Fréttablaðið - 29.06.2006, Síða 30
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR30
og fólk
? Vissir þú...að stóðhesturinn Markús frá Lang-
holtsparti á 225 skráð afkvæmi? Sú
sem þar stendur efst er hryssan Ösp
frá Hólum sem hlaut 8,64 í aðalein-
kunn á Landsmótinu sem nú stendur
yfir.
www.worldfengur.com
Sigurbjörn Bárðarson hefur farið á landsmót
allt frá árinu 1966. Það gera alls þrettán
skipti. „Þetta verður alltaf skemmtilegra,“ segir
Sigurbjörn sem í daglegu tali er aldrei nefndur
annað en Diddi. „Landsmót hefur verið fært í
nýjan og betri búning, hrossin verða betri, sýn-
ingarnar fágaðri og breidd sýninganna meiri.
Þetta fer allt saman í að gera heildardagskrána
skemmtilegri og markvissari. Allt opinberast
strax þannig að maður fylgist betur með, auk
þess er tengingin orðin meiri og menn geta
verið í þó nokkurri fjarlægð en fylgst með á
útvarpsrásum og því verið með fingurinn á
púlsinum allan tímann.“
Sigurbjörn hefur keppt á öllum þeim lands-
mótum sem hann hefur farið á nema á því
fyrsta. „Árið 1966 var ég bara lítill pjakkur að
horfa á,“ segir hestamaðurinn knái en í þetta
sinn er hann með átta hesta. Þá eru dætur
hans tvær, Sylvía og Sara, einnig að keppa og
í allt er fjölskyldan með fjórtán hesta á lands-
móti, bæði í keppni og kynbótasýningu.
Dætur Sigurbjörns eru þaulvanar keppnis-
manneskjur og hefur pabbinn fylgst með þeim
á vellinum í mörg ár. „Það kemur alltaf fiðring-
ur í magann þegar þær keppa, meira en þegar
ég keppi sjálfur,“ viðurkennir Sigurbjörn.
Sigurbjörn segir stemninguna fara stig-
vaxandi á landsmótinu nú. „Það eru bara þeir
allra hörðustu sem koma þessa fyrstu daga en
síðan fer fólkið að hópast að á föstudegi og
allt fer að yfirfyllast.“
HESTAMAÐURINN: SIGURBJÖRN BÁRÐARSON TAMNINGAMEISTARI
Alltaf skemmtilegra með hverju móti
Sigurbjörn á Landsmóti 2002.
Saga Landsmóta hestamanna nær
aftur til 1950 þegar hið fyrsta var
haldið á Þingvöllum. Þar voru
sýnd 133 hross, kynbótahross,
gæðingar og kappreiðahross.
Á þeim tíma var aðeins keppt í
einum flokki gæðinga sem var
flokkur alhliða gæðinga, auk
kappreiða og kynbótasýninga.
Eftir það voru haldin landsmót
á fjögurra ára fresti, allt þar til
að á ársþingi Landssambands
hestamannafélaga 1995 var sam-
þykkt að halda mótin á tveggja
ára fresti.
Fyrsta mótið sem haldið var
eftir þeim reglum var haldið í
Reykjavík árið 2000. Þetta er því
í fjórða skiptið sem aðeins líða
tvö ár á milli móta.
Landsmót eru einstakir við-
burðir, hápunktur og uppskeru-
hátíð, stærsta mót í heimi þar sem
íslenskir hestar koma saman.
Þar má sjá öll bestu hross lands-
ins í fjölbreyttri gæðingakeppni,
tölti, kappreiðum og kynbótasýn-
ingum.
Gestir landsmótsins eru fjöl-
þjóðlegur hópur og þar eru allir
áhrifamestu ræktendur Íslands
saman komnir, ásamt landsins
bestu reiðmönnum og öllu því
fjölmarga fólki sem hefur ein-
faldlega gaman af því að horfa á
glæsilega hesta.
Mikið er lagt upp úr því að
aðstaða sé sem best og upplýs-
ingastreymi til landsmótsgesta
gott. Risaskjár, stúkusæti og dag-
blaðaútgáfa eru meðal nýjunga
sem boðið hefur verið upp á og er
það markmið rekstaraðilanna að
gera mótin sífellt betri.
Heimild: Heimasíða Landsmóts ehf.
Landsmót í rúma hálfa öld
Það vakti töluverða lukku á fyrsta degi landsmóts á Vindheimamelum í Skagafirði að
efsta hryssan í flokki hryssna sjö vetra og eldri, skyldi vera úr ræktun heimamanns.
Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki er í eigu Sauðárkróks-hesta og úr ræktun Sveins Guð-
mundssonar yngri, sonar Guðmundar
Sveinssonar og sonarsonar Sveins
Guðmundssonar sem eru hestamönn-
um að góðu kunnir enda standa þeir
á bak við mikla ættfeður og -mæður
kennd við Sauðárkrók.
Hvíta-Sunna er undan Spegli frá
Sauðárkróki og Vöku frá Sauðárkróki.
Hún hlaut 8,55 í aðaleinkunn þar á
meðal 9,5 fyrir fet og níu fyrir brokk,
vilja og geðslag og hægt tölt. Ekki
skemmir litfegurðin en Hvíta-Sunna er
leirljós og glófext með blesu.
