Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 42
[ ]
Vorum að taka inn nýja sendingu af
baðkörum innréttingum og hand-
klæðaofnum, mikið úrval, gott verð.
Eigum einnig rafmagnshandklæðaofna.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
BBORÐ FYRIR TVO
BRÚÐARGJAFALISTAR
NÝ STAÐSETNING
NÝJAR VÖRUR
HUSGÖGN
Í hengirúmi á sólarströnd með
svalandi drykk í hendinni og
sólina í augunum. Það hljómar
ekkert svakalega illa. Nema
það þarf enga sólarströnd til
að njóta letilífsins og sólarinn-
ar í hengirúmi.
Hér á landi eiga hengirúm sífellt
meiri vinsælda að fagna meðal
landsmanna og ekki að ástæðu-
lausu. Það er fátt meira afslapp-
andi en að liggja í eins konar poka
á milli tveggja trjáa og leyfa geisl-
um sólarinnar að leika við líkam-
ann og gleyma öllum áhyggjum í
smá tíma.
Mikið úrval er til af hengirúm-
um á Íslandi og um að gera að
velja sér eitthvað nógu litríkt og
skemmtilegt til að fagna komu
sumars sem varir því miður ekk-
ert alltof lengi á klakanum. En
þegar sumarið er liðið þýðir
það ekki að hengirúmin þurfi að
rykfalla inni í geymslu. Þá er bara
hægt að finna þeim stað innan-
dyra og njóta þyngdarleysisins
nokkrum sentímetrum fyrir ofan
gólfið. lilja@frettabladid.is
Gleymdu öllum áhyggjum
Appelsínugult, rautt og blátt 1.888 kr. í Söstrene Grene.
Röndótt í fánalitunum 1.888 kr. í Söstrene
Grene.
Grænt nethengirúm 1.750 kr. í Habitat.
Skemmtilegt barnahengirúm 2.650 kr. í Habitat.
Sumarlegt og appelsínugult 2.500 kr. í Habitat. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fallegar og sumarlegar glasamottur lífga upp á borð-
haldið. Jafnvel þó þær séu ekki notaðar eru þær fallegt
borðskraut.
Eitt af því sem upplagt er að gera í sumarfríinu
ef illa viðrar til útivistar er að ramma inn upp-
áhaldsmyndirnar.
Sumarfríið gefur okkur tækifæri til að sinna ýmsu
sem annars situr á hakanum, það er að segja ef því er
ekki öllu varið til ferðalaga. Eitt af því sem gaman er
að gera þegar tími vinnst til og ekki viðrar til útivist-
ar er að kíkja á myndasafnið og koma skikki á það.
Margir eru með myndasafnið sitt inni á tölvu eða
á diskum og bíða færis að skoða það, prenta út mynd-
ir og jafnvel hengja upp. Sumir eiga líka óuppsettar
útsaumsmyndir eða aðrar gersemar sem upplagt er
að láta ramma inn og prýða veggina með. Tilbúnir
rammar fást víða og innrömmunarverkstæðin veita
líka góða þjónustu. - gg
Rammað inn
Myndir skapa stemningu og viðeigandi rammar eru eins og punktur
yfir i-ið.
Margir hægindastólar eiga sér gamla
sögu og því getur reynst erfitt að henda
slíkum dýrgripum. Einnig eru margir
sem erfa veglega og flotta hægindastóla
sem leiðinlegt er að láta skemmast inni
í geymslu - enda þægilegir þótt þeir séu
kannski orðnir ljótir.
Það er lítið mál að láta bólstra gamla
hægindastóla. Það er þá hægt að velja
sér munstur sem fellur vel við heimilið
eða breyta
algjörlega
um ytri
stíl og láta
bólstra
gamlan
flauelsstól
með leðri.
Þannig nýtur
maður þæg-
indanna,
heiðrar sög-
una og leyfir
stólnum
að sinna sínu hlutverki án þess að vera
götóttur eða hreinlega ljótur.
Bólstrun
GAMLIR OG SLITNIR HÆGINDASTÓLAR
GETA ORÐIÐ SEM NÝIR MEÐ ÞVÍ AÐ
LÁTA BÓLSTRA ÞÁ.