Fréttablaðið - 29.06.2006, Side 82
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR58
2-0
Kaplakrikav. Áhorf: 1327 Garðar Örn Hinrikss. (4)
FH Grindavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 17–4 (8–2)
Varin skot Daði 2 – Stewart 6
Horn 5–9
Aukaspyrnur fengnar 17–14
Rangstöður 2–1
GRINDAVÍK 4–4–2
Colin Stewart. 4
Michael Jónsson 8
Eysteinn Húni 5
Óðinn Árnason 7
Ray Jónsson 7
Paul McShane 3
Óli Stefán 6
(54. Eyþór Atli 4)
Jóhann Helgas. 6
Óskar Örn 4
(76. Andri Steinn -)
Jóhann Þórhallss. 4
Noumir Ahandour 4
(88. Jósef Kristinn -)
*Maður leiksins
FH 4–3–3
Daði Lár. 6
Hermann Albertss. 6
Tommy Nielsen 8
Ármann Smári 7
Guðmundur. 8
Baldur Bett. 7
Ásgeir Ásgeirss. 8
*Davíð Þór. 9
(88. A. Dyrring -)
Tryggvi Guðm. 8
Ólafur Páll 4
(22. Matthías 3)
Atli Viðar 3
(45. Atli Guðnason 6)
1-4
Akranesvöllur. Áhorf: 1072 Ólafur Ragnarsson (6)
ÍA Víkingur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–10 (2–8)
Varin skot Bjarki 4 – Ingvar 1
Horn 7–2
Aukaspyrnur fengnar 16–18
Rangstöður 2–1
VÍKINGUR 4–3–3
Ingvar Kale 7
Hörður Bjarnas. 7
Grétar Sigfinnur 7
*Milos Glogovac 7
Höskuldur 7
Jökull Elísabetars. 7
Jón Guðbrandss. 6
Valur Úlfarss. 5
(59. Stefán Kári 7)
Viktor Bjarki 6
Davíð Þór 5
(67. Daníel Hjaltas. 7)
Arnar Jón 7
(85. Halldór Jón -)
*Maður leiksins
ÍA 4–5–1
Bjarki Guðmunds. 5
Guðm. Böðvar 5
Árni Thor 6
Heimir Einarss. 5
Pálmi Haraldss. 5
Guðjón Heiðar 5
(71. Hafþór Ægir -)
Jón Vilhelm 5
Bjarni Guðjónss. 5
(78. Bjarki Gunnl. -)
Igor Pesic 6
Þórður Guðjóns. 4
Hjörtur Hjartars. 5
(71. Andri Júlíuss. -)
5-0
Keflavíkurvöllur. Áhorf: 625 Eysteinn Kristinsson (8)
Keflavík Breiðablik
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 14–16 (8–1)
Varin skot Ómar 1 – Hjörvar 2
Horn 7–7
Aukaspyrnur fengnar 11–10
Rangstöður 1–5
BREIÐABL. 4–5–1
Hjörvar Hafliða. 3
Stig Haaland 4
Kári Ársælsson 3
Srdjan Gasic 5
Árni Kristinn 2
(53. Arnór Sveinn 4)
Steinþór Freyr 4
N. Zivanovic 5
(59. Viktor Unnar 5)
Olgeir Sigurgeirss. 4
Petr Podzemsky 4
Magnús Páll 4
(81. Gunnar Örn -)
Marel Baldvinss. 5
*Maður leiksins
KEFLAVÍK 4–3–3
Ómar Jóhanness. 6
K. Gustafsson 7
Guðmundur Mete 7
Baldur Sig. 8
Guðjón Árni 6
Hólmar Örn 6
(77. Ragnar M. -)
Jónas Guðni 7
Guðm. Steinarss. 7
*S. Samuelsson 9
Hallgrímur Jónass. 7
(80. Einar Orri -)
Stefán Örn 8
(68. Magnús S. 5)
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
26 27 28 29 30 31 1
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
20.00 KR og Valur mætast í
Landsbankadeild karla í fótbolta í
Vesturbænum.
■ ■ SJÓNVARP
18.30 US PGA á Sýn.
19.45 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik KR og Vals.