■ Heimamenn í skýjunum yfir hvítri Sunnu
Hvíta Sunna frá Sauðárkróki og Sigurður Vignir
Matthíasson FRÉTTABLAÐIÐ/EIÐFAXI
Þeir hestamenn sem af einhverjum orsökum komast ekki norður í land í þetta skipti
þurfa ekki að örvænta. Þeir geta fylgst náið með framgangi mála enda mikið vatn
runnið til sjávar í upplýsingamiðlun á síðustu árum.
Á veraldarvefnum starfa nokkrir fréttamiðlar sem sérhæfa sig í hestafréttum. Fyrst
ber að nefna landsmot.is þar sem öll úrslit birtast fljótlega eftir að keppni lýkur. Aðrir
vefir eru www.hestar.net, www.eidfaxi.is, www.hestafrettir.is og www.847.is.
Þá verður einnig umfjöllun um landsmótið á hverjum degi í Fréttablaðinu. Það
ætti því enginn fréttaþyrstur hestamaður að líða skort á næstu dögum.
■ Landsmótsfréttir á veraldarvefnum
Sigurvegarar á Landsmóti 2003
Stoltir fánaberar á Landsmóti 2003 á Vindheimamelum.
Barcelona er einstök perla sem
íslendingar hafa
tekið ástfóstri við.
Heimsferðir bjóða
þér nú 5 nátta
helgarferð á
frábærum kjörum til þessarar
einstöku borgar. Gist er á glænýju
3 stjörnu (superior) hóteli, Hotel
Confortel Auditori, sem opnaði í
vor og er staðsett á frábærum
stað í Barcelona í 10-15 mín
göngufæri frá Römblunni. Verð kr. 39.990
M.v. 2 í herbergi í 5 nætur á
Hotel Confortel Auditori ***+
með morgunverði, 6., 13. og 20.
júlí. Netverð á mann.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 15.900.
Frábær gisting - 5 nátta helgarferð
Barcelona
6. og 13. júlí
frá kr. 39.990
Sú skemmtilega nýbreytni varð á þessu landsmóti að báðir sigurvegararnir frá síðasta
landsmóti, úr A og B- flokki, mættu til leiks á ný til að gera tilraun til að endurheimta
titilinn. Þetta voru þeir Geisli frá Sælukoti sem
Steingrímur Sigurðsson reið til sigurs í A- flokki á
Hellu fyrir tveimur árum, og Rökkvi frá Hárlaugs-
stöðum sem varð efstur í B-flokki gæðinga á sama
móti ásamt knapa sínum, Þorvaldi Árna Þorvalds-
syni.
Eftir forkeppnina hafa þessir tveir gæðingar sýnt
og sannað að þeir voru verðugir sigurvegarar og
koma efstir inn í milliriðil. Þá er bara að sjá hvort
Hlýr frá Vatnsleysu, Kraftur frá Bringu eða Þóroddur frá
Þóroddsstöðum nái að slá þeim við í næstu viðureign.
■ Landsmótssigurvegarar heimta sigur á ný
Geisli geislar af krafti á Hellu
fyrir tveimur árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR JÓNSSON
Íslenska hestatorgið 2006
verður opnað formlega af
Guðna Ágústssyni landbún-
aðarráðherra í dag á Vind-
heimamelum. Hestatorgið
er nýtt samstarfsverkefni
Félags hrossabænda, Félags
tamningamanna, Hólaskóla,
Söguseturs íslenska hests-
ins og WorldFengs.
„Íslenski hesturinn er orðinn
alþjóðleg vara og ef við viljum
vera í þeirri alþjóðlegu samkeppni
sem ríkir er nauðsynlegt að við
þjöppum okkur saman til að geta
verið með sem öflugasta sýningu,“
segir Arna Björg Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri verkefnisins,
en hún er einnig forstöðumað-
ur Söguseturs íslenska hestsins
á Hólum í Hjaltadal. Hún segir
markmiðið vera að vinna að heild-
stæðum kynningum á íslenska
hestinum til að styrkja stöðu hans
bæði heima og erlendis
Íslenska hestatorgið verður
formlega opnað í dag en félögin
sem standa að því hafa leigt sam-
eiginlega aðstöðu í markaðstjaldi
á Vindheimamelum. Margir við-
burðir verða í boði þá daga sem
mótið stendur yfir. „Þar koma
þekktir knapar, eins og Atli Guð-
mundsson, Olil Amble og Þor-
valdur Árni Þorvaldsson. Þau tala
frá eigin brjósti um tamningar,
þjálfunarleiðir og hestana sína. Þá
koma einnig söðlasmiðir og sýna
handverk sitt og leikarinn Dofri
Hermannsson les fyrir yngri kyn-
slóðina,“ segir Arna.
Ætlunin er að halda samstarf-
inu áfram og stefnan er sett á
heimsleikana í Hollandi árið 2007.
„Íslenski hesturinn er orðinn vin-
sæll erlendis en við þurfum að
taka höndum saman um að minna
á að við erum upprunalandið,“
segir Arna að lokum.
Sterkari sem ein heild
FRAMKVÆMDASTJÓRI Arna Björg segir
nauðsynlegt í ljósi alþjóðlegrar samkeppni
að stoðfélög íslenska hestsins minni á að
Ísland sé upprunaland íslenska hestsins.
FAGURT Í SKAGAFIRÐI Nokkrar grunnstoðir hestamennskunnar hafa tekið sig saman um
að kynna íslenska hestinn hér á landi sem erlendis. Það ætti ekki að reynast erfitt meðan
Íslendingar eiga jafn glæsileg hross og Ösp frá Hólum sem Mette Manseth ríður hér á
landsmóti. FRÉTTABLAÐIÐ/EIÐFAXI