Fréttablaðið - 29.06.2006, Síða 83
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006 59
1-1
Fylkisvöllur. Áhorf: 820 Kristinn Jakobsson (7)
Fylkir ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–6 (3–2)
Varin skot Fjalar 1 – Hrafn 2
Horn 6–4
Aukaspyrnur fengnar 16–9
Rangstöður 4–1
ÍBV 4–4–2
Hrafn Davíðs. 6
Matt Garner 7
Páll Hjarðar 7
C. Vorenkamp 6
*Joanh Long 8
Atli Jóhannsson 7
A. Mwesigwa 5
Thomas Lundbye 7
Bjarni Geir 5
(75. Bjarni Hólm -)
Pétur Runólfsson 6
(75. Ingi Rafn -)
Ulrik Drost 4
(84. Sævar Eyjólfss. -)
*Maður leiksins
FYLKIR 4–3–3
Fjalar Þorgeirss. 6
Þórir Hannesson 7
Guðni Rúnar 8
Ragnar Sigurðss. 6
Arnar Þór 6
Páll Einarsson 6
Peter Gravesen 7
Jón Björgvin 5
Eyjólfur Héðinss. 6
(62. Haukur Ingi 5)
Sævar Þór 6
(84. Albert Ingason -)
Björn Viðar 5
(72. C. Christiansen -)
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI:
1. FH 9 7 2 0 17-5 23
2. VÍKINGUR 9 4 2 3 13-8 14
3. GRINDAVÍK 9 3 4 2 14-10 13
4. FYLKIR 9 4 1 4 12-12 13
5. KR 8 4 0 4 7-16 12
6. KEFLAVÍK 9 3 2 4 14-9 11
7. VALUR 8 3 2 3 11-10 11
8. ÍBV 9 3 2 4 9-14 11
9. BREIÐABLIK 9 3 1 5 16-22 10
10. ÍA 9 2 0 7 10-17 6
1. deild karla:
FJÖLNIR-FRAM 0-1
ÞRÓTTUR-LEIKNIR 1-0
Sænski bikarinn:
DJURGARDEN-GAIS 2-0
Kári Árnason sat á bekknum hjá Djurgarden en
Helgi Valur Daníelsson lék ekki með GAIS.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
1-0 Guðni Rúnar Helgason (16.)
1-1 Thomas Lundbye (55.)
FÓTBOLTI Stuðningsmenn enska
landsliðsins í knattspyrnu eru á
góðri leið með að klára bjórinn
sem til er í Þýskalandi en nokkrar
bruggverksmiðjur þar í landi hafa
sent frá sér tilkynningu þar sem
varað er við því að birgðir þeirra
svari ekki eftirspurn. Það var
enska slúðurblaðið The Sun sem
greindi frá þessu í gær.
Enska landsliðinu hefur vegnað
vel það sem af er á HM og er
komið áfram í 8-liða úrslit. Talið
er að á milli fjörutíu og fimmtíu
þúsund stuðningsmenn liðsins séu
staddir í Þýskalandi, fyrir utan
þann fjölda sem mætir á leiki Eng-
lands hverju sinni. The Sun grein-
ir frá því að að ensku stuðnings-
mennirnir hafi drukkið 600 þúsund
lítra af bjór á meðan leikur
Englendinga og Trínidad stóð yfir.
Kráareigendur í Köln voru
einnig himinlifandi með drykkjar-
söluna á meðan leik Englendinga
og Svía í riðlakeppninni stóð yfir
en þá seldist bjórinn upp á
nokkrum stöðum borgarinnar. - vig
Ensku stuðningsmennirnir:
Eru að klára
bjórinn á HM
ENSKIR STUÐNINGSMENN Komast ekki af í
hitanum í Þýskalandi án þess að hafa bjór
við höndina. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Botnlið Skagamanna
virðist algerlega heillum horfið,
nú síðast eftir erfitt 4-1 tap fyrir
Skagamönnum á Akranesvelli.
Liðið er ennþá langneðst og
aðeins með sex stig, en Breiða-
blik hefur fjórum stigum meira.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en eftir því sem
leið á þann síðari fundu Víkingar
glufur á vörn ÍA og skoruðu þrjú
lagleg mörk. Skagamenn byrj-
uðu betur og því kom það nokkuð
á óvart að Víkingar skyldu kom-
ast yfir. Markið var ef til vill
lýsandi fyrir Skagamenn í sumar,
sæmilega hættulaust skot Jökuls
Elísabetarsonar hafnaði í mark-
inu, en líklega hefur Bjarki
Freyr markvörður einfaldlega
séð boltann of seint.
En Skagamenn létu ekki slá
sig út af laginu og héldu áfram
að spila sína knattspyrnu. Bæði
lið sóttu á víxl og eftir nokkrar
ágætar sóknir heimamanna varð
loksins úr mark er Ingvari Kale
tókst ekki að halda fastri fyrir-
gjöf Hjartar Hjartarsonar.
Í síðari hálfleik var áfram
nokkuð jafnræði með liðunum
en gestunum óx ásmegin eftir
því sem á leið. Léttleikandi miðju
Víkinga tókst í tvígang að finna
glufur á vörn ÍA og nýttu sér það
vel. Í fyrra skiptið eftir fyrir-
gjöf Harðar Bjarnasonar á Arnar
Sigurgeirsson sem fór illa með
varnarmenn ÍA og skoraði lag-
legt mark. Svo komst varamað-
urinn Stefán Kári Sveinbjörns-
son einn inn fyrir varnarmúr
heimamanna og skoraði örugg-
lega.
Það var svo í blálokin sem
Daníel Hjaltason, annar vara-
maður, gulltryggði sigurinn.
Skagamenn léku góða knatt-
spyrnu framan af leik en eftir að
þeir lentu undir í síðara skiptið
varð leikur þeirra handahófs-
kenndur og örvæntingarfullur.
Það skal þó tekið fram að vörn
Víkinga var gífurlega sterk.
Sóknarleikur liðsins var einnig
öflugur og er greinilegt að Magn-
ús Gylfason hefur stillt upp vel
samhæfðu og léttleikandi liði.
„Ég er vitanlega mjög ósáttur
við spilamennsku okkar í síðari
hálfleik og á ekki orð yfir hvað
við vorum að gera inni á vellin-
um,“ sagði Ólafur Þórðarson
þjálfari ÍA eftir leik.
„Við erum ekki að berjast sem
liðsheild og það er eins og það
vanti gleði og viljann til að ná
lengra en við erum komnir,“
sagði Ólafur og bætti við að hann
lætur engan bilbug á sér finna
þrátt fyrir slakt gengi. „Ég fer
þá bara niður með liðinu ef þörf
þykir.“
eirikurst@frettabladid.is
Ólafur Þórðarson eftir tap gegn Víkingum í gær:
Fer þá bara niður með
liðinu ef þörf þykir
ÓLAFUR ÞÓRÐARSON Ætlar ekki að gefast
upp og er reiðubúinn að fara niður með
liðinu.
FÓTBOLTI Það var lítið um falleg til-
þrif í Árbænum í gær þegar Fylk-
ismenn tóku á móti Eyjamönnum
en frekar var það baráttan sem
var allsráðandi. Fylkismenn byrj-
uðu leikinn af meiri krafti og vildu
fá vítaspyrnu á sjöundu mínútu
en Kristinn Jakobsson, góður dóm-
ari leiksins, spjaldaði Eyjólf Héð-
insson fyrir leikaraskap.
Eyjólfur hélt áfram að láta að
sér kveða og skallaði rétt yfir eftir
fyrirgjöf frá Sævari Þór Gíslasyni
skömmu síðar. Það var síðan á sex-
tándu mínútu sem varnarjaxlinn
Guðni Rúnar Helgason kom Fylki
yfir með góðum skalla eftir auka-
spyrnu frá Peter Gravesen.
Eftir þetta mark slökuðu heima-
menn heldur mikið á en það kom
ekki að sök, ÍBV sótti á fáum
mönnum og gekk erfiðlega að
ógna marki Fylkis.
Eyjamenn komu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og voru bar-
áttuglaðir. Það skilaði sér í marki
á 55. mínútu en þá skoraði Thomas
Lundbye stórglæsilegt mark. Allt
annað var að sjá til Eyjaliðsins á
þessum kafla og hefðu þeir með
heppni getað stolið stigunum
þremur.
Fylkismenn voru hins vegar
meira með boltann og voru á köfl-
um skuggalega nálægt því að læða
inn marki, Guðni Rúnar átti m.a.
hörkuskot sem Hrafn Davíðsson
rétt náði að verja. Undir blálokin
áttu þeir harða sókn en allt kom
fyrir ekki og úrslitin jafntefli 1-1.
„Við komum ákveðnir til leiks
og náðum marki en svo datt þetta
niður. Það þarf að koma boltanum
í markið til að ná að skora og því
náðum við ekki þrátt fyrir að hafa
verið grátlega nálægt því. Við
misstum aðeins stjórnina á leikn-
um og einbeitingin var ekki lagi,“
sagði Leifur Garðarsson, þjálfari
Fylkis, í leikslok en hann var ekki
sáttur við að ná ekki að landa
sigri.
Guðlaugur Baldursson, þjálfari
ÍBV, var léttari. „Ég er nokkuð
sáttur en við ætluðum okkur þrjú
stig. Við vorum fremur slakir í
fyrri hálfleik en áttum síðan góðan
seinni hálfleik. Við vorum að spila
gegn góðum og sterkum mótherj-
um og það á útivelli. Fylkismenn
fengu góðan tíma til að spila bolt-
anum í fyrri hálfleik og þá er
virkilega erfitt að eiga við þá. Svo
kom baráttan í síðari hálfleik og
leikmenn fóru að spila eftir því
sem upp var lagt, vorum mun nær
mönnum og náðum því stiginu,“
sagði Guðlaugur. - egm
Eyjamenn börðust fyrir stigi
Fylkir og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í Árbænum í gær. Heimamenn byrjuðu leikinn
betur, en gestirnir komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og unnu sér inn stig.
Í BARÁTTU UM BOLTANN Fylkismaðurinn Peter Gravesen stendur hér í ströngu þegar Eyja-
mennirnir Jonah Long og Bjarni Geir Viðarsson reyna að hafa af honum boltann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÖRNURNAR HORFA Á Eiður Smári
Guðjohnsen, Birkir Kristinsson og Hermann
Hreiðarsson voru á meðal áhorfenda á
Fylkisvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM