40 +0,49% ... Marel 70,90 -0,85% ... Mosaic
Fashions 15,80 +0,63% ... Straumur-Burðarás 18,30 -2,19% ...
Össur 107,00 -0,94%
MESTA HÆKKUN
Atorka 2,12%
Alfesca 1,04%
Mosaic 0,63%
MESTA LÆKKUN
Straumur-Burðarás 2,19%
FL Group 1,14%
Össur 0,94%
Stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins boðar til
aukaársfundar á Grand Hóteli í Reykjavík
föstudaginn 30. júní kl. 12 á hádegi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu
með málfrelsi og tillögurétt.
Stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins
Aukaársfundur
Samvinnulífeyrissjóðsins
og stofnfundur nýs lífeyrissjóðs
Kynntar verða, og bornar undir atkvæði, tillögur að
breytingum á samþykktum sjóðsins vegna sameiningar
Samvinnulífeyrissjóðsins og Lífiðnar og einnig viðauki
við samrunasamning sjóðanna. Hægt er að skoða
tillögurnar á heimasíðu sjóðsins: www.sls.is.
Strax að loknum aukaársfundinum verður stofnfundur
nýs sameinaðs lífeyrissjóðs Samvinnulífeyrissjóðsins
og Lífiðnar.
Áhætta í tryggingum fjárfestinga
Fulltrúar bæði banka og fyrirtækja
lögðu eyrun af athygli við orð
fulltrúa undirstofnunar
Alþjóðabankans í vikunni á
fundi Viðskiptastofnunar
utanríkisráðuneytisins um
fjárfestingar í ótryggari
heimshornum þar sem
stjórnvöld þykja völt eða
stríð eru yfirvofandi.
Stofnunin, sem heitir
MIGA, býður tryggingar gegn
slíkum áföllum. Athygli vakti að
meðal fundargesta var athafnamað-
urinn Holberg Másson, sem sjálfum
hefur á lífsleiðinni gengið misvel að
feta þröngan stíg dyggðanna. Hann rak á
sínum tíma fyrirtækið Netverk og fór nokkuð
fyrir honum á netbólutímum áður en halla
fór undan fæti. Forvitnilegt verður að sjá hvaða
áhættusömu fjárfestingar hann hefur í huga.
Fulltrúi MIGA tók Holberg ljúflega og
kvaðst hlakka til að heyra frá honum.
Horfa björtum augum á
laxinn
Um þessar mundir eru 300
þúsund tonn af eldislaxi í kvíum
í Noregi, um 20 þúsund tonnum
meira magn en á sama tíma í fyrra.
Fiskifréttir hafa eftir norska sjávarút-
vegsblaðinu Fiskaren að framleiðendur
séu bjartsýnir á stöðugleika í greininni
á næsta ári og útlit sé fyrir að þarnæsta ár
verði gott. 115 milljón laxaseiði hafa verið sett
til framhaldseldis og búist er við að í haust verði
68 milljón seiði sett í eldi. Horfur eru á að 610
þúsund tonnum af eldislaxi verði slátrað í Noregi í
ár en það er 38 þúsund tonnum meira en í fyrra.
Peningaskápurinn...
Agnar Már Jónsson hefur að eigin
ósk sagt upp störfum sem forstjóri
Opinna kerfa. Gylfi Árnason, for-
stjóri móðurfélagsins Opinna
kerfa Group, tekur tímabundið við
störfum hans. Gylfi gegndi starf-
inu jafnframt á undan Agnari sem
tók við starfinu í nóvember 2004.
„Ég stýri fyrirtækinu í sama
dúr og hann gerði áður þannig að
þetta hefur ekki í för með sér nein-
ar breytingar aðrar á rekstri eða
starfsemi fyrirtækisins,“ segir
Gylfi og áréttar að starfslok Agn-
ars séu ekki í neinum tengslum
við breytingar sem urðu nýverið á
eignarhaldi fyrirtækisins. „Við
þökkum Agnari góð störf og í
honum er eftirsjá,“ segir Gylfi.
Agnar Már staðfestir að breyt-
ingin hafi ekkert með eignarhald
fyrirtækisins að gera heldur hafi
verið tímabært að snúa sér að
öðrum verkefnum. „En núna fyrst
tekur við sumarfrí með fjölskyld-
unni,“ segir hann glaðbeittur. „Svo
bíður bara gnótt tækifæra.“ - óká
Forstjóraskipti hjá Opnum kerfum
GYLFI ÁRNASON Gylfi er núna forstjóri
bæði Opinna kerfa á Íslandi og móðurfé-
lagsins Opinna kerfa Group.
