Fréttablaðið - 29.06.2006, Qupperneq 80
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR56
FÓTBOLTI Dómararnir á heims-
meistaramótinu í knattspyrnu
hafa verið mikið í sviðsljósinu í
keppninni og í ár. Aldrei áður
hefur spjöldum verið jafn oft lyft
á loft og margir leikmenn, þjálfar-
ar og stuðningsmenn vilja meina
að dómgæslan hafi haft mikil áhrif
á framvindu og úrslit leikjanna.
Mörgum þótti steininn taka úr
þegar rússneski dómarinn Valent-
in Ivanov rak fjóra leikmenn Hol-
lands og Portúgals af velli í leik
liðanna í 16-liða úrslitum en hann
lyfti gula spjaldinu sextán sinnum
á loft í leiknum. En þegar dómarar
eiga líka góðan leik, eins og var til-
fellið í leik Spánar og Frakklands í
fyrrakvöld, finna menn mikið að
dómgæslunni.
„Seinna markið þeirra kom upp
úr aukaspyrnu sem var ranglega
dæmd á okkur,“ sagði Luis
Aragones, landsliðsþjálfari Spán-
verja. Ítalinn Roberto Rosetti
dæmdi aukaspyrnu á Carles Puyol
fyrir að brjóta á Thierry Henry
sem óneitanlega gerði heldur mikið
úr broti Puyol. „Ef eitthvað, var
þetta brot á Henry,“ sagði Puyol.
„Bakvörðurinn Perina var á
góðri leið með að ná boltanum.
Ekki veit ég af hverju Puyol var
að berjast um boltann. En hann
gerði það. Og ég svindla ekki,“
sagði Henry.
Þessi orðaskipti eru nokkuð
dæmigerð fyrir keppnina í heild
sinni. Hvert atvik er margskoðað
og rætt fram og til baka. Og oftast
eru það dómararnir, sem þurfa að
taka ákvörðun sína á sekúndubroti
og án endursýningar, sem fá að
kenna á barðinu.
Fjölmiðlar í Ghana voru til að
mynda ómyrkir í máli í garð dóm-
ara í leik sinna manna gegn Bras-
ilíumönnum í 16-liða úrslitum.
„Gana rænt á HM“ var dæmi um
eina fyrirsögnina og The Graphic,
stærsta blað landsins, sagði að
landsliðsmenn Ghana hefðu lokið
keppni með mikilli reisn og
stærsta myndin á forsíðu blaðsins
var af Lubos Michael, slóvakískum
dómara leiksins.
Margir hafa verið á þeirri
skoðun að dómgæslan ætti að
fylgja tækninni og dómarar ættu
að geta treyst á myndbandsupp-
tökur og fleira í þeim dúr á meðan
á leiknum sjálfum stendur. Vissu-
lega er það nýbreytni að dómarar
eru útbúnir samskiptabúnaði við
aðstoðardómara sína en Sepp
Blatter, forseti FIFA, er mótfall-
inn tækninýjungum í dómgæsl-
unni. „Mistök dómara eru hluti af
leiknum,“ sagði hann.
Greinilegt er að leikmenn eru
ekki meðvitaðir um þær áherslur
og línur sem dómurum voru lagðar
fyrir keppnina. Aldrei hafa fleiri
gul spjöld verið gefin en í Þýska-
landi í ár og hafa að meðaltali 5,5
áminningar verið gefnar í leikjun-
um 56 og 0,45 brottvísanir.
Enska landsliðið er vel meðvit-
að um þetta og hefur fengið tvo
fyrrverandi dómara til að halda
fyrirlestur fyrir leikmenn liðsins
og undirbúa þá fyrir leikinn gegn
Portúgal um helgina.
Fótboltinn ætti ef til vill að
fylgja dæmi handboltans og bjóða
upp á tvo dómara inn á vellinum.
En Markus Siegler, talsmaður
FIFA, sagði í vikunni að það væri
ekki vænlegt til árangurs. „Við
höfum reynt þetta fyrirkomulag í
ítölsku deildarkeppninni og bikar-
keppninni. Sú leiðer ekki sú rétta
fyrir knattspyrnudómgæsluna.“
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
VILL SANNGJARNA DÓMGÆSLU Stuðningsmaður Ghana var ekki sáttur við dómgæsluna í
leik liðsins gegn Brasilíu í vikunni. NORDIC PHOTOS/AFP
Dómgæslan í sviðsljósinu á HM
Dómarar hafa verið áberandi í umfjöllun um heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Aldrei áður hefur fleiri
gulum og rauðum spjöldum verið lyft á loft í einni og sömu keppninni og mörgum finnst að mistök dóm-
ara hafi verið of afdrifarík. Ekki er þó nein alvörulausn í sjónmáli eins og ástandið blasir við nú.
��������������
�����������������������������������
����������������������������������
��������
�������
�����
�����
������
����������������
�����
������
��������
�������
�������
�������
����
�����������������
�����������������
�������
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
�
��
�
Ítalía �
������� �
������� �
��������� �
���������� �
���� �
������� �
�������� �
������� �
����� �
�������� �
����� �
��������� �
������������ �
����������
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
� �
Heimild:KRT
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
� � �
���������� �
FÓTBOLTI Gianluca Pessotto, fyrr-
verandi leikmaður Juventus, er á
batavegi eftir að hafa fallið úr
glugga í höfuðstöðvum Juventus
í Tórínó á Ítalíu í fyrradag. Talið
er að fallið hafi verið um 15 metr-
ar og hlaut Pessotto fjölmörg
beinbrot og aðra innvortis áverka.
Allt bendir til þess að um sjálfs-
morðstilraun hafi verið að ræða
en eiginkona bakvarðarins fyrr-
verandi hefur staðfest að hann
hafi átt við alvarlegt þunglyndi
að stríða. Enginn sá atvikið en
Pessotto lenti á tveimur bifreið-
um áður en hann skall á stein-
steypta götuna.
Pessotto
lagði skóna á
hilluna fyrir
rúmu ári síðan
og tók við fram-
kvæmdastjóra-
stöðu hjá ítalska
stórveldinu,
sem hann hafði,
að sögn eigin-
konu hans, ekki verið að finna sig
nægilega vel í. Hann var þó ekki í
hópi þeirra sem grunaðir eru um
þátttöku í svindlinu sem æðstu
stjórnendur Juventus hafa verið
ákærðir fyrir og flestum ætti að
vera kunnugt um.
Leikmenn ítalska landsliðsins,
sem leikur gegn Úkraínu í 8-liða
úrslitum HM á morgun, eru harmi
slegnir yfir atvikinu og fengu
tveir þeirra, Allesandro del Piero
og Gianluca Zambrotta, fyrrum
samherjar hans hjá Juventus, að
heimsækja félaga sinn á spítalann
í Tórínó í gær.
„Ég er algjörlega miður mín.
Pessotto er einn viðkunnanlegasti
maður sem ég hef kynnst,“ sagði
Fabio Cannavaro, fyrirliði Ítalíu.
Læknar í Tórínó hafa staðfest að
Pessotto sé úr lífshættu en að hans
bíði löng og ströng endurhæfing.
- vig
Tveir leikmenn ítalska landsliðsins skruppu í dagsferð til Tórínó:
Pessotto kominn úr lífshættu
Á SLYSSTAÐ Hér sést hvar Gianluca Pessotto er talinn hafa stokkið út um glugga í aðalskrif-
stofum Juventus í þeim tilgangi að taka eigið líf. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GIANLUCA PESSOTTO
BEINT Í MARK Michael Ballack reyndi fyrir sér í bogalistinni ásamt öðrum þýskum landsliðsmönnum í Berlín í gærmorgun.
NORDIC PHOTOS/AFP
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
B
a
ð
le
g
u
r!
!!
FÓTBOLTI Enski dómarinn Graham
Poll og rússneski dómarinn
Valentin Ivanov eru meðal þeirra
fjórtán dómara sem hafa verið
sendir heim af heimsmeistaramót-
inu í Þýskalandi. Atvikið sem varð
til þess að Poll fékk ekki að halda
áfram varð í leik Ástralíu og Króa-
tíu í riðlakeppninni þegar hann
gaf Josip Simunic þrisvar sinnum
gula spjaldið. Fyrir mótið var
hann talinn meðal þeirra dómara
sem líklegastir væru til að dæma
úrslitaleikinn.
Ivanov setti nýtt met á HM
þegar hann gaf gula spjaldið sex-
tán sinnum og rauða spjaldið fjór-
um sinnum í leik Portúgals og Hol-
lands. Hann er einn reyndasti
dómarinn á mótinu en eftir
frammistöðu sína í áðurnefndum
leik lét Sepp Blatter, forseti FIFA,
hafa það eftir sér að réttast væri
að spjalda hann sjálfan. Þess má
geta að það verður Argentínumað-
urinn Horacio Elizondo sem mun
dæma viðureign Englands og
Portúgals á laugardag. - egm
Dómgæslan í Þýskalandi:
Poll og Ivanov
sendir heim
FARINN HEIM Poll mun ekki dæma meira á
HM. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Sven-Göran Eriksson,
landsliðsþjálfari Englands, segir
að hægri bakvörðurinn Gary
Neville verði orðinn leikfær til að
mæta Portúgal í átta liða úrslitum
heimsmeistarakeppninnar á laug-
ardag. Neville er einn reynslu-
mesti leikmaðurinn í enska hópn-
um en hann hefur ekki getað spilað
með Englandi í þremur síðustu
leikjum vegna meiðsla.
„Hann var með á miðvikudags-
æfingunni og allt var í sómanum.
Hann fann ekkert fyrir meiðslum
eftir æfingu og ég reikna því með
að hann spili á laugardag. Það
verður frábært að fá hann aftur
og reynsla hans gæti orðið okkur
mikilvæg,“ sagði Eriksson en
Owen Hargreaves og Jamie
Carragher hafa verið að spila
hægri bakvörðinn síðustu leiki.
- egm
Enska landsliðið á HM:
Neville með á
laugardaginn
REYNSLUMIKILL Eriksson er ánægður með
að fá Neville aftur. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Portúgalski leikmaðurinn
Pauleta segir að markvörðurinn
Paul Robinson sé veikasti hlekkur
enska landsliðsins. Portúgal og
England munu einmitt mætast í
átta liða úrslitum heimsmeistara-
mótsins á laugardag. „Ég var að
skoða leik enska liðsins við
Ekvador og mér fannst Robinson
virka mjög ósannfærandi þegar
boltinn kom inn í teiginn. Ég tel
hann vera veikasta hlekk Eng-
lands,“ sagði Pauleta en Robinson
spilar með Tottenham.
„Það er þægilegt að í portú-
galska hópnum erum við með leik-
menn sem hafa spilað í ensku
úrvalsdeildinni og geta gefið
okkur upp veikleika enska liðsins.
Ég hef þó kynnt mér vörn þeirra
vel og tel mig hafa það á hreinu
hverjir veikleikarnir þar eru,“
sagði Pauleta sem hefur ekki
verið upp á sitt besta það sem af
er á HM í Þýskalandi. - egm
Pauleta með allt á hreinu:
Robinson er
veikur hlekkur
FÓTBOLTI Portsmouth ætlar sér
stóra hluti á næsta tímabili og
hefur liðið náð samkomulagi við
Englandsmeistara Chelsea um að
fá enska bakvörðinn Glen Johnson
lánaðan í eitt ár. Johnson var fyrsti
leikmaðurinn sem var keyptur til
Chelsea eftir að Roman Abramo-
vich eignaðist félagið en hann var
keypur á sex milljónir punda frá
West Ham 2003.
Johnson vonast til að vinna sér
inn sæti í enska landsliðinu með
því að fá að spila reglulega en
Harry Redknapp hefur mikið álit
á honum sem leikmanni. Þess má
geta að gamli varnarjaxlinn Tony
Adams hefur verið kynntur sem
nýr aðstoðarmaður hjá Harry
Redknapp. Adams er fyrrverandi
leikmaður Arsenal en hann er 39
ára og var við stjórnvölinn hjá
Wycombe Wanderers.
- egm
Bakvörðurinn Glen Johnson:
Lánaður til
Portsmouth