Fréttablaðið - 29.06.2006, Qupperneq 74
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR50
Þessa stundina stendur tískuvika yfir í Mílanó. Helstu hönnuðir heims eru samankomnir í tískuborginni til að sýna herrafatnað fyrir vor/sumar ´07.
Kannski er ótímabært að fjalla um næsta sumar þegar
þetta er varla byrjað en fatahönnuðir eru vanir að vinna
eitt ár fram í tímann og er því eins gott að vera með frjóa
hugsun. Hönnuðir á borð við Miuccia Prada, Gianni
Versace, Alexander McQueen og Antonio Marras voru
meðal þeirra hönnuða sem sýndu listir sínar og samkvæmt
þeim verður herratískan bæði litaglaðari og tilraunakennd-
ari næsta sumar. Stuttbuxur, síðir frakkar og axlabönd
koma fram hjá mörgum hönnuðum. Ljósgrár og ljósbrúnn
voru allsráðandi í bland við æpandi skæra liti á borð við
bleikan, gulan og fjólubláan. Buxurnar eru að verða víðari
aftur og fóru margir hönnuðir aftur í tímann með tvíhnepptum
jökkum og axlaböndum. alfrun@frettabladid.is
Tískuvikan í Mílanó fer vel af stað
EMPORIO ARMANI Þessi jakkaföt eru glæsi-
leg í sniðinu og eru skyrtan, bindið, klútur-
inn og fötin öll í sama ljósgráa litnum.
ANTONIO MARRAS Skemmtileg samsetning
frá þessum ítalska hönnuði. Hermanna-
buxur og herralegur klæðnaður með öllu
tilheyrandi að ofan.
STUTTBUXUR Þær verða mikil tískubóla
næsta sumar ef marka má hönnun Miuccia
Prada. Næstum því hver einasta fyrirsæta
á sýningunni klæddist stuttbuxum. Hér
skemmtileg litasamsetning, ljósgrátt og
gult.
VÍGALEGUR Hönnunartvíeykið Dolce&Gabb-
ana lét sig ekki vanta á tískuvikuna enda
Mílanó heimaborg þess. Flottar óþvegnar
gallabuxur, með ljósgrárri og fjólublárri
peysu og skyrtu sem passar vel við.
MEGA STRÁKAR VERA Í BLEIKU? Þessi
skemmtilegi hversdagsfatnaður er úr
smiðju Emporio Armani. Ljósgráar buxur,
svört mynstruð skyrta og bleik hneppt
peysa í stíl við bleika íþróttaskór.
VERSACE Donatella, systir
Gianni Versace, hannar
nú herralínu merkisins og
hefur henni tekist vel til.
Ljós brún jakkaföt með
æpandi gulu bindi og
ljósblárri skyrtu. Settlegt
og fínt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Söngleikurinn Footloose verður
frumsýndur í kvöld í Borgarleik-
húsinu. Úrvalsleikarar og frábær-
ir dansarar koma fram í sýning-
unni og gaman verður að sjá
hvernig leikstjóranum Unni Ösp
Stefánsdóttur og Þorvaldi Bjarna
tónlistarstjóra tekst að moða úr
efninu. Með aðalhlutverk fara
Þorvaldur Davíð Kristjánsson og
Halla Vilhjálmsdóttir, ásamt
Jóhanni Sigurðssyni og Guðlaugu
Elísabetu Ólafsdóttur.
Footloose
frumsýnt
FOOTLOOSE Dansmyndin Footloose er í
guðatölu hjá mörgum yngri dönsurum og
vonandi býður söngleikurinn upp á góðan
dans og söng. MYND/BJÖRG VIGFÚSDÓTTIR