Forstjóri Dagsbrúnar
furðar sig á ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins
um að ógilda kaup fé-
lagsins á afþreyingarfyr-
irtækinu Senu. Ákvörð-
uninni hefur verið skotið
til Áfrýjunarnefndar
samkeppnismála. Verði
samruni fyrirtækjanna
ógiltur ganga kaupin til
baka.
Samkeppniseftirlitið hefur ógilt
kaup Dagsbrúnar á Senu. Samruni
fyrirtækjanna er sagður styrkja
markaðsráðandi stöðu beggja á
ýmsum mörkuðum fjölmiðlunar
og afþreyingar, sem takmarkað
geti samkeppni og gert þeim kleift
að „haga verðlagningu sinni, við-
skiptakjörum og þjónustu án þess
að taka tillit til keppinauta sinna
og neytenda,“ segir í ákvörðun-
inni. Þá er talið að samkvæmt
skilningi samkeppnislaga og í ljósi
hlutafjáreignar og tengsla við aðra
stóra hluthafa fari Baugur Group
með yfirráð í Dagsbrún.
Gunnar Smári Egilsson, for-
stjóri Dagsbrúnar, segir ákvörðun-
ina hafa komið mjög á óvart. Hann
segir að búast hefði mátt við ein-
hverjum takmörkuðum skilyrðum
á sviðum þar sem rekstur fjöl-
miðlahluta Dagsbrúnar og Senu
skarist að sáralitlu leyti. „Þess í
stað fáum við ákvörðun sem byggir
á því að Stöð 2 sé markaðsráðandi á
markaði sem í raun er ekki annað
en stöð 2. Þetta er á skjön við fyrra
álit Samkeppnisráðs frá árinu 2000,
þar sem sjónvarpsmarkaður er
þannig skilgreindur að RÚV og
Stöð 2 keppi á sama markaði,“ segir
hann og bendir á að rekstrarform
sjónvarpsstöðvanna sé í raun eins.
„Þetta er sambland af áskriftar- og
auglýsingatekjum. Hlutfallið er
meira að segja sambærilegt. Eini
munurinn er að sá sem ekki borgar
áskriftina að RÚV missir sjónvarp-
ið sitt. Úrskurðurinn er því sam-
bærilegur við að Morgunblaðið
væri talið markaðsráðandi meðal
áskriftarblaða og ætti ekki í sam-
keppni við Fréttablaðið.“
Gunnar Smári hafnar því jafn-
framt að Baugur fari með yfirráð í
Dagsbrún, en í yfirlýsingu Baugs
Group í gær kemur fram að eign-
arhlutur félagisins nemi 31 pró-
senti. „Yfirtökunefnd og yfirvöld
sem fylgjast eiga með slíku hafa
enda engar athugasemdir gert,“
segir Gunnar Smári. Hann segir
Dagsbrún ekki verða fyrir fjár-
hagslegum skaða vegna málsins
en óþægilegt sé samt að það tefjist
meðan áfrýjunarnefnd samkeppn-
ismála hefur það til umfjöllunar.
olikr@frettabladid.is
Á AÐALFUNDI DAGSBRÚNAR Í FEBRÚAR Þórdís Sigurðardóttir stjórnarformaður og Gunnar
Smári Egilsson forstjóri Dagsbrúnar. Samkeppniseftirlitið hefur ógilt kaup félagsins á
afþreyingarfyrirtækinu Senu, sem áður hét Skífan. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Segja ekkert tilefni til að
ógilda samruna við Senu
Sund hefur keypt 31 prósents hlut
Tryggingamiðstöðvarinnar í Fjár-
festingafélaginu Gretti og er þar
með orðinn stærsti hluthafinn með
49 prósenta hlut.
Markaðurinn greindi frá því á
dögunum að eigendur myndu
verja stöðu sína eftir að TM fór
fram á innlausn hluta í Gretti.
Aðrir hluthafar Grettis eru
Landsbankinn og Ópera, fjárfest-
ingafélag Björgólfsfeðga.
Grettir er meðal stærstu hlut-
hafa í Straumi-Burðarási en á
einnig hluti í Avion Group, Ice-
landic Group og Landsbankanum.
