Fréttablaðið - 29.06.2006, Qupperneq 78
54 29. júní 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Spennan í Landsbanka-
deild kvenna í ár er mjög lítil eftir
sjö umferðir, þar sem minni liðin
hafa ekki átt neina möguleika gegn
þeim sem ofar eru. Búið er að
skora 177 mörk í leikjunum 28, eða
6,32 mörk að meðaltali í leik.
Vanda Sigurgeirsdóttir lýsti
yfir áhyggjum sínum á þróun
íslenskrar kvennaknattspyrnu í
Fréttablaðinu í gær og kallaði eftir
breytingum á fyrirkomulagi deildar-
innar.
„Það hafa oft komið tillögur um
að fækka í deildinni vegna þessa
mikla getumuns sem er á liðum,
en hvort að breytt mótafyrirkomu-
lag leysi vandamálið veit ég ekki.
Það kemur þó alveg til greina að
breyta því. Að allir spili við alla í
tvöfaldri umferð er algengasta
mótafyrirkomulagið og viðurkennt
á heimsvísu. Þetta þarf auðvitað
að skoða en knattspyrnusambandið
er mjög íhaldsöm hreyfing og þar
af leiðandi ekki mikið fyrir breyt-
ingar,“ sagði Geir Þorsteinsson,
framkvæmdarstjóri KSÍ við
Fréttablaðið í gær.
„Það er auðvitað okkar ásetn-
ingur að reyna að halda úti átta
liða deild en við gerum okkur grein
fyrir því að það þarf að styrkja
grunninn í íslenskri kvennaknatt-
spyrnu. Grunnurinn hefur breikkað
en við horfum bjartir til framtíðar,“
sagði Geir.
Fimmtán erlendir leikmenn eru
skráðir á heimasíðu KSÍ í liðin átta
og hefur Geir áhyggjur af fjölgun
þeirra í deildinni. „Áhrifa erlendra
leikmanna er farið að gæta meira
en áður, líklega vegna þess að kröf-
urnar fara að aukast og lið vilja
styrkja sig sem mest. Erlendu
leikmennirnir eru fleiri en áður og
við hljótum að vilja byggja sem
mest upp á okkar eigin leikmönnum
og okkar uppeldisstarfi. Það er
einfaldasta og ódýrasta aðferðin
og að mínu mati er þetta ekki
jákvæð þróun,“ sagði Geir, en auk
þess hafa stóru félögin fengið til
sín alla bestu leikmenn minni
liðanna sem gera liðin ójafnari
fyrir vikið.
„Bestu liðin vilja að sjálfsögðu
fá bestu leikmennina til sín, auk
efnilegustu leikmannanna, það er
ákveðin þróun sem hefur átt sér
stað og hefur að manni finnst verið
of mikið um. Við viljum hafa
breiddina sem mesta og fá fleiri
góða leikmenn upp. Við erum að
vonast til þess að þessi mikla
aukning sem hefur verið í kvenna-
knattspyrnunni muni skila sér í
meiri breidd en því miður hefur
það verið þannig í kvennaknatt-
spyrnunni undanfarin ár að eitt til
tvö lið keppa um titilinn, það er
alltof lítið. Það er lítil breyting á
þessu,“ sagði Geir, sem finnst
skemmtanagildið þó ekki hafa
minnkað.
„Ég held að skemmtanagildið
hafi ekki minnkað. Flestir leik-
mannanna eru orðnir betri en
vissulega er skemmtanagildið
ekki mikið þegar svona mikill
getumunur er á liðum eins og
hefur sýnt sig í sumar. Flest liðin
eru betri en þau voru, það er klárt.
Þróunin er hæg og við verðum að
vera þolinmóð. KSÍ hefur sýnt það
í verki að við höfum brúað bilið á
milli karla og kvennaknatt-
spyrnunnar, til að mynda með því
að jafna verðlaunaféð. Við verðum
að sýna þolinmæði í þessu eins og
mörgu öðru,“ sagði Geir Þorsteins-
son. hjalti@frettabladid.is
Við þurfum að styrkja grunninn
Geir Þorsteinsson, framkvæmdarstjóri KSÍ, segir að grunninn í íslenskri kvennaknattspyrnu þurfi að
styrkja. Hann hefur áhyggjur af fjölda erlendra leikmanna í mjög ójafnri Landsbankadeild kvenna í ár.
LANDSBANKADEILD KVENNA Hefur ekki verið spennandi í sumar, en til marks um hversu
ójöfn hún er vann Valur slaginn gegn Breiðabliki í einvígi tveggja efstu liðanna, 4-1. Liðin í
neðri helmingi deildarinnar hafa ekki náð að skáka þeim sem ofar eru. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
FÓTBOLTI Kvennaliði FH hefur
gengið afleitlega í sumar og aðeins
skorað tvö mörk en fengið á sig
fimmtíu í sjö leikjum. Hrönn
Karólína Hallgrímsdóttir er fyrir-
liði FH, en hún er nítján ára gömul
og elsti leikmaður liðsins fyrir utan
tvær stúlkur frá Serbíu.
„Það minnkar sjálfstraustið að
tapa alltaf svona stórt en maður
reynir að peppa sig upp. Það er
vissulega erfitt að gera það en við
gerum hvað við getum og reynum
að þjappa hópnum saman með því
að hittast fyrir leiki og slíkt,“ sagði
Hrönn.
