Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 39
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006 5
Á þessu ári fagnar bikiníið sex-
tíu ára afmæli sínu. Bikiníið
er ekki lengur hneykslanleg
uppfinning heldur nauðsynleg
tískuvara.
Fyrsta bikiníið var gert af Louis
Réard og var það dansarinn
Micheline Bernardini sem klædd-
ist því fyrst á fegurðarsamkeppni
5. júlí árið 1946. Bikiníið vakti
óróa með fólki þó það hefði sést í
fjöldamörgum myndum seint á
fjórða áratugnum. Hins vegar var
naflinn aldrei beraður á þessum
tíma og þurfti Louis Réard að
hanna mun efnismeiri flíkur til að
auka sölu sína.
Bikiníið var upphaflega bannað
af kirkjunni á Ítalíu, Spáni og
Portúgal og félag á móti bikiníum
var stofnað í Ríó de Janeiro árið
1947. Hollywood fagnaði hins
vegar tískunni með stjörnurnar
Brigitte Bardot, Jayne Mansfield,
Marilyn Monroe og Ritu Hay-
worth fremstar í flokki. Og þegar
Mansfield sat fyrir í bikiníi í tíma-
ritinu Life var bikiníið fyllilega
tekið í sátt vestan hafs.
Þýskumælandi lönd litu á bik-
iníið með fyrirlitningu til að byrja
með. Í eintaki af tímaritinu Das
Mädchen frá árinu 1957 stendur:
„Við munum ekki eyða neinum
orðum í hið svokallaða bikiní. Það
er óhugsandi að sómakær stúlka
klæðist slíkum fatnaði.“ Það var
ekki fyrr en snemma á sjöunda
áratugnum sem bikiníið var sam-
þykkt í Þýskalandi en það var bik-
iníatriði Ursulu Andress í James
Bond-myndinni Dr. No að þakka.
Nú á dögum eru bikiní jafn vin-
sæl, ef ekki vinsælli, en sundbolir
og varla hægt að sjá konu á sólar-
strönd sem ekki er í bikiníi. Svona
eru hlutirnir fljótir að breytast.
lilja@frettabladid.is
Sextíu ár í bikiníi
Allir helstu fatahönnuðir heimsins í dag
hanna bikiní enda afar vinsæl tískuvara.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Jayne Mansfield var ein af þeim fyrstu
vestan hafs sem klæddust bikiníi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Í versluninni Elvis við Vatns-
stíg eru til ótrúlega flottar
lausnir fyrir þá sem eru hrifnir
af húðflúrum en vilja ekki stíga
skrefið til fulls og fá sér alvöru
húðflúr. Verslunin hefur til sölu
sérstakar flíkur sem láta þá
sem þeim klæðast líta út fyrir
að vera flúraðir í bak og fyrir.
Flíkurnar sem Elvis hefur til sölu
eru þröngir nælonbolir og ermar
sem fólk smeygir sér í sem innstu
flík. Við fyrstu sýn virðist sá sem
klæðist flíkunum vera húðflúrað-
ur út um allt. Ermarnar eru til
með nokkrum þemum og selur
búðin ýmsar útfærslur af húðflúrs-
ermum. Ermarnar fást tvær í
pakka og eru ermarnar í pökkun-
um ekki eins. Þannig getur fólk
fengið sér vinstri ermi með tribal-
munstri og hægri ermina með jap-
önsku þema svo dæmi sé tekið. Í
búðinni er einnig hægt að fá
þungarokksþema, glæpagengis-
þema og fleira. Pakkinn af þessum
svölu húðflúrsermum kostar fjög-
ur þúsund og níu hundruð krónur.
Bolirnir sem eru sérstaklega
hannaðir kosta tólf þúsund og
fimm hundruð krónur. -vör
Húðflúraður í bak og fyrir
Tattúermarnar fást í mörgum mismunandi
gerðum.
Tattúbolirnir láta allan efri hluta líkamans líta út fyrir að vera mikið flúraður.
Tattúermarnar í Elvis fást með ýmsum þemum.