Fréttablaðið - 29.06.2006, Qupperneq 60
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Fyrir seinustu jól gaf rithöf-
undurinn Hugleikur Dags-
son út bókina „Forðist
okkur“ sem nú er uppseld,
en í henni var að finna þrjú
áður útkomin verk „Elskið
okkur“, „Drepið okkur“ og
„Ríðið okkur“, sem hann
sjálfur gaf út, en höfðu verið
ófáanleg í nokkurn tíma. Nú
hefur JPV útgáfa sent frá
sér enska útgáfu á bókinni,
sem höfundur þýddi sjálfur
og heitir á enskunni „Avoid
us“.
„Þegar ég skoðaði þetta
komst ég að því að þetta er
ekkert svo staðbundinn
húmor,“ segir Hugleikur.
„Þetta á sér allt einhvers
konar hliðstæðu í ensku
máli, en ég þurfti að breyta
einhverjum af sögunum.“
Friðrik Sólnes skrifaði
nýjan formála að bókinni, en
hann hefur skrifað formála
að öllum bókum Hugleiks.
„Hann Friðrik er rafvirki
sem ég þekki,“ segir Hug-
leikur, en gefur engin frek-
ari deili á manninum.
„Ég fór með hana í apríl á
myndasöguþing í Danmörku
og þar vakti hún mjög mikla
lukku. Fólk frá mörgum
löndum skoðaði hana og allir
voru voða hrifnir. Þessi
húmor virðist vera í gangi í
þessum bransa, sama hvort
hann er settur í bækur eða
sé bara til í kollinum á
fólki.“
Enska þýðingin verður til
að byrja með einungis til
sölu á Íslandi fyrir túrista-
markaðinn, en hægt er að
panta hana til útlanda á net-
inu.
Hugleikur var tilnefndur
til Menningarverðlauna DV
2006 og fékk Grímuverð-
launin Leikskáld ársins fyrir
leikgerðina að uppsetningu
leikhópsins Common Nons-
ense á „Forðist okkur“. „Ég
var nú eiginlega of upptek-
inn við að vinna í þessu leik-
riti til að hugsa um hvort
það mundi fá svona mikla
athygli,“ segir hann. „Ég var
búinn að skrifa meirihlut-
ann af því fyrir æfingar, en
svo þróaðist það eitthvað
meðan æfingar stóðu yfir.
Persónurnar þróuðust svo í
meðferð leikaranna.“
Hugleikur segist aldrei
hafa búist við svona góðum
viðtökum. „Ég var útskrif-
aður úr listaháskóla og far-
inn að vinna venjulega vinnu
sem stuðningsfulltrúi í FG,
en varð að gera eitthvað
skapandi svo ég gerði þetta.“
Í kjölfar velgengninnar
vinnur Hugleikur alfarið við
ritstörf. „Í sumar kemur út
teiknimyndasaga um ein-
eygða köttinn Kisa, sem ég
mun vonandi klára á næst-
unni. Svo er ég að skrifa
söngleik sem heitir „Leg“ og
fjallar um unga stúlku sem
verður ólétt, með kostulegum
afleiðingum,“ segir Hug-
leikur, en vill ekkert meira
gefa upp um verkefnið. „En
þetta er afar skemmtilegur
söngleikur, allavega enn
sem komið er.“
BÓK HUGLEIKS DAGSSONAR KEMUR ÚT Á ENSKU:
Myndasöguhöfundur Íslands
KATHARINE HEPBURN (1907-2003)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Dauðinn verður mikill
léttir. Engin fleiri viðtöl.“
Þegar bandaríska leikkonan Katharine
Hepburn lést, 96 ára að aldri, voru
ljósin á Broadway deyfð í heila
klukkustund henni til heiðurs.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ágústa María Ágústsdóttir
Klapparstíg 8, Njarðvík,
lést fimmtudaginn 8. júní sl. Jarðarför hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Einar Guðmundsson Harpa Guðmundsdóttir
Gunnar Elís Guðmundsson Mundína Marinósdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir Guðjón Svavar Jensen
Hrafnhildur Guðmundsdóttir Helgi G. Jósepsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Dagmar Jóhannesdóttir
sem lést laugardaginn 17.júní verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag fimmtudaginn 29. júní. kl 13.30.
Atli Viðar Jóhannesson Benna Stefanía Rósantsdóttir
Dagmar Ósk Atladóttir Halldór Walter Stefánsson
Inga Sigrún Atladóttir Eric Rubin Dossantos
Kristjana Atladóttir Pétur Marinó Fredriksen
Júlía Rós Atladóttir Hermann Sigurður Björnsson
og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Jónsdóttir
Stigahlíð 6, svo Viðarási 27,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 23. júní sl.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 30. júní kl. 11.00.
Halldór Jón Júlíusson
Guðbjörg Fjóla Halldórsdóttir
Snæþór Sigurbjörn Halldórsson
Lína Dögg Halldórsdóttir
Hermann Hinriksson Laufey Vilmundsdóttir
Agnar Kristinn Hermannsson
Hinrik Nikulás Hermannsson
Alda Guðrún Hermannsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Guðrún Sigríður Wormsdóttir
frá Eiríksbúð, Arnarstapa,
verður jarðsungin frá Hellnakirkju á Snæfellsnesi
laugardaginn 1. júlí kl. 14.00.
Gullý Bára Kristbjörnsdóttir Ágúst Geir Kornelíusson
Sigurborg Jenný Kristbjörnsdóttir
Kristín Hulda Kristbjörnsdóttir Sveinn Sigurjónsson
Anna Björg Kritsbjörnsdóttir Ómar Árni Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, barnabarn, mágur og
frændi,
Konráð Guðmundsson
sem lést þann 22. júní á heimili sínu, Aðalgötu 52,
Ólafsfirði, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju
föstudaginn 30. júní, kl. 14.00.
Fjóla Jósepsdóttir
Guðmundur Konráðsson Rósa Jóhannsdóttir
Bjartmar Guðmundsson
Hafþór Guðmundsson Linda Rós Björnsdóttir
amma, afi og nánir ættingjar.
Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragnheiður Kristjánsdóttir
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
lést á krabameinsdeild Landspítalans 27. júní.
Vera Björk Einarsdóttir Hjalti Kristjánsson
Íris H. Einarsdóttir Kári G. Schram
María Árnadóttir Ríkarður B. Jónsson
Hörður Árnason Aðalheiður Benediktsdóttir
Elísabet Árnadóttir Eysteinn Sigurðson
Bolli Árnason Aðalbjörg Ingadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
William Hernig Jensen
Brorsonsvej 19, st.v, 7400 Herning, Danmark
lést laugardaginn 24. júní á sjúkrahúsi á Jótlandi.
Jarðarförin hefur farið fram.
Edith Hvid Jensen
Olga Hvid Mortensen
Leif Hvid Jensen Hanne Stagsted
Erik Hvid Jensen Ella skov
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Þorkell Nikulásson
fisksali, Hæðargarði 29, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju í dag,
fimmtudaginn 29. júní kl. 15.00.
Hólmfríður Kristjánsdóttir
Helga Þorkelsdóttir Andrés Þórðarson
Kristján Þorkelsson Sigurdís Sigurðardóttir
Guðmundur Þorkelsson Kristjana Stefánsdóttir
Guðríður Þorkelsdóttir Guðmann Héðinsson
Viðar Þorkelsson Sigríður Svava Þorsteinsdóttir
afabörn og langafabörn.
MYNDASAGA ÚR AVOID US Eins og sjá má skilar svartur húmor Hugleiks sér vel á fleiri tungumálum en bara
íslensku.