„Það verður að viðurkennast að
maður er orðinn leiður á því
hversu illa gengur en við vonumst
til að gera betur og við verðum
bara að rífa okkur upp. Markmið
okkar er að ná 7. sætinu og komast
í umspilið,“ sagði Hrönn. - hþh
Fyrirliði kvennaliðs FH:
Erum leiðar á
slæma genginu
HANDBOLTI Eins og Fréttablaðið
greindi frá í síðustu viku mun
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari,
taka við þýska úrvalsdeildarliðinu
Gummersbach strax í sumar, ári
fyrr en upphaflega var áætlað.
Alfreð tekur til starfa þann 12. júlí
næstkomandi og er samnings-
bundinn félaginu næstu fjögur
árin.
Fram kemur í tilkynningu frá
HSÍ í gær að samningur hafi tekist
milli sambandsins og félagsins um
að störf Alfreðs hjá sambandinu
hafi forgang þegar kemur að
þátttöku landsliðsins á HM í
Þýskalandi á næsta ári og í umspils-
leikjum fyrir EM 2008 sem fram
fara næsta vor.
Velimir Kljaic, núverandi
þjálfari Gummersbach, mun hafa
hætt af heilsufars- og fjölskyldu-
ástæðum. Undir hans stjórn vann
liðið sér þátttökurétt í Meistara-
deild Evrópu næstkomandi vetur.
Hjá liðinu leika Guðjón Valur
Sigurðsson og Róbert Gunnarsson,
auk þess sem Sverrir Björnsson
mun ganga til liðs við félagið í
sumar. - esá
ALFREÐ GÍSLASON Tekur við Gummersbach strax í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Alfreð Gíslason tekur við Gummersbach:
HSÍ hefur forgang á
Gummersbach
Ásta Árnadóttir, varnarmaður Vals,
var í gær útnefnd besti leikmaður
umferða 1-7 í Landsbankadeild kvenna
í knattspyrnu. Ásta
hefur bundið vörn
Valsstelpna frábærlega
saman, en liðið sópaði að
sér verðlaunum í gær. Elísabet
Gunnarsdóttir var valin besti þjálfarinn
og stuðningsmenn Vals fengu
stuðningsmannaverðlaunin.
„Ég get ekki sagt það að ég hafi
átt von á þessu en þetta kom
mér skemmtilega á óvart.
Ég veit ekki hvort það hafi
komið á óvart hversu mörg
verðlaun við fengum en ég
tel að við eigum þetta
allar skilið. Við erum í
skýjunum með gengi okkar í sumar
og vonandi náum við að halda þessu
áfram,“ sagði Ásta.
Þessi snjalli varnarmaður
hefur sínar eigin skoðanir
á deildinni í sumar,
sem hefur
verið
mikið í
umræð-
unni undan-
farið. „Maður
hélt að deildin
væri að jafnast út
eftir tímabilið
síðasta
sumar
en því
miður
hefur það ekki gerst. Deildin er mjög
ójöfn og það er ótrúlegur munur á
liðunum. Það hefur líka verið mjög
mikið af mörkum og þrátt fyrir að
markatala okkar sé varla eðlileg er alltaf
gaman að skora mikið af mörkum. En
það væri óskandi að þetta væri jafnara,“
sagði Ásta.
Lið umferðanna var svona skipað: Mark-
maður: Þóra B. Helgadóttir (Breiðablik),
Varnarmenn: Ásta Árnadóttir (Valur),
Málfríður Erna Sigurðardóttir (Val) og
Guðný B. Óðinsdóttir (Val). Miðjumenn:
Katrín Jónsdóttir (Val), Rakel Logadóttir
(Val), Hólmfríður Magnúsdóttir (KR) og
Vanja Stefanovic (Breiðablik). Framherjar:
(Nína Ósk Kristinsdóttir (Keflavík),
Margrét Lára Viðarsdóttir (Val) og Greta
Mjöll Samúelsdóttir (Breiðablik).
ÁSTA ÁRNADÓTTIR LEIKMAÐUR VALS: VALIN BEST Í UMFERÐUM 1-7 Í LANDSBANKADEILD KVENNA
Hef aldrei spilað betur en í sumar
���������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
������������������������������������������������������ �������������� ����������������������������������������������������������������������������
�������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
����������������������������������������������������������������������� �������������� �����������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������������
�� ������ ����������
������������� ������������
���������������������������������������������
���������� ���������
�������������������������������� ������������
������
�����������
���������������������������������������������
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
S
tæ
ð
il
e
g
u
r!
!!
> Roeder skoðar Keflvíkinga
Glenn Roeder, knattspyrnustjóri enska
úrvalsdeildarliðsins Newcastle, ætlar að
fylgjast með leik Keflavíkur og Lilleström
í 2. umferð Intertoto-keppninnar á
laugardag, en þá eigast liðin við í Noregi.
Eins og kunnugt er mun sigurvegarinn
úr einvíginu mæta Newcastle í næstu
umferð keppn-
innar og sagði
Roeder við opin-
bera heimasíðu
Newcastle að
liðið ætlaði sér að
vera vel undirbúið
fyrir leikina, hvort
sem þeir verða
gegn Keflavík eða
Lilleström. „Þessi
keppni er mjög
mikilvæg því hún
gefur okkur leið
inn í UEFA-keppn-
ina,“ segir Roeder.
Freyr hættur hjá Fram
Freyr Karlsson hefur fengið sig lausan
frá 1. deildarliði Fram en hann hefur
ekki átt fast sæti í liðinu það sem
af er tímabili. Freyr er uppalinn hjá
Fram og kom aftur til liðsins frá Þrótti
fyrir tímabilið en hann á fjölmarga
unglingalandsleiki að baki. Hann er
annar leikmaðurinn á nokkrum dögum
sem hættir hjá Fram en hinn er Andri
Fannar Ottósson.