Þetta er eitt öflugasta fjárfest-
ingafélag landsins en markaðs-
verðmæti innlendra hlutabréfa
nemur rúmum 34 milljörðum
króna.
Ekki kemur fram hvert kaup-
verðið er, en TM bókfærði hlutinn
á 5,5 milljarða króna þann 31.
mars síðastliðinn. Greitt var með
peningum.
Sigurður G. Guðjónsson lög-
maður hefur jafnframt verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Grettis.
Hann hefur starfað fyrir Jón
Kristjánsson, stjórnarformann
Grettis og einn eigenda Sunds.
- eþa
TM SELUR HLUT SINN Í GRETTI Sund kaupir
hlutinn og á orðið 49 prósent hlutafjár.
Línur ljósar í Gretti
MARKAÐSPUNKTAR
Greiningardeild Glitnis banka hrósar
aðgerðum ríkisins til að draga úr
verðbólgu. Deildin segir það hins
vegar sorglega staðreynd að varað hafi
verið við aukinni verðbólgu við upphaf
þensluskeiðsins og hefði átt að ráðast
fyrr í aðgerðir.
Verðbólguhjöðnun er ekki í sjónmáli
í Afríkuríkinu Simbabve. Verðbólgan
í landinu hækkaði um 150,6 prósent
á milli mánaða og mældist 1.193,5
prósent í maí. Samkvæmt þessu þurfa
landsmenn í Simbabve að greiða 13
sinnum meira fyrir vörur en í fyrra.
Verð á olíu hefur hækkað um 22,8 pró-
sent það sem af er þessu ári, þar af um
tvö prósent í vikunni. Greiningardeild
Landsbankans hefur eftir fréttastofu
Bloomberg að ástæðan nú sé m.a. lítið
framboð og olíuleki við Mexíkóflóa.
VERSLUN OASIS Í SMÁRALIND
Fáar breskar tískuvöruverslunar-
keðjur skila jafn miklum hagnaði
á erlendri grundu og Mosaic
Fasions, að sögn Dereks Lovelock,
forstjóra félagsins. Á síðasta
rekstrarári jókst velta félagsins
um 41 prósent erlendis. Einkum
hafa verslanir undir merkjum
Karen Millen og Oasis gengið vel í
útrás til annarra landa og er við-
búið að verslunum fjölgi hratt á
næstu árum.
Lovelock nefnir sérstaklega
Rússland þar sem unga, nýríka
fólkið hefur tekið Karen Millen
opnum örmum og hefur sérleyfis-
hafinn í Rússlandi opnað fimm
verslanir í Moskvu. Þá er Oasis-
verslunin í Moskvu í hópi fimm
söluhæstu verslana Oasis sem eru
alls 240.
Derek er spurður af hverju
breskar verslunarkeðjur sæki svo
til Íslands sem raun ber vitni.
„Markaðurinn á Íslandi og í Skand-
inavíu svipar mjög til þess breska.
Smekkur neytenda er sá sami, tísk-
an sú sama og líkamsbygging fólks
mjög lík.“ Hann bendir á að ef
farið er til Suður-Evrópu ráði aðrir
straumar för, litur og smekkur eru
ólíkir því sem Norður-Evrópubúar
eiga að venjast auk þess sem
líkamsbygging er önnur. - eþa
Karen Millen vinsæl í Rússlandi
Alþjóðlegi fjárfestingasjóðurinn
Project Abbey (Guernsey) Ltd
hefur tryggt sér stærsta
framkvæmdaverk í Bretlandi nú
um stundir.
Um er að ræða kaup á lóð
bresku ríkisspítalanna í West End-
hverfinu í Lundúnum. Fyrirtækið
mun meðal annars rífa Middlesex-
sjúkrahúsið, sem staðið hefur autt
síðan starfsemi þess flutti fyrir
nokkru, og sinna uppbyggingu á
svæðinu.
Singer & Friedlander, breski
bankinn sem að fullu í eigu
Kaupthings banka, kom að
fjármögnun kaupa Project Abbeys
á framkvæmdum á reitnum, sem
er rúmir 12.000 fermetrar að flat-
armáli. - jab
Kaupthing rífur og byggir
LOFTMYND AF MIDDLESEX-SJÚKRAHÚSINU
Á myndinni sést hversu stórt framkvæmda-
svæðið er í Lundúnum.