Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 36
[ ]
Frizz-Ease Straight Ahead er sérhannað til að slétta
úfið og krullað hár. Gefur hárinu silkimjúka áferð, raka
og fallegan gljáa. Úfið hár heyrir sögunni til.
Opið mán-fös 11-18
laugardaga 11-15
25% afsláttur
af nærfatalínunum
Stella og Patrica
Vertu þú sjálf
– vertu Bella donna
skóverslun, Rauðarárstíg 14, 101 Reykjavík. trippen.is
Þú verður að eignast
35% afsláttur
Margir halda kannski að stuttbux-
ur séu aðeins fyrir langa, grann-
vaxna leggi og vel stælta rassa en
svo er ekki. Margar tegundir eru
til af stuttbuxum í verslunum
landsins og ættu allir að finna eitt-
hvað við sitt hæfi – ef viljinn er
fyrir hendi.
Það eru kannski ekki allir sem
fíla sig í níðþröngum buxum sem
skilja lítið eftir fyrir ímyndunar-
aflið, en nóg er til af víðum stutt-
buxum og hnésíðum sem eru ekki
síður vinsælar.
Það skiptir líka máli hverju er
klæðst við stuttbuxurnar því eins
og með annað er ekki allt sem
smellpassar við. Vesti og stuttir
jakkar passa mjög vel við sem og
langerma bolir. Flegnir bolir eru
alveg í banni en stuttbuxur virka
vel hvort sem verið er í sokkabux-
um innanundir eða ekki. Flottir
aukahlutir eins og stór sólgler-
augu og grófar hálsfestar setja
punktinn yfir i-ið. Velkomin í stutt-
buxnasumarið! lilja@frettabladid.is
Stuttbuxnasumarið er komið
Stuttbuxur eru nýjasta æðið út í heimi og litla Ísland hefur ekki farið varhluta af því.
Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria er
brún og sæt í hvítum stuttbuxum.
Kate Moss sínir granna leggina í stuttbux-
um.
Leikkonan vinalega Jennifer Aniston tekur
sig vel út í stuttbuxum.
Fínar stuttbuxur
3.490 kr. í NEXT.
Svakalega stuttar stuttbuxur
5.190 kr. í NEXT.
Einfaldar og þægilegar stuttbuxur
2.900 kr. í Spúútnik.
Hnésíðar buxur með belti
5.690 kr. í NEXT.
Geggjaðar gullstuttbuxur
9.900 kr. í All Saints.
Hvítar gallastuttbuxur
4.990 kr. í Blend.
Dökkar gallastuttbuxur 9.900
kr. í All Saints.
Fínar brúnar stuttubuxur með
flottri slaufu 6.990 kr. í Blend.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Þó það rigni er hægt að vera sumarlegur. Sumarleg og litrík regnhlíf
getur bjargað málunum á meðan júnírigningin skellur á okkur.