Fréttablaðið - 12.07.2006, Page 26
MARKAÐURINN
G E N G I S Þ R Ó U N
12. JÚLÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
Vika Frá áramótum
Actavis 0% 27%
Alfesca 0% -2%
Atlantic Petroleum 3% 31%
Atorka Group 0% -4%
Avion Group -1% -30%
Bakkavör -2% -14%
Dagsbrún -1% -7%
FL Group 1% -12%
Glitnir -4% -3%
KB banki -1% -2%
Landsbankinn -1% -22%
Marel -1% 8%
Mosaic Fashions -4% -19%
Straumur -4% 3%
Össur -2% -6%
Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
Arion verðbréfavarsla hf. mun á
næstunni senda fyrstu greiðslur
til hluthafa Stoke Holding vegna
sölu á 67 prósenta hlut í enska
fótboltafélaginu Stoke City.
Þegar greiðslur vegna skulda
hafa verið inntar af hendi fá
hluthafar 25 aura til baka fyrir
hverja krónu að nafnverði sem
þeir lögðu inn í félagið á sínum
tíma.
Hugsanlega fá fjárfestar
meira. „Menn skulu ekki búast
við meira en þrjátíu prósentum
af nafnvirði hlutafjár. Restin er
vonarpeningur,“ sagði Gunnar
Þór Gíslason, fyrrum stjórnar-
formaður Stoke Holding, á hlut-
hafafundi á dögunum. Gangi
þetta eftir fá þeir sem keyptu í
almennu hlutafjárútboði á geng-
inu 1,3 um 23 prósent af fjárfest-
ingunni til baka en fagfjárfestar,
sem keyptu á einum, fá þrjátíu
prósent. - eþa
STOKE HOLDING GREIÐIR ÚT Greiðslan
nemur fjórðungi af nafnverði.
Fá 25 aura fyrir
krónu nafnverðs
Greiningardeild KB banka mælir
með kaupum á hlutabréfum í
Bakkavör og hækkar verðmat
sitt úr 58,8 krónum á hlut í 62,5
krónur samkvæmt sjóðstreym-
islíkani. Telur bankinn að gott
tækifæri hafi myndast til kaupa
í Bakkavör en gengi Bakkavarar
á mánudaginn stóð í 44 krónum á
hlut. Er svigrúm til 42 prósenta
hækkunar.
Veiking krónunnar á öðrum
ársfjórðungi hefur jákvæð áhrif
á virði Bakkavarar þar sem eign-
ir og tekjur eru í pundum.
KB banki spáir Bakkavör 149
milljóna punda rekstrarhagnaði
fyrir afskriftir (EBITDA) í ár,
sem samsvarar rúmum tuttugu
milljörðum króna. Samkvæmt
þessu meta fjárfestar Bakkavör á
aðeins tæpa fimmfalda EBITDA,
sem þykir lágt miðað við sömu
tölur frá innlendum félögum sem
gengið hafa kaupum og sölum á
árinu. - eþa
BAKKABRÆÐUR, ÁGÚST OG LÝÐUR KB banki mælir með kaupum í Bakkavör.
Bakkavör á 40%
inni miðað við mat
Áætlaður hagnaður Seðlabankans
á fyrri hluta árs fyrir framlag til
ríkissjóðs nam samanlagt tæpum
14,4 milljörðum króna, þar af
hagnaðist bankinn um 3,4 millj-
arða í júní. Hagnaðurinn er að
langstærstum hluta borinn uppi
af gengishagnaði.
Ingimundur Friðriksson seðla-
bankastjóri segir að
breytingar á gengi krón-
unnar hafi mikil áhrif
á afkomu bankans en
tekur fram að skamm-
tímabreytingar, til
dæmis til eins mánaðar,
segi harla lítið. Gengi
krónunnar lækkaði um
5,1 prósent í júní. „Áhrif
þeirra breytinga á gjaldeyrisforð-
ann leiðir til þess sem í reikningn-
um er kallað gengishagnaður eða
gengistap.“
Allt árið í fyrra tapaði
Seðlabankinn 2,8 milljörðum
króna. Eignir Seðlabankans sam-
anstanda einkum af gjaldeyris-
forðanum og viðskipt-
um bankans við inn-
lendar lánastofnanir
og ríkissjóð. „Markmið
bankans er að sýna
traustan efnahag og
afkomu þegar til lengri
tíma er litið,“ segir
Ingimundur þegar hann
er spurður um hver fjár-
hagsleg markmið bankans séu.
Gjaldeyrisforði bankans hefur
styrkst um meira en 9,5 milljarða
frá áramótum, þar af um 6,4 millj-
arða í júní vegna reglubundinna
kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á
innlendum millibankamarkaði og
gengishagnaðar. - eþa
BANKASTJÓRAR OG
HAGFRÆÐINGUR
Hagnaður Seðlabankans
nam 14,4 milljörðum
króna á fyrri hluta árs.
Seðlabankinn græðir á falli krónu
V Æ G I M Y N T A Í G J A L D -
E Y R I S J Ö F N U Ð I S E Ð L A -
B A N K A N S Í Á R S L O K 2 0 0 5
Bandaríkjadalur 40%
Evra 40%
Sterlingspund 15%
Japanskt jen 5%
Steven Tomlinson, rekstrarstjóri,
og Paul Roberts, fjármálastjóri
breska leiguflugfélagsins Excel
Airways Group, dótturfélags
Avion Group, sögðu báðir upp
störfum í gær í kjölfar þess að
innri rannsókn félagsins leiddi
í ljós að góðum reikningsskila-
venjum var ekki fylgt við með-
höndlun afsláttar meðal annars
á mat og drykkjum, sem veitt-
ur var gegn langtímasamningi
Excel og Alpha Airports.
Halldór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Avia Technical Services í
Manston á Englandi, tekur við
starfi fjármálastjóra en Davíð
Örn Halldórsson hefur störf sem
yfirmaður nýstofnaðrar upplýs-
ingatæknideildar félagsins.
Í tilkynningu frá Avion Group
til Kauphallar Íslands kemur
fram að þeir Halldór og Davíð
eru báðir 32 ára. Halldór hefur
víðtæka reynslu úr flugrekstri.
Hann starfaði meðal annars
við endurskoðun hjá Deloitte
áður en hann gekk til liðs við
Air Atlanta Icelandic fyrir sex
árum. Þá hefur Davíð fjölbreytta
reynslu af verkefnastjórnum á
upplýsingatæknisviði, bæði hjá
Eimskip og Símanum en hann
starfaði áður við fjárstýringu
hjá Carlsberg-verksmiðjunum í
Danmörku. - jab
VÉLAR EXCEL AIRWAYS Rekstrarstjóri
og fjármálastjóri breska leiguflugfélagsins
Excel Airways hafa báðir sagt upp störfum.
Halldór og Davíð til Excel Airways
Aflaverðmæti íslenska fiski-
skipaflotans á síðasta ári nam 68
milljörðum króna en það er svip-
að og árið á undan. Afli skipanna
var tæp 1.669 þúsund tonn sem
er 59 þúsund tonnum minna en
árið 2004 og nemur samdráttur-
inn 3,4 prósentum.
Þá var mestu af fiski
landað á Austurlandi í fyrra
og var fiskaflinn unninn þar.
Verðmætasti aflinn fór hins vegar
til vinnslu á höfuðborgarsvæðinu
en virði hans nam 12,8 milljörðum
króna, að því er fram kemur í
hagtíðindum Hagstofu Íslands.
- jab
Heildarfiskaflinn
minnkar milli ára
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Mikil ókyrrð á fjármálamörkuðum hefur ekki bælt
FL Group frá innlendum hlutabréfamarkaði und-
anfarnar vikur. Á meðan aðrir fjárfestar hafa selt
eða beðið við hliðarlínuna hefur FL Group synt
gegn straumnum og verið eini stuðboltinn í líflausu
eftirpartíi.
Síðustu fjárfestingar FL Group í Glitni banka og
Straumi-Burðarási nema nú rúmum 54 milljörðum
króna. Hæst ber auðvitað að telja kaup félagsins á
24 prósenta hlut Kristins Björnssonar og Magnúsar
Kristinssonar í Straumi-Burðarási í lok júní en alls
nam kaupverðið 47 milljörðum króna; þar af voru
tólf milljarðar greiddir með hlutabréfum í KB
banka. FL Group fer nú með 26 prósent í Straumi.
Félagið hefur aukið hlut sinn í Glitni úr sextán pró-
sentum, frá því félagið kynnti afkomu síðasta árs í
mars, í tæpan fjórðung hlutafjár bankans. Ætla má
að kaupin í Glitni hafi kostað 23 milljarða króna. Þá
eru ótalin kaup á eigin hlutabréfum, í Dagsbrún og
önnur hlutabréfakaup í Straumi.
Þessi kaup koma á margan hátt á óvart, ekki síst
fyrir þær sakir að það hefur verið yfirlýst markmið
stjórnenda FL Group að draga úr vægi innlendra
eigna á kostnað erlendra. Í mars voru 55 prósent
skráðra hlutabréfa í innlendum hlutabréfum á móti
45 prósentum í erlendum bréfum. Þegar félagið
birti þriggja mánaða uppgjör um miðjan maí var
hlutfall innlendra eigna komið í 69 prósent en
erlendar eignir niður í 31 prósent. Hafði það sitt
að segja að FL Group seldi sautján prósenta hlut í
easyJet en á móti hefur félagið aukið verulega hlut
sinn í óskráðum erlendum eignum, til að mynda
með kaupum á 49 prósenta hlut í hollenska drykkj-
arframleiðandanum Refresco, þar sem félagið lagði
inn fimm milljarða króna, og stofnun fjárfestingar-
félagsins Unity sem fjárfestir í breskum verslana-
keðjum, en hlutur FL Group er um 37,5 prósent.
STJÓRNENDUR FL GROUP HORFA TIL HEIMAHAGANNA Á
síðustu vikum hefur félagið fjárfest fyrir meira en fimmtíu milljarða
króna á innanlandsmarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
FL syndir gegn
straumnum
FL Group hefur verið allsráðandi á heimamarkaði síðustu vik-
urnar. Fjárfest fyrir 54 milljarða, einkum í Glitni og Straumi.