Fréttablaðið - 12.07.2006, Qupperneq 8
8 12. júlí 2006 MIÐVIKUDAGUR
Á blaðsíðu 12 í Fréttablaðinu á mánu-
daginn birtist mynd af sólarsinnum
með sólskinskort fyrir utan Veðurstofu
Íslands. Kom þar fram að Hlynur Sig-
tryggsson, þáverandi veðurstofustjóri,
hefði veitt kortinu viðtöku. Hið rétta er
að Flosi Hrafn Sigurðsson, deildarstjóri á
Veðurstofunni, tók við kortinu.
LEIÐRÉTTING
Inlausn hlutafjár í Kögun hf.
Hinn 18. apríl 2006 gerði Skoðun ehf., sem er 100% í eigu Dagsbrúnar hf., öllum
öðrum hluthöfum í Kögun hf. yfi rtökutilboð. Meirihluti hluthafa samþykkti tilboðið
og á Skoðun ehf. nú rúm 99% alls hlutafjár í Kögun hf.
Skoðun ehf. hefur, í samráði við stjórn Kögunar hf., ákveðið að krefjast innlausnar þeirra
hluta sem útistandandi eru og framsals þeirra innan fjögurra vikna.
Tilgreint innlausnarverð er í samræmi við ofangreint yfi rtökutilboð eða 75,0 kr. fyrir hverja
krónu nafnverðs í Kögun hf., sbr. 1. mgr. 47. gr. laga um verðbréfaviðskipti.
Séu hlutir ekki framseldir innan fjögurra vikna mun Skoðun ehf. greiða andvirði hlutanna
inn á geymslureikning á nafni viðkomandi hluthafa. Frá þeim tíma telst Skoðun ehf.
réttur eigandi hlutanna og hlutabréf fyrrum hluthafa ógild, sbr. 2. mgr. 47. gr. laga um
verðbréfaviðskipti.
Öllum hluthöfum verður sent framsalseyðublað til útfyllingar og undirritunar.
Greiðsla reiðufjár á bankareikning þann er hluthafi tilgreinir fer fram í kjölfar þess að
framsalseyðublað berst Straumi - Burðarási Fjárfestingabanka hf., b.t. Önnu Bjargar Krist-
insdóttur, Borgartúni 25 (7. hæð), 105 Reykjavík, að því gefnu að framsalinu hafi verið
skilað inn undirrituðu, vottuðu og að upplýsingar sem fram koma séu réttar og fullnægj-
andi.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Tíu sóttu um
stöðu bæjarstjóra í Fjallabyggð
sem varð til við sameiningu Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar.
Umsækjendur eru Arinbjörn
Kúld stjórnunarfræðingur, Guð-
mundur Rúnar Svavarsson fram-
kvæmdastjóri, Jón Hrói Finnsson
viðskiptaráðgjafi, Jón Ingi Sig-
valdason ráðgjafi, Ólafur Jakobs-
son tæknifræðingur, Róbert T.
Árnason ráðgjafi, Róbert Örvar
Ferdinandsson kennari, Runólfur
Birgisson bæjarstjóri, Þórir
Hákonarson skrifstofustjóri og
Þórir Kr. Þórisson deildarstjóri.
Þorsteinn Ásgeirsson, forseti
bæjarstjórnar, gegnir starfi bæj-
arstjóra þar til ráðið verður. - öhö
Bæjarstjóri í Fjallabyggð:
Tíu vilja starf
bæjarstjóra
Dæmd fyrir lygar Sænsk kona var
dæmd í átta mánaða fangelsi fyrir að
ljúga því að yfirvöldum að fyrrverandi
kærasti sinn hefði nauðgað sér. Konan
kærði manninn fimm sinnum eftir að
þau hættu saman og var maðurinn
tvisvar handtekinn vegna málsins.
SVÍÞJÓÐ
LÓÐAMÁL Hæstbjóðendur í fjórar
parhúsalóðir og fimm einbýlis-
húsalóðir í Úlfarsfelli hafa fallið
frá kaupunum. Reykjavíkurborg
bauð lóðirnar út og námu allra
hæstu tilboðin í þær allt að 21
milljón í einbýlin og 23 milljónum
í parhúsalóðirnar.
Systir byggingarverktakans
Benedikts Jósepssonar var ein af
þeim sem hætti við kaupin. Hann
bauð í upphafi hæst í allar einbýlis-
húsalóðirnar utan eina.
„Ég keypti lóðina sem ég mátti
fá, en systur minni fannst lóðin
hafa gengisfallið. Sérstaklega
þegar dró nær kosningum þá var
farið að láta liggja að því að úthluta
ætti lóðum á kostnaðarverði sem
er þá hentugra fyrir einstaklinga,“
segir Benedikt. Sjálfur ætlar hann
að byggja sitt síðar. Húsið verði
ekki hannað fyrr en á næsta ári.
Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri
hjá framkvæmdasviði Reykjavík-
urborgar, segir hæstbjóðendurna
ekki hafa verið krafða skýringa á
því hvers vegna þeir hættu við
kaupin. Þeir missi hins vegar
tryggingarfé sitt upp á 250 þúsund
krónur. Hann segir að lóðirnar níu
verði ekki boðnar þeim sem næst-
ir voru í röðinni: „Tilboðin giltu
aðeins í tvo mánuði og eru runnin
út.“
Ágúst segir að þó ekki hafi
verið tekin formleg ákvörðun
finnist sér líklegast að lóðunum
níu verði úthlutað með lóðum
seinni hluta hverfisins. - gag
Hæstbjóðendur lóða við Úlfarsfelli:
Níu hættu við
ÚR ÚLFARSÁRDAL UPP Í GRAFARHOLT Í útboði borgarinnar voru parhúsalóðirnar 43 og
einbýlishúsalóðirnar 40 auk fjölbýlishúsalóða.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
IÐNAÐUR Hagnaður Alcoa nam 744
milljónum Bandaríkjadala eða
sem nemur 57 milljörðum
íslenskra króna á öðrum fjórð-
ungi þessa árs. Þetta er besta
afkoma í sögu fyrirtækisins, en
hún er að mestu útskýrð með háu
álverði og mikilli eftirspurn.
Einnig hefur hagræðing verið
aukin og tilkostnaður lækkaður,
að sögn Alains Belda, stjórnarfor-
manns Alcoa.
Alcoa er stærsti framleiðandi
heims á súráli, hrááli og unnum
álvörum. Fyrirtækið framleiðir
málma sem notaðir eru í margs
konar iðnaði, til dæmis við smíði
samgöngutækja. - sþs
Besta afkoma í sögu Alcoa:
Hagnast um 57
milljarða króna
MEXÍKÓ, AP Vinstrimaðurinn Andr-
és López Obrador ásakar nú alrík-
isembættismenn og saksóknara
og telur að jafnvel dómarar hafi
tekið þátt í kosningasvikum gegn
sér fyrr í mánuðinum. Hann sýndi
fréttamönnum í gær myndbands-
upptöku af manni í Guanajuato-
fylki, sem var að troða atkvæða-
seðlum í kjörkassa í síðustu
kosningum. Í tilkynningu frá
yfirkjörstjórn landsins segir að
myndbandið sýni kjörstjórnar-
mann setja atkvæði sem höfðu
misfarist aftur á réttan stað og að
myndbandið hafi verið „mistúlk-
að“.
Stuðningsmenn Obradors heim-
sækja nú sendiráð í Mexíkó og
krefjast þess að ríkisstjórnir
erlendra ríkja bjóði ekki Calder-
ón, sigurvegara kosninganna, vel-
kominn til starfa. Fyrst þurfi kosn-
ingarnar að fá meðferð fyrir
dómstólum. Talsmaður Hvíta
hússins í Washington sagði að
Bandaríkin virtu hverja þá niður-
stöðu sem dómstólar Mexíkó
kæmust að, en George W. Bush
hefur nú þegar óskað Calderón til
hamingju með sigurinn.
Obrador sagði að skipulagðar
mótmælaaðgerðir stuðnings-
manna hans myndu halda áfram
„ótímabundið“, eða þar til niður-
staða fáist. Hann segist þó ekki
binda miklar vonir við að kjör-
dómstólar láti undan kröfum hans
um endurtalningu atkvæða. - kóþ
Vinstrimenn í Mexíkó um forsetakosningarnar:
Segjast geta sýnt fram á svik
OBRADOR BENDIR Á SKJÁINN Sýndi
fjölmiðlum upptöku af manni að færa
atkvæðaseðla milli kjörkassa.
NORDICPHOTOS/AFP
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir forseti Grikklands, sem er í opinberri heimsókn hér á landi
um þessar mundir?
2Hvaða lið unnu Íslandsmeistarar FH í fyrstu umferð Meistaradeildar
Evrópu í gær?
3Hvað heitir nýjasti kærasti Mel B., fyrrverandi kryddpíu?
SVÖRIN ERU Á BLS. 34
SAMKEPPNISMÁL Samkeppniseftir-
litið hefur ógilt samruna Lyfjavers
og Lyf & heilsu á þeim grundvelli að
hann hindri virka samkeppni. Sam-
runinn leiði til yfirburðastöðu á
markaði fyrir skömmtun lyfja
handa stofnunum og að sú sameigin-
lega markaðsráðandi staða sem Lyf
& heilsa deilir með Lyfju á markaði
fyrir smásölu lyfja styrkist.
Fyrirtækið DAC keypti lyfsölu-
fyrirtækið Lyfjaver í mars en þessi
fyrirtæki annast innflutning lyfja,
heildsölu og lyfjaskömmtun fyrir
einstaka sjúklinga og sjúklinga á
stofnunum. Auk þess rekur Lyfja-
ver apótek sem
eru í samkeppni
við apótek í eigu
Lyf & heilsu,
sem er í sömu
fyrirtækjasam-
stæðu og DAC.
Samruni Lyfja-
vers og DAC
felur því einnig í
sér samruna
Lyfjavers og Lyf & heilsu sam-
kvæmt skilningi samkeppnislaga.
Í úrskurði Samkeppniseftirlits-
ins segir að skaðlegra áhrifa sam-
runans hefði aðallega gætt á mark-
aði fyrir smásölu lyfja og á markaði
fyrir skömmtun lyfja handa sjúk-
lingum. Samruninn hefði leitt til
þess að tvær lyfsölukeðjur, Lyf &
heilsa annars vegar og Lyfja hins
vegar, hefðu rúmlega fjóra fimmtu
hluta allrar lyfjasmásölu í landinu
eða áttatíu prósent. Sú markaðsráð-
andi staða gerði fyrirtækjunum
kleift að samhæfa hegðun sína á
markaðnum, án þess að þurfa að
taka tillit til keppinauta eða neyt-
enda.
Sigurbjörn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Lyfju, er ekki sáttur
við þessi ummæli Samkeppnis-
eftirlitsins og segir enga samhæf-
ingu í gangi milli Lyfju og Lyf &
heilsu. „Þó að það séu ekki eins
margir aðilar á markaðnum er
vissulega samkeppni í gangi. Lyfja-
markaðurinn er ekkert öðruvísi en
aðrir markaðir á landinu þar sem
oft eru tveir til þrír stórir aðilar
ráðandi.“
Hjalti Sölvason, framkvæmda-
stjóri Lyf & heilsu, sagðist ekki vilja
tjá sig um málið að svo stöddu þar
sem það væri verið að fara yfir
málið og ákveða hvort og hver
næstu skref fyrirtækisins yrðu.
Aðspurður um orð Samkeppniseft-
irlitsins varðandi hugsanlega sam-
hæfingu hegðunar lyfjakeðjanna
sagðist hann ósáttur við svona yfir-
lýsingar sem ættu ekki við rök að
styðjast.
Samkeppniseftirlitið metur einn-
ig að samruni DAC og Lyfjavers
hefði leitt til yfirburðastöðu DAC á
markaði fyrir lyfjaskömmtun og
hindrað samkeppni á honum. Aðeins
eitt fyrirtæki er á þessum markaði
auk DAC og Lyfjavers, en það er
Lyfjalausnir, sem er í eigu Lyfju.
sdg@frettabladid.is
Samkeppniseftirlitið ógilti
samruna lyfjafyrirtækja
Samkeppniseftirlitið ógilti samruna Lyfjavers og Lyf & heilsu. Lyfja og Lyf & heilsa hefðu náð 80 prósenta
markaðshlutdeild við samrunann. DAC, systurfyrirtæki Lyf & heilsu, hefði náð yfirburðastöðu í skömmtun
lyfja fyrir stofnanir. Framkvæmdastjórar keðjanna eru ósáttir við ásakanir um hugsanlegt samráð.
LYF & HEILSA Framkvæmdastjóri Lyf & heilsu segir að úrskurðurinn sé í skoðun og honum
verði hugsanlega áfrýjað.
HJALTI SÖLVASON