22.00 Kraftasport á Sýn.
FÓTBOLTI Ítalía komst í átta liða
úrslit heimsmeistaramótsins með
umdeildum vítaspyrnudómi í við-
bótartíma. Lucas Neill var dæmd-
ur brotlegur þegar Fabio Grosso
féll innan teigs. Nú hefur komið í
ljós að einn taílenskur knatt-
spyrnuáhugamaður var myrtur í
heimalandi sínu vegna vítaspyrnu-
dómsins.
Francesco Totti fór á punktinn
og skaut ítalska liðinu áfram í
keppninni og í kjölfarið kom upp
mikið rifrildi milli tveggja manna
í Taílandi um hvort dómurinn hafi
verið réttur eða ekki. Það rifrildi
endaði með því að annar þeirra
stakk hinn með þeim afleiðingum
að hann lét lífið. Sá sem dó var 45
ára karlmaður, Rebieb Lukchan að
nafni. - egm
Skelfilegt atvik í Taílandi:
Drepinn vegna
vítaspyrnu
FÓTBOLTI Dóra Stefánsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu og leikmaður
hjá sænska félagsliðinu Malmö
FF, verður frá æfingum og keppni
í um þrjá mánuði en heimasíða
félagsins greinir frá þessu. Þetta
er gríðarlegt áfall fyrir íslenska
kvennalandsliðið, en ljóst er að
Dóra verður ekki með í þremur
síðustu landsleikjum Íslands í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins.
Dóra tvíbrotnaði á handlegg á
æfingu hjá Malmö í byrjun
vikunnar, en hún á sextán lands-
leiki að baki fyrir Ísland sam-
kvæmt vefsíðu KSÍ og eitt lands-
liðsmark. Hún er á 21. aldursári
og gerði eins árs samning við
Malmö í byrjun árs. Þangað kom
hún frá liði Vals, þar sem hún
spilaði alla fjórtán leiki liðsins í
Landsbankadeild kvenna í fyrra.
Alls á hún 64 leiki að baki í efstu
deild og 22 mörk.
Með Malmö leikur einnig Ást-
hildur Helgadóttir, fyrirliði
íslenska landsliðsins. Ísland hefur
leikið fimm leiki í undankeppni
HM, unnið þrjá og gert eitt jafn-
tefli. Liðið er í öðru til þriðja sæti
riðilsins með tíu stig líkt og Tékk-
land en báðar þjóðir eiga leik inni
á Svíþjóð sem er á toppi riðilsins
með sextán stig. Dóra missir af
mikilvægum leikjum Íslands gegn
Tékklandi og Svíþjóð á Laugar-
dalsvellinum seint í ágúst og
einnig af lokaleiknum úti gegn
Portúgal í lok september. - egm
Íslenska kvennalandsliðið verður án Dóru Stefánsdóttur í þremur næstu leikjum:
Dóra ekki með á lokasprettinum
TVÍBROTIN Dóra Stefánsdóttir meiddist á
æfingu með Malmö.
FÓTBOLTI Freyr Bjarnason, vinstri
bakvörðurinn í liði Íslandsmeist-
ara FH, meiddist á æfingu hjá
liðinu á dögunum. Freyr er togn-
aður á liðböndum í hné og verður
frá í að minnsta kosti sex vikur.
Hann hefur leikið vel í liði FH á
tímabilinu, spilað alla leiki liðsins
og skorað eitt mark en það kom
gegn Val á Laugardalsvellinum í 2.
umferð.
FH-ingar hafa misst marga
menn í meiðsli á tímabilinu og sér-
staklega hefur ástandið verið
slæmt í vörn liðsins. Miðverðirnir
Auðun Helgason og Sverrir
Garðarsson hafa ekkert leikið á
tímabilinu og hinn danski Tommy
Nielsen hefur ekki getað leikið
síðustu leiki. Þá hefur landi hans
Peter Matzen enn ekkert leikið frá
því að hann kom til liðsins vegna
meiðsla. - egm
Meiðsli hjá varnarmanni FH:
Freyr frá í um
sex vikur
MEIDDUR Freyr er enn einn varnarmanna
FH sem fer á meiðslalistann.
1-0 Tryggvi Guðmundsson (73.)
2-0 Ásgeir Ásgeirsson (86.)
0-1 Jökull Elísabetarson (11.)
1-1 Jón Vilhelm Ákason (38.)
1-2 Arnar Jón Sigurgeirsson (68.)
1-3 Stefán Kári Sveinbjörnsson (75.)
1-4 Daníel Hjaltason (92.)
1-0 Stefán Örn Arnarson (16.)
2-0 Baldur Sigurðsson (20.)
3-0 Stefán Örn Arnarson (45.)
4-0 Baldur Sigurðsson (53.)
5-0 Simun Samuelsen (72.)
FÓTBOLTI Leikur liðanna á síðustu
leiktíð í Kaplakrika endaði 8-0
fyrir FH og leikmenn Grindavíkur
voru þess eflaust minnugir enda
fimm sem voru í byrjunarliðinu í
leiknum fræga í fyrra. Leikurinn
fór mjög fjörlega af stað. FH fékk
tvö gullin færi strax á fyrstu sex
mínútunum og meistararnir voru
klaufar að taka ekki forystuna.
Taugaóstyrkir Grindvíkingar
fengu síðan fínt færi á 8. mínútu
en FH slapp með skrekkinn. Mjög
lífleg byrjun og ein sú skemmti-
legasta í sumar.
Leikurinn róaðist nokkuð í kjöl-
farið. FH-ingar tóku völdin í sínar
hendur en Grindavík lá til baka og
freistaði þess að sækja hratt með
hina eldfljótu Ahandour og Jóhann
Þórhallsson í fremstu víglínu.
Reyndar var sóknarleikur
Grindavíkur steingeldur og sá
hugmyndasnauðasti sem undirrit-
aður hefur séð í sumar. Varnar- og
miðjumenn Grindavíkur negldu
boltanum við hvert tækifæri eins
lagt fram og þeir gátu á framherj-
ana, en Tommy og Ármann sáu
ávallt við þeim. Þeir gerðu ekkert
annað og vakti athygli að þeir
skildu ekki taka Hermann Alberts-
son til kastanna, sem var óvænt að
spila í bakvarðarstöðu og hefði
ekki verið vitlaust að prófa hvernig
hann stæðist pressuna, en því var
ekki að skipta. Notts County
spilaði örugglega ferskari sóknar-
bolta í vetur.
FH-ingar gerðu sitt besta til að
spila fótbolta og þar fór fremstur
Davíð Þór sem dreifði boltanum
laglega út á báða kanta en taktar
hans minntu um margt á Heimi
Guðjónsson þegar hann var upp á
sitt besta í Krikanum. Framherj-
arnir voru ekki eins sprækir og
því var markalaust í leikhléi í
ágætis leik.
Síðari hálfleikur fór mjög
rólega af stað og ef ekki hefði
verið fyrir Davíð Þór og Guðmund
Sævarsson væri enginn leikmaður
á vellinum að reyna að spila bolt-
anum almennilega. Það var sama
getu- og hugmyndaleysið í sókn-
inni hjá Grindavík og slagkraftinn
vantaði í sóknirnar hjá FH.
Það var síðan rúmt korter eftir
af leiknum þegar Tryggvi skoraði
fyrir FH. Hann hirti upp frákast
eftir skalla Ármanns sem Stewart
hélt ekki og skoraði auðveldlega.
Fyllilega verðskulduð forysta hjá
FH. Áður en yfir lauk bætti Ásgeir
við marki með skalla eftir send-
ingu frá Tryggva.
FH-liðið er búið að stinga af í
deildinni en er samt loksins núna
byrjað að spila almennilegan fót-
bolta, en leikurinn í gær var sá
albesti sem undirritaður hefur séð
hjá liðinu í sumar. Boltinn flaut vel
með jörðinni í fáum snertingum og
Davíð Þór var þar potturinn og
pannan, en hann átti sannkallaðan
stórleik. „Ég fann mig mjög vel, ég
get ekki neitað því. Minn besti leikur
og að mínu mati okkar besti leikur,“
sagði Davíð Þór kátur eftir leikinn.
„Það er styrkleikamerki að vera
komnir með svo gott forskot en
hafa samt ekki spilað svona vel í
allt sumar. Ef við höldum svona
áfram er dollan okkar.“
Grindavíkurliðið var arfaslakt
og það er óskiljanlegt hvernig
þetta lið gat skorað fimm mörk
gegn KR. Þeir geta klárlega miklu
mun betur og vita það eflaust
manna best sjálfir.
henry@frettabladid.is
FH byrjað að spila almennilega
FH vann sanngjarnan og öruggan sigur á Grindavík í gær, 2-0. FH-liðið spilaði loksins eins vel og allir vita
að liðið getur spilað. Liðið er með níu stiga forystu á toppnum og bendir fátt til þess að liðið verði stöðvað.
FÓTBOLTI Leikurinn byrjaði mjög
rólega en það tók Keflvíkinga
ekki nema tvær mínútur að glæða
leikinn lífi.
Á 16. mínútu skoraði Stefán
Örn Arnarson gott mark af fjær
stönginni þegar hann setti fyrir-
gjöf færeyingsins magnaða,
Simun Samuelsen, inn. Aðeins
fjórum mínútum síðar kom Simun
aftur við sögu þegar hann sendi
fyrir frá vinstri og Baldur
Sigurðsson setti boltann snyrti-
lega í slána og inn. Hjörvar
Hafliðason markmaður vissi varla
hvaðan á sig stóð veðrið enda
Blikar skyndilega lentir 2-0 undir,
eftir að hafa verið síst lakara liðið
fram af leik.
Eftir markið héldu bæði lið
áfram að sækja og Blikar gerðu
hvað þeir gátu til að minnka mun-
inn. Þeir voru aldrei nálægt því í
fyrri hálfleiknum, en áður en
honum lauk voru Keflvíkingar
komnir í 3-0. Enn og aftur var
Simun að verki þegar hann sendi
fyir, Guðmundur Steinarsson
skallaði í stöngina en Stefán Örn
var fyrstur að átta sig og skoraði
sitt þriðja mark í leiknum.
Keflvíkingar héldu áfram að
raða inn mörkunum í síðari hálf-
leik og á 53. mínútu skoraði Baldur
aftur þegar hann stýrði skoti
Hólmars Arnar Rúnarsonar í
markið. Keflvíkingar nýttu færin
sín einkar vel í leiknum, en það
var á 72. mínútu að Simun Samu-
elsen kórónaði stórleik sinn.
Simun lagði boltann þá snyrti-
lega í netið eftir frábæra sókn
sem endaði með því að Jónas
Guðni lagði boltann á Færeying-
inn sem gerði engin mistök, en
hann lagði upp þrjú mörk og olli
miklum usla í sókn heimamanna.
5-0 sigur Keflvíkinga var þar með
staðreynd og verða Blikar að
hugsa sinn gang þar sem baráttu-
leysi einkenndi dapurt liðið í gær.
„Það gekk nánast allt upp í dag.
Vörnin hélt mjög vel og við náðum
að nýta færin okkar vel. Þetta var
mjög góður sigur og nauðsynlegur
upp á sjálfstraustið, eftir að hafa
farið illa út úr síðustu leikjum.
Við ætlum að halda áfram en
hugsum næst um Lilleström í
Noregi áður en við leiðum hugann
að næsta deildarleik,“ sagði Simun
við Fréttablaðið eftir leikinn, á
einkar góðri íslensku en hann var
hógværðin uppmáluð.
„Ég náði að spila ágætlega og
er sáttur með það, það er alltaf
gaman að skora,“ sagði skælbros-
andi Simun, sem átti von á erfið-
ari leik.
„Ég bjóst við þeim miklu erfið-
ari eftir að þeir unnu síðasta leik,
en það vantaði mikið upp á barátt-
una og því fór sem fór,“ sagði
Simun, hverju orði sannara.
- hþh
Blikar biðu afhroð í heimsókn sinni til Keflavíkur í gærkvöldi:
Keflvíkingar í stuði og skoruðu
fimm á arfaslaka Blika
BALDUR SIGURÐSSON Átti mjög góðan leik
í vörninni í gær og skoraði auk þess tvö
mörk. MYND/VÍKURFRÉTTIR
MARKAHRÓKUR Tryggvi Guðmundsson var eini sóknarmaðurinn hjá FH sem spilaði af
eðlilegri getu í gærkvöldi. Það var vel við hæfi að hann bryti ísinn þegar langt var liðið á
